Vikan - 25.12.1980, Síða 22
Orkideur handa
Fjólu
Fjóla var 27 ára og laus og
liðug á markaðinum eins og
sagt er. Jafnöldrur hennar
höfðu fyrir löngu fundið sér
mann, gift sig, eignast börn og
buru, hús að búa í og allt það.
Fjóla var ein eftir og á næsta
afmælisdegi yrði hún 28 ára.
Tuttugu og átta ára. Þá voru
bara tvö ár þangað til hún yrði
þrítug. Og ef stúlka er á annað
borð komin yfir þrítugt þá er
ekki mikil von eftir. Þá var
alveg eins gott að koma sér
fyrir í ruggustólnum, fara að
sauma klukkustrengi og klappa
kisa sínum. Eina huggunin yrði
þá aukakaffitár.
Þegar Fjólu varð hugsað til
þess hvað biði hennar ef henni
tækist ekki fljótlega að finna
sér mann til að drösla inn
kirkjugólfið var hún lostin
skelfingu. Hún fór fram á bað
og tók sér stöðu fyrir framan
spegilinn og gerði sig sæta og
fína og eins unga, kornunga,
og mögulegt er með hjálp efna-
fræðilegra aðferða.
Vandamál Fjólu var eigin-
lega það að hún var allt of góð
og hjálpsöm. Þegar dyrabjallan
hringdi gat hún verið næstum
viss um að það væri annað-
hvort Sveinn, Knútur eða
Valdemar. Það voru reyndar
þrír r 'nn í lífi hennar en
engu þeirra var nein sérstök
alvara.
Saga okkar hefst á sunnu-
degi og Fjóla átti hálfpartinn
von á þeim öllum. Fyrst kom
Sveinn. Hann var með
tjásulegan blómvönd, sem
hann hafði keypt af götusala,
undir hendinni.
— Hæ, Fjóla, sagði hann og
trampaði beint inn, — er ég að
trufla?
Það var hann reyndar ekki.
Ef hann hefði áhuga á að tefja
smástund var hún með tilbúna
hressingu í glasi handa þeim.
Og hún hafði farið í lang-
nýjasta og flottasta dressið sitt,
ef honum hugkvæmdist nú að
stinga upp á göngutúr í góða
veðrinu.
En honum datt það ekki í
hug. Hann var að flýta sér.
Hann var varla kominn inn
fyrir þegar hann fór úr
jakkanum.
— Heyrðu, sagði hann. Þú
getur víst ekki verið svo væn að
gera mér greiða . . . og gerðu
svo vel . . . blómin eru nú
reyndar til þín . . . jú, þú gætir
ekki gert mér þann greiða að
lappa aðeins upp á þennan
jakkaræfil. Það er saumspretta
hérna í hægri handarkrika. Þú
værir nú aldeilis væn ef þú
gerðir þetta fyrir mig, þetta er
reyndar næstum alveg nýr
jakki, en . . . .
Fjóla lagaði jakkann. Hún var
heilan klukkutíma að gera það
og allan timann sat Sveinn og
glápti á klukkuna.
— Sko, þetta er nú orðið
stórfínt, sagði hann og reif
jakkann úr höndunum á Fjólu
um leið og hún var búin að slíta
þráðinn og ganga frá. — Og
þakka þér kærlega fyrir.
— Má bjóða þér í glas eða . .
.? Fjóla reyndi að komast að.
— Nei, þakka þér fyrir,
einhvern tíma seinna. Ég er að
flýta mér. Ég ætlaði að reyna
að ná á landsleikinn. Hvað er
klukkan annars orðin margt?
Ég verð að hlaupa.
Stjörnuspá
llniiiirinn 2l.mars 20.afiril
Það er engin ástæða til
að vera vonsvikinn þó
hátíðahöldin hafi haft
nokkuð annan svip en
þú áttir von á. Það sent
mestu rnáli skiptir er að
allir hafa lagt sitt af
mörkunt og það er
ntikils virði.
tiMÍin 24.m-|>i. 2.Vi/ki.
