Vikan - 20.07.1978, Page 36
Ny framhaldssaga eftir Eleanor Ross
„Trúðu ekki öllu, sem þú
heyrir. Og eltu ekki köttinn
í dimma staði, því þá kemst
Mary-Catherine að ....”
„Oichdhe mhath. a-Hamish," sagði
Torquil.
„Oichdhe mhath leibh, a-Torquil,”
svaraði gamli maðurinn, tók út úr sér
pípuna og brosti letilega.
Þegar Isabel var að steikja tvo feita
makríla i matinn datt henni Clive i hug,
og hún braut heilann um það.hvað hann
væri að gera. Sjálfsagt 'var hann að
drekka vín í veitingahúsi við ströndina,
Clive var viðstaddur Rimini kvik-
myndahátíðina. Hann hafði óskað eftir
þvi, að hún kæmi með honum, en hún
neitaði, þvi henni fannst hún vera það
eirðarlaus um þær mundir, að endalaus-
ar kvikmyndasýningar, háværar veislur
og kvöld í spilavítinu, væru meira en
hún þyldi.
„Ég vil bara fá frið og ró,” sagði hún.
„Ég þarf tíma til að hugsa.”
„Skosk þoka og keltneskt húm,"
fussaði Clive fyrirlitlega. „Jæja, ég vona
bara að þú losnir við þessar grillur i eitt
skipti fyrir öil. Ég veit ekki. hvað hefur
komið yfir þig siðustu vikurnar. Ég hélt,
að þú værir ánægð með lifnaðarhætti
okkar, en það virðist ekkert geta gert þér
til geðs lengur.”
Að svo mæltu flýtti hann sér út úr
ibúðinni hennar og þaut burtu i
glæsilega bilnum sínum. Hann hafði
ekki samband við hana áður en hann fór
til ítaliu.
Isabel varð svolitið þungt fyrir brjósti,
þegar henni varð hugsað til þess, hve
þau skildu með stuttum fyrirvara. Hún
ákvað að reyna að bæta úr því, þegar
húnskrifaði honum.
Þegar Isabel kom inn í samkomuhúsið
á föstudagskvöldið dunaði dansinn þeg-
ar dátt. Tveir átta manna hópar voru að
dansa ræl af miklum krafti, og í öllum
hornum voru hópar karla og kvenna,
hlæjandi og skrafandi.
Isabel settist á bekk skammt frá
dyrunum, og brátt kom Tinda Mac-
Donald búðarstúlka auga á hana og kom
til hennar i fylgd með grannri og
glaðlegri stúlku.
„Halló," sagði Tinda og brosti breitt.
„Það er gott að þú tókst i þig kjark og
komst. Þetta er Kirsty, systir min.” Þær
settust sitt hvoru megin við lsabel og
bentu henni á ýmsa samkomugesti.
„Þetta er Fergie, pósturinn okkar,”
sagði Tinda, og kinkaði kolli i átt til
hressilegs ungs manns með hrokkið,
gulrótarrautt hár. Hann deildi gosflösku
með tveimur rörum i með fjórtán ára
gamalli systur sinni. Hrokkinkollarnir
tveir voru þétt saman en systkinin
kepptust um að komast sem fyrst til
botns i flöskunni.
„Fergie færir Kirsty alltaf bréf!” sagði
Tinda lymskulega. „Það er ekki alltaf
með frimerki eða póststimpli, en hann
hefur alltaf handa henni bréf!" Kirsty
horfði systurlega á Tindu, en hún lét það
ekkert á sig fá. heldur hélt áfram.
„Þetta er Bob, lögregluþjónninn.”
Hún benti á stórvaxinn ungan mann
með snyrtilega klippt hár og smáa fætur.
„Þetta hlýtur að vera fríkvöldið hans
frá lögreglustörfum.”
„Hver er gamla konan, sem situr
þarna við gluggann?" spurði Isabel og
benti á þybbna gamta konu með kunn-
uglegan hatt og bomsur með teygju-
hliðum.
„Ó, þetta er Jessie-Anne." sagði
Tinda, og flissaði við. „Hún er kynlegur
kvistur. Hún var orðin gömul, þegar
pabbi minn var drengur, og hann segir,
að þá hafi fólk haldið, að hún væri norn.
Hvers vegna spyrðu? Hefurðu hitt hana
áður?”
„Já," svaraði Isabel hug:andi.
Rétt í þvi snéri Jessie-Anne höfðinu
og leit beint á Isabel yfir herbergið, en
dansfólkið. sem var að fara út af gólfinu
eftir rælinn, byrgði henni sýn.
Tveir dansendur námu staðar fyrir
framan þau, og Isabel leit upp á unga
konu i bláum lérefstkjól. Hún hélt undir
handlegg ungs manns. Dökkt hár
hennar var tekið i hnút i hnakkanum, og
hún horfði á Isabel stórum og einkenni-
lega lýsandi grænum augum, skærum og
kyrrum eins og vatn í gjá, og jafn
hörðum undir niðri.
Ungi maðurinn var með dökkt. liðað
hár og barta, og smellandi svört sigauna-
augu. Það varð andartaks þögn, en svo
sagði Tinda:
Frá KPS, stærstu heimilistækjaverksmiðju Noregs bjóðum við stórglæsnegt úrval
eldavéla, gufugleypa, kæliskápa og uppþvottavéla á mjög hagstæðu verði. Góðir
greiðsluskilmálar. Tískulitir: Karry gulur, Avocado grænn, Inka rauður, hvítur og það
allra nviasta: svartur!
EiNAR FARESTVEIT
Bergstaðastræti 10 A.
Sími16995.
Sendið úrk/ippuna til okkar
og við póstleggium bækling strax.
& CO. HF.
Nafn________
Heimilisfang
36 VIKAN 29. TBL.