Vikan - 19.02.1976, Síða 2
UNCU HJONIN Ot
INNMtSTOKKSM
Matartiminn Kostaöi þau
KK 599.516.00
Brothættur, en fallegur handmálaður postu-
línslampi frá Ita/íu. Verð kr. 7.595,-
Eftir hjónabandstilkynningum dagblaðanna
aö dæma, virðist hjónabandið síður en svo á
undanhaldi, og jafnvel þótt fólk búi saman í
svokölluðu pappírslausu hjónabandi, þurfa allir
þak yfir höfuðið, rúm til að sofa í og stóla og
borð til að matast við.
Ákaflega margir reyna að koma sér upp eigin
húsnæði og vinna að því í öllum frístundum, en
aftur á móti eru það færri, sem smíða sín eigin
framtíðarhúsgögn. Margir gera sér þó bráða-
birgðahúsgögn, sem sjðar, er fjárhagurinn
vænkast, er ekið á haugana.
Skemmtilegast er sjálfsagt að fá með eigin
höndum aö smíða og koma sér upp innbúi, en
það eru ekki nema fagmenn og þeir fáu, sem
allt leikur í höndunum á, sem ráðast í slíkt.
Aörir velja þá leið að gera húsleit í kjöllurum og
á háaloftum skyldmenna og vina í leit að
gömlum munum, sem hægt er með litlum
kostnaði, en oft mikilli fyrirhöfn, að gera upp.
Árangurinn er vel þess virði, og engin rúðubréf
með afborgunarkröfum fyrir húsgögn hrella
það heimilið.
En fyrir þá, sem ekki treysta sér til að koma
upp búslóö á ofangreinda vegu, er ekki um
annað að ræða en að ganga á milli húsgagna-
verslana borgarinnar, sem telja hátt á þriðja
tug. Það er reyndar síður en svo, að þetta sé
neitt örþrifaráð, því allar eru þessar verslanir
glæsilega búnar alls kyns húsmunum við allra
hæfi og fyrir allra pyngju.
Okkur lék forvitni á að athuga og taka saman
hve mikili kostnaður væri við að koma upp
heimili, ef miðað er við, að keypt séu aðeins
þau húsgögn, er fólk telur sig ekki geta veriö
án. Því fengum við að fylgjast með ungu
hjónunum Andreu Gísladóttur og Árna Inga-
syni, þegar þau fóru á stúfana til að velja
húsgögn í 2 herbergja íbúð sína við Asparfell.
Til að spara bæði tíma og bensín var ákveðið
aö aka ,,þangaö sem sólarlagið er fegurst"
vestur í bæ að JL-húsinu við Hringbraut, þar
sem hægt er að kaupa á einum og sama stað
flest, sem prýöa má eina íbúð og reyndar
einnig vikurplötur til að byggja húsið úr.
Þau Andrea og Árni höfðu nokkuð ákveðnar
húgmyndir um það, sem þau vanhagaði um og
höfðu gert áætlun um, hve miklu þau mættu
eyða. Einnig vildu þau leggja áherslu á að velja
íslenska framleiðslu og stilla verði I hóf.
Viö b\(í* 'ðum uppi á fimmtu hæðinni (
svefnherbbrgisdeildinni, Þv( Andreu og Árna
var ofarlega í huga að eignast gott rúm. Fólk
Eldhúsborð og 4 stólar úr massífri furu i
munkastíl. Verð kr. 107.000. -
eyðir nú einu sinni fast að því hálfri ævinni í
rúminu og ætti því með góðri samvisku að geta
keypt sér gott og vandað rúm. Þau féllu fyrir
hjónarúmi með tvöfaldri dýnu og fallegum
hvítmáluðum járngafli. Rúmið, sem er hannað
og smíðað hérlendis, er á hjólum, svo auðvelt
er að rúlla því til, þegar þarf að þrífa undir því.
Í stað náttborða völdu þau sér tvo hvítmál-
aða kolla með yfirdekktum svampsetum til að
leggja fötin á. Og til þess að þurfa ekki að stíga
fram á kalt gólfið á morgnana fengu þau sér
rya-mottur 70x120 á stærð, til aö hafa sitt
hvorum megin við rúmið.
Stofuhúsgögnin voru auðvitað stærsta fjár-
festingin. Andrea og Árni gengu beint að
Santiago-sófasettinu, svo það fór ekki á milli
mála, að bæði voru jafn ákveðin í þv(, að þetta
sófasett og ekkert annað skyldi fá að standa í
stofunni hjá þeim. Sófasettið samanstendur af
3-sæta og 2-sæta sófum, auk þægilegs hæg-
indastóls. Armarnir eru allir færanlegir, svo að
ending áklæðisins (100% bómullarflauel) verð-
ur tvöföld, ef miðað er við að hægt sé að skipta
á púöum. Á púðum og sessum eru rennilásar,
þannig að ef slys ber að höndum er hægt að
senda áklæðið í hreinsun.
Nú vantaöi auðvitað sófaborð, en vandinn
var bara að velja á milli ótal gerða og stærða.
2 VIKAN 8. TBL.