Vikan - 24.04.1980, Síða 47
Myndskreyting: Bjarni Dagur Jónsson
sambandi við anda stjórnendur sina.
Ævivinur hans, rithöfundurinn og
skáldið Elias Barbosa, hefur reiknað út,
að Chico hafi eytt samtals 73.000
vinnustundum sem miðill, en það sam-
svarar rúmum átta árum á fyrstu
fjörutiu árum starfsemi hans og allt er
þetta unnið utan venjulegs vinnutima.
Það kom fljótt I ljós að Chico var
ótrúlega afkastamikill við ósjálfráðu
skriftina og [rað leið ekki á löngu áður
en hann hafði skrifað ljóðflokk sem
hafði djúp áhrif á félaga hans í
hringnum sem frú Perácio stjórnaði. Og
Ijóðaflóðið hélt sóðugt áfram með undir-
skriftum ýmissa mestu ljóðskálda
Brasilíu, þeirra sem látin eru. Árið 1932
gaf spiritistasamband Brasiliu út úrval
þessara ljóða i 421 blaðsíðu bindi, sem
40.000 eintök seldust af á skömmum
tima.
Bókin sem hlaut nafnið Parnassus
handan grafar varð metsölubók þegar í
stað og leiddi til deilna er enn eru ekki
með öllu úr sögunni. Enginn bar brigður
á að still og sérkenni þessara frægu
skálda kæmi þar ljóslega fram. Satt að
segja var eitt Ijóðanna framhald
kunnrar sonnettu eftir Dos Anjos,.sem
talinn hefur verið torræðastur
brasilískra skálda og þvi ekki heiglum
hent aðstæla hann.
Það fór bersýnilega í taugarnar á ýms-
um gagnrýnendum að víða brá fyrir i
ljóðum þessum spiritiskum
kenningum. Minnir þaðá afstöðu starfs-
þræðra þeirra hérlendis á sinum tíma
gegn þeim skoðunum, sem fram komu í
skáldskap Einars H. Kvarans. En einn
maður varð þó stórhrifinn af þessari bók
og skipti það ekki alllitlu máli því það
var sjálft þjóðskáldið Humberto de
Camos, meðlimur brasilísku aka-
demiunnar og virtasti bókmenntamaður
samtíma sins i landinu.
Eftir nákvæma rannsókn á þessum
ljóðum handan grafar lýsti hann þvi yfir
opinberlega að höfundar þeirra sýndu
hér sömu eðliseinkenni innblásturs og
túlkunar sem hefðu einkennt ritverk
þeirra meðan þeir dvöldust á jörðinni.
Og hann sýndi fram á það með dæmum
hvernig þessi ljóðskáld, hvert fyrir sig,
veltu enn fyrir sér sömu viðfangsefnum
og áður og hvernig stilsmáti þeirra og
persónueinkenni aðgreindu þessi ritverk
þeirra á alveg sama hátt og meðan þeir
voru á jörðinni.
Vinsælasti barnabókahöfundur
Brasilíu, Monteiro Lobato, bætti þessu
við athugasemdir Humbertos de
Campos: „Ef maðurinn (þ.e. Chico)
hefur samið þetta allt sjálfur, þá standa
honum opin eins mörg sæti í :aka-
demíunni og honum þóknast!”
Nú vildi svo til að Humberto de
Campos lést skömmu eftir útkomu
Parnassusar og það var ekki að sökum
að spyrja, hann fyllti þegar flokk hinna
látnu skálda, sem skrifuðu með hendi
Chicos. Og á árunum 1937—1942 komu
frá hendi Chicos fimm bindi undirrituð
af Campos (meðal tólf annarra rita eftir
ýmis önnur látin skáld).
Að visu lýsti einn rithöfundur því yfir
að þessi rit, sem eignuð væru de
Campos, hlytu að vera verk djöfulsins
sem með þessu vildi rugla fólk en hins
vegar viðurkenndi hann að stílsmáti de
Camposar væri alls staðar augljós. En
virtasti gagnrýnandi Brasilíu, Agripino
Griego, sem hafði verið náinn vinur
Camposar, var hins vegar ekki í minnsta
vafa um að þessi ritverk væru „hreinn
Humberto”, eins og hann komst að orði.
Til þess að binda endahnútinn á málið
fékk gagnrýnandinn sérstakan fund hjá
Chico og það skipti engum togum:
miðillinn skrifar niður tuttugu
blaðsíðna skilaboð frá Campos til vinar
síns og hafði það djúp áhrif á hann.
En það var hins vegar önnur
manneskja sem lét sér fátt um finnast
og það var ekkja Camposar. Hún taldi
að nú væri nóg komið og sér bæri tví-
mælalaust ritlaun, ef maður hennar
hefði i sannleika skrifað þessi nýju rit-
verk.
Árið 1944 var Chico því dreginn fyrir
rétt til þess að verja sig og var honum
fió nokkur huggun að því að móðir hins
látna skálds, sem enn var á lífi, hafði
algjörlega sannfærst um það að þessi
skáldverk væru eftir son sinn.
En dómarinn kvað þaðálit sitt aðþað
væri með öllu ókleift að sanna að andi
Campos hefði skrifað þessar bækur,
enda þótt Chico byðist vinsamlega til
þess að rita ósjálfrátt enn nokkur
sýnishorn þarna í réttarsalnum. Að
skilningi réttarins var Campos lagalega
látinn og hafði því engan frekari rétt.
Málinu var vísað frá!
17. tbl. Vikan 47