Vikan - 19.02.1976, Qupperneq 28
Á síðastliðnu ári gerði ferðaskrifstofan Úrval sér far um
að bjóða viðskiptavinum sínum aðeins úrvalsferðir til
sólarlanda.
Um leið og við þökkum samferðafólki okkar ánægjulega
viðkynningu, minnum við á, — að ferðaskrifstofan Úrval
mun á þessu ári bjóða ykkur meira úrval af sólarferðum
en nokkru sinni áður. Gríptu sólina þar sem hún gefst!
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
ÞAD SEM A UNDAN ER KOMID:
Marianne d'Asselnat gengur full
eftirvæntingar og ástar t hjónaband
aðeins 17 ára. En eiginmaðurinn er
ekki allur, þar sem hann er séður,
og þegar Marianne kemst að því, að
hann hefur lagt brúðkauþsnótt
þeirra undir í spilum_og taþað__
skorar hún hann á hólm. Eftir að
hafa orðið eiginmanninum að bana
og kveikt óviljandi t ættaróðalinu,
flýr hún í ofboði. Sjóari, sem kallast
Svartbakur, tekur að sér að flytja
hana með leynd yfir til Erakklands
ásamt frönskum flóttamanni. Skiþ
þeirra brýtur á strönd Bretagne-
skagans, þar sem Svartbakur hverf-
ur Marianne, en hún og franski
flóttamaðurinn, Jean Le Bru, lenda
í klóm strandþjófa. Foringi strand-
þjófanna er fullur tortryggni íþeirra
garð, hann lokar Jean inni, og Mari-
anne virðist lítið betur sett, þðtt
hún sé ekki í hlekkjum. Hún lœtur
Morvan halda, að hún sé í dular-
fullum erindagerðum á Frakklands-
grund, en hann hyggst afla sér
frekari vitneskju um ferðir hennar.
Með aðstoð krypþlings, sem er
skraddari hjá Morvan, kemst hún ti'
fundar við Jean og tekst að sannfæra
hann um vináttu sína. Hann vill
meira en vináttu __ og fær það...
Od fyrir var nóttin dimmari cn
áður. Vindhviða tók í'tcppið og
hún var næstum dottin um koll.
Sem snöggvast flögraði það að
henni að flýja þarna á stundinni,
en hún bægði frá sér þeirri freist-
ingu. Þegar á allt var litið var það
ekki Jean að kenna, þótt hún hefði
ekki yndi af samförum og ef hún
átti að vera fullkomlega hreinskil-
in við sjálfa sig, þá hafði hún
sjálf boðið þessu heim. Auk þess
batt sameiginlegt ráðabrugg þeirraa
gcgn strandþjófunum hana við
Jean. Samningur var ávallt samn-
ingur.
Hún snéri baki við lynghciðinni,
þcssari freistandi undankomuleið
og fór inn í húsið aftur sömu leið
og hún hafði komið.
Varla hafði hún breitt sængina
upp yfir höfuð, er hún heyrði lykli
snúið. Skraddarinn, þessi
kroppinbakur hafði staðið við orð
sín.
6. Kafli — Maðurinn frá Goulven.
Næsta morgun kom í ljós að Jean
Le Bru var flúinn og Marianne
fannst heimur hennar hruninn til
28 VIKAN 8. TBL.