Vikan - 29.01.1981, Page 3
Margt smátt
í þessari Viku
Vigt í sokkabandabelti
Ég ætla að senda þennan brandara að
gamni mínu. Ég er gamall berkla-
sjúklingur og var á Vífilsstöðum. fyrir
20 árum. Ég var veik í mjöðm og ég gat
ekki farið fram úr rúminu. Eitt sinn um
jól fengu allar stúlkurnar að fara heim til
sín nema ég af því ég var svo veik.
Daginn eftir að allir fóru kom myndar
legur maður inn til mín, gráhærður. Ég
held að þetta sé læknir og hann spyr mig
hvað ég heiti. Ég segi honum það og
hann spyr mig hvað sé að mér. Ég segi
honum að ég sé mjög veik i mjöðm. Þá
segir hann við mig: Ég get læknað þig.
góða mín, bíddu aðeins, ég kem strax
aftur. Þegar hann kemur aftur er hann
með gamla borðvigt og gamalt sokka-
bandabelti utan yfir vigtina. Svo segir
hann við mig: Lyftu nú mjöðminni upp.
ég ætla að láta vigtina á mjöðmina á þér.
Ég var svo veik að ég botnaði hvorki upp
né niður í þessu. 1 því kom hjúkrunar-
konan og segir við mig: Vina min. þetta
var veikur maður. sem er hér á hælinu.
og hann var að læra læknisfræði. Og
þetta er alltsatt.
Matthildur Þ. Matthiasdóttir,
Kirkjuvegi 66, Vestmannaeyjum.
Einn brandari til:
Einu sinni var gömlurn manni kennt
barn ungrar stúlku. Það fór i mál og
þegar hann mætti fyrir rétti sagði hann:
„Það getur ekki verið að ég eigi barnið.
þetta varekkinema lOmínútur.”
„Mikið andskoti er kalt."
„Þaðgerir frostið."
Og svo var það Hafnfirðingabrandarinn:
5. tbl. 43. árg. 29. jan.1981. Verð 18nýkr.
GREINAR OG VIÐTÖL:
4 New York: þaö er eins gott aö þekkja áttirnar. Vikan kvnnir stórborgir.
8 Stæltir vöðvar. Vikan kynnir líkamsrækt og þjálfun.
22 Tæknin í þjónustu feguröar.
24 Er þetta bara úturdúr? Viötal viö myndlistarmennina Magnús Kjartansson og Árna Pál.
26 Manntal fyrr og nú. Viö segjum frá manntalinu 31. janúar og útskrýrum þaö.
30 Fyrsta konan seni varð ráöherra.
38 Tvö þúsund ár undir jörðinni. Sagt frá sérkennilegu samfélagi.
„Sérðu dauða fuglinn þarna?"
„Hvar ?????”
Borgarbóka-
safnið — stór-
kostleg þjón-
usta_____________________
Alltaf er verið að þusa og þrasa um
lélega þjónustu hér og þar, og oft auðvit-
að með réttu. En hér er ein skemmtileg
saga af því gagnstæða.
Blaðamaður lenti í þvi að muna óljóst
kvæði nokkurt og vanta tilfinnanlega
smákafla úr því. Hann brá á það ráð að
hringja niður á Borgarbókasafn og segja
nafn bókar. höfandar og kvæðis og biðja
síðan stórs greiða. Vel var tekið í mála-
leitan. Bókin var því miður i útláni en
samþand var gefið við lesstofuna. Þar
var málaleitan einnig vel tekið og í gegn-
um simann var kvæðið lesið fyrir blaða-
manninn.
Þetta verður að kallast vel gert, og
þökk sé Hrafnhildi og Önnu á Borgar
bókasafninu. Fleiri kannast við einstaka
þjónustu safnsins.
Skipið sem
sökk
Skemmtiferðaskipið Bremen kom meðal
annars til lslands á ferðum sínum um
höfin. Eitt sinn var þetta stærsta vestur
þýska skemmtiferðaskipið. Vestur-Þjóð-
verjar seldu Bremen og átti ferli þess
að Ijúka á Formósu, þar sem það skyldi
rifið í brotajárn.
En Ægir greip i taumana. Óveður
skall á þegar verið var aðdraga Filipians
Saudi I (eins og skipið hét þáorðiðl til
Formósu. Leki kom að skipinu og þótt
veðrið væri gengið niður tókst ekki að
bjarga Filipians Saudi I frá hinni votu
gröf.
Þar sem skipið var í drætti var fátt
manna um borð, er óhappið varð, og
björguðust þeir auðveldlega. Síðan var
kirfilega ljósmyndað hvemig skipið fór
að því að sökkva. Þær myndir birtum
við i þessu blaði á bls. 46. en leyfum
okkur raunar að gefa ímyndunaraflinu
lausan tauminn í leiðinni.
42 Eiríkur á Brúnum og Paradísarheimt. Annar hluti.
SÖGUR:
13 Sá hlær best .... Framhaldssaga.
18 Gengi.
36 Skynsamlegar ráðstafanir — Willy Breinholst.
ÝMISLEGT:
2 Margt smátt.
32 Suzy Quatro í miöri Viku.
34 Peysa úr lamaull.
41 Hann kom mönnum til aö hlæja.
46 Skipagaman.
49 Klúbbsamloka í Eldhúsi Vikunnar og Klúhhs matreiöslumeistara.
VIKAN. (Jtgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar Hreiðarsson. Blaðamenn: Anna Ólafsdóttir
Björnsson, Borghildur Anna Jