Vikan - 23.09.1976, Page 33
Aleta drottning safnar um sig ráðgjöfum sínum og lætur þá segja sér, hvernig málin standa, Henni er
léttir að heyra, að ekki virðist þurfa að óttast vandræði af hálfu nágrannanna. Friðsæl ár eru í
vændum.
Zilla var einkaritari drottningar á leiðinni frá
Tangiers, en nú hefur hún næga aðstoðar-
menn, og hann hefur ekkert að gera. Hann
ráfar um í reiðileysi.
Hann er einmana. Þá sér hann allt í einu kunnugt andlit meðal
ókunnugra. Tamia, litla ambáttin, sem Aleta keypti í Tangiers.
Þeim báðum kunnugt um þær reglur sem gilda um þræla, en þau eru
ung, og þau hætta á stefnumót.
Þau verða ástfangin, og í sæluvímunni
verður kæruleysið þeim að falli. ,,Aha, þið
hér að makka," rymur i verðinum. ,,i
dýflissuna með ykkur!"
,,En þú ert of girnileg til að henda þér í
dýflissu". Og hann kemur með uppá-
stungu, sem æsir Zilla svo upp, að hann
hefði drepiö manninn, ef verðir hefðu ekki
komið honum til aðstoðar.
(£,' KinB'Feature* Syndicaf, tnc., 1976. Wortd right« rtnrvd.
Zilla og Tamia biöa hlekkjuð í dýflissunni,
meöan vörðurinn skundar á fund drottning-
ar og væntir hróss fyrir árvekni sína.
Næsta vika — Fjársjóðurinn.
2-22
39. TBL. VIKAN 33