Vikan - 13.05.1976, Blaðsíða 13
reykja og drekka, og skólastjórinn
gerir hvorugt svo almenningur viti.
En hvernig stendur á því, að hann
má fara öðru hvoru inn á ónafn-
greint hótel og drekka sig útúrfull-
an og keyra svo heim á eftir? I raun
og veru skiptir það mig engu máli,
en það er þetta fólk, sem galar
hæst: „Unglingavandamál”.
Ég get ósköp vel viðurkennt, að
ég drekk. En 3—4 síðustu böll, sem
ég hef farið á, hef ég verið ófull og
skemmt mér alveg konunglega. En
þá hefur það glumið í eyrunum á
mér eftir böllin, að ég hafi verið
útúrfull.
Hvernig á ég að fara að því að
breyta hugsunarhætti pabba? Hann
er alltaf að rausa um krakka, sem
hann sér undir áhrifum, en minnist
ekki á fullorðna fólkið.
Hvað lestu svo úr skriftinni og
hvernig er stafsetningin?
Hvernig fara saman tvíburastelpa
og drekastrákur? Hver er happatala
tvíburans? _. , r ,
Ein onatngreind.
Tvískinnungur fullorÖinna í við-
horfi til ýmissa ,,lífsvenja” hefur
valdið mörgum unglingum heila-
brotum, þar ert þú aðeins ein af
mörgum. Einhvem veginn virðist
margir fullorðnir líta öðrum augum
mistök framin t ölœði, ef þar er um
ungling að rceða, sem ekki hefur
náð hinum lögboðna aldursstimþli.
Fullorðnum til málsbóta má þó
nefna, að ef til vill hafa þeir þar í
huga, að því fyrr sem unglingar
temji sér ýmsa ,,ósiði'’ fullorðinna,
því erftðari verði þeir viðureignar.
Pósturinn verðurað játa, að hann
telur þig allt of unga til að drekka
vín á skemmtunum. Hins vegar
getur hann ekki séð neitt athuga-
vert við, að foreldrar, sem eiga börn
áþínum aldri, vceru aðeins farnir að
frœða börnin sín um vínnotkun, til
dcemis með þvt að bjóða þeim
borðvtn með mat, kenna þeim að
vara sig á áhrifum vtnstns og þekkja
víntegundirnar, áhrif þeirra og
bragðgceði. Geri þeir það ekki er
hcett við að börn þeirra verði sér úti
um þessa frceðslu á annan og mun
ócesktlegri hátt, til dcemis t kunn-
ingjahóþi, þar sem hver cesir annan
upp, og þar geta mistökin orðið
fáfróðum unglingum sorglega dýr-
keypt. Reyndu að tala af hreinskilni
við pabba þinn og leiða honum
fyrir sjónir, að engum er til gððs að
slinga höfðinu í sandinn og lyfta
því aðeins upp öðru hvoru til þess
að gefa frá sér órökstuddar staðhæf
ingar.
Hvað skólastjórann þinn varðar,
vona ég að dómar þínir um hann
stjórnist að einhverju leyti af óbil-
gimi unglingsins gagnvart þeim
sem hann telur eiga að vera hátt yfir
gagnrýni hafna. Skólastjórar eru
aðeins menn en ekki guðir og eiga
fullan rétt á að lifa sínu einkalífi án
sleggjudóma nemenda.
Skriftin er enn mjög ómótuð. Úr
henni má þó lesa fljótfærni og
hreinlyndi. Stafsetningin er alls
ekki svo slæm, en þér hættir til að
gera villur t fljótfærni.
Tvíburastelpa og drekastrákur
dragast ósjálfrátt hvort að öðru en
eiga alls ekki skap saman. Tvtburar
hafa alls ekki allir sömu happatölu,
það fer allt eftir fæðingardegi hvers
og eins.
AÐ GRÆÐA SAMAN KAKTUSA.
Kæri Póstur!
Getur þú gefið mér upplýsingar
um hvernig á að græða saman tvær
tegundir af kaktus.
Vonast eftir svari sem fyrst.
Kær kveðja,
blómaunnandi.
Þetta mun þvt miður vera það
mikið nákvæmnisverk, að aðeins
munu erlendir kunnáttumenn
koma þar við sögu. Þeir kaktusar,
sem fengist hafa t blómabúðum,
munu allir vera fengnir erlendis
frá. Aðalvandinn við verkið er að
húðin þarf að mætast á alveg sér-
stakan hátt og tslenskir garðyrkju-
menn ekki talið þetta á stnu valdi
enn sem komið er.
ji/ S-rrpe-
'VTnrr.
Kolbrún Gunnarsdóttir, Sóley
Halldórsdóttir, Ragnheiður Áma-
dóttir, Margrét A. Kristjánsdóttir
og Sigríður Skúladóttir, allar á hér-
aðsskólanum Núpi.Dýrafirði, óska
eftir að skrifast á við stelpur og
stráka á aldrinum 15—16 ára.
Áhugamál eru margvísleg og mynd
óskast með fyrsta bréfi.
ALLAR TEGUNDIR
IIMIMRÉTTIIMGA
Að gera nýja íbúð úr gamalli er mjög heillandi
og skemmtilegt verkefnl Það útheimtir rlkt
hugmyndaflug og hagleik. Það er okkur sór-
stök ánægja aö leiðbeina fólki í þessum efn-
um. Við komum á staöinn, ræðum hugmynd-
ir beggja aðila, gerum áætlanir og síðan föst
verötilboð A þennan hátt veit viðskiptavinur-
inn hver kostnaðurinn er og getur hagað fjár-
hagsáætlun sinni samkvæmt þvi.
ELDHUSINNRETTINGAR!
Ef þér þarfnist ráðlegginga eöa
aöstoóar, veitum viö fúslega
allar upplýsingar.
KLÆÐA-
SKAPAR
gerum föstverútilboö i allar
tegundir innréttinga
lí!=_
=01
HIIM VIIMSÆLU
allar IngimiHr
iiuurétliiuja
Tréval hf.
Súóarvogi 28 86894
20. TBL. VIKAN 13