Vikan


Vikan - 29.01.1981, Side 2

Vikan - 29.01.1981, Side 2
Margt smátt Hún amma mín þaö sagði mér . ■ ■ Gömul ensk húsráð Til þess að kaka haldist mjúk við geymslu í dós er ágætt að setja smávegis af púðursykri eða lítinn bita af afhýddu epli á botninn. Blómkál verður fallega hvítt ef smávegis af mjólk er hellt saman við vatnið við suðu. Ef Tjómi vill ekki þeytast er heillaráð að setja nokkra dropa að sítrónusafa saman við. Til þess að koma í veg fyrir að feiti spýtist i allar áttir við pönnusteikingu er gott að setja dálítið salt á pönnuna. Kaffi og teílát úr postulíni verða oft brúnleit vegna tanníns, sem er efni i kaffi og tei. Hreinsið brúnkuna burtu með því að hella heitri upplausn af vatni og matarsóta í ílátið. Látið standa yfir nótt og skrúbbið að morgni. Skolið vel á eftir. Glös verða skínandi hrein ef þau eru skoluð upp úr vatni sem I er dálítið af lyftidufti, síðan eru glösin látin standa til þerris. Hreinsið svartleitar silfurskeiðar með því að nudda á þær salti. Ryðbletti er hægt að fjarlægja úr fatnaði á eftirfarandi hátt: Vætið blettinn með' sítrónusafa, setjið rakan klút yfir og pressið með heitu strokjárni. Dökka : bletti eða „brunabletti” í fatnaði má afmá með ýmsum ráðum. Bleytið Ijósari bl^i í mjólk, nuddið hvítar flíkur með sítrónusafa og hengið til þerris í sólskini (ef það er fyrir hendi). Dökka bletti í líni má nudda með lauk og gegn- bleyta síðan í köldu vatni. Hellist rauðvín niður í dúka eða fatnað skal strax strá yfir blettinn salti og láta það liggja þar til saltið hefur dregið í sig litinn. Sópið saltinu burt en þvoið dúkinn eða flíkina svo fljótt sem verða má. Dökka hringi á viðarborðum má fjarlægja með því að nudda þá með valhnetukjarna þar til hringirnir eru horfnir. Látið hnetuolíuna liggja á í nokkum tíma og fægið síðan með þurrum klút. Ódýr leið til að vatnsverja leðurstígvél er að hreinsa þau vel og vandlega og þekja síðan með þykkri sápufroðu. Látið standa í um 12 tíma og þá þurrkað af. íransstjórn vill skjóta lausn á gísladeilunni Ja, héma! Allt vilja þeir skjóta, þessir íranar! 2 Vikan S.tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.