Gott andrúntsloft i
kringum þig hefur vakið
upp rnargt það besta i
þér. Láttu það endast
yfir hátíðarnar og helst
alla ævi. En auðvitað
skiptast á skin og skúrir
og þú skalt njóta lífsins
og alls þess jákvæða I
kringum þig.
N.iuliA 2l.;>pril 2l.m;ii
Þú ert vel að hvildinni
kominn og ættir að nýta
þér þær fáu hvíldar-
stundir sem þér standa
til boða. Mikið annríki
er á næsta leiti en hins
vegar eru líkur á því að
þú munir kunna vel að
meta það sem veldur
því.
SporAdrckinn 24.okl. 2.Vuói.
Dómharka þin kann að
vera særandi, einkurn
nú þegar allir eru venju
fremur I hátíðaskapi. Þó
að þú getir fundið að
öðrum eru sleggjudómar
óþarfir. Auk þess
verður þér eitthvað vel
gert og ættir þú að meta
það að verðleikum.
T\ihur;irnir 22.m;ii 2l.júni
Þú ættir að láta eftir
þér að vinna úr ein-
hverju af því sem hefur
verið að safnast upp.
Ýmislegt sem þú heldur
að liggi á er ekki svo
ýkja áríðandi. Og þú ert
ckki ómissandi — nenia
þinum nánustu sem eiga
alla athygli skilið.
Hoi>m;ii4urinn 24.nú\. 2l.dcv
Sumt af því sem þú
verður vitni að er ekki
jafnskemmtilegt og
annaö. En oft er hægt
að bæta úr og einmitt
það getur þú núna. Eitt-
hvað hefur glatt þig sér-
staklega og þú ættir að
deila gleði þinni með
öðrum.
kr.'hhinn 22. júni 2T. juli
Vanlíðan veldur þvi að
þú hefur ekki notið
hátiðanna sem skyldi.
Við þvi er ekki nenia
eitt að gera og það er að
hvilast og hafa samband
við þann sem gæti
hjálpað. Á hinn bóginn
hefur margt gott gerst
og bjart framundan.
Slcingcilin 22.tics. 20. jan.
Viðkvæmni er eðlileg á
þessum tima árs og.
hrjáir fleiri en þig.
Vertu eðlilegur án þess
að gera þig sekan um
barnaskap. Oft eru
menn hreinskilnir ef
þeim er sýnd hreinskilni
að fyrra bragði. Það
sakar ekki að reyna.
I.jónid 24. júli 24. ;ii»ú»l
Bráðsmellin hugmynd
ætti að geta orðið þér
og öðrunt heilladrjúg.
Þú skalt varast mikla
eyðslusemi því pyngjan
er ekki sjálfvirkur
peningaframleiðandi.
Allt annað sem þú tekur
þér fyrir hendur ætti að
gefast vel.
\alnshcrinn 2l.jan. I*).fchr.
Jólin eru klaufalegur
tími til að lenda i
deilum. Það er sem
betur fer auðvelt að
lagfæra þetta og þú
skalt ekki hika við að
gefa eftir gagnvart þeini
sem þér er annt um.
Réttur dómur þinn
verður síðar metinn.
misskilningur að ein-
hverjum sé I nöp við þig
þó hann geti verið
stuttur í spuna. Reyndu
að unna öllum sann-
mælis. Þú virðist kvíða
aðgerðaleysi en það er
óþarfa kviði.
Fiskarnir 20. íchr. 20. mars
Gleði og gott skap er
ofarlega í huga þinum
og þú ert reiðubúinn til
að sýna þeim sem
minna mega sin
vinarþel. Að vísu máttu
eiga von á vanþakklæti
einhvers staðar en láttu
það ekki á þig fá.
Sumireiga erfitt.
XX Vikan f 2. tbl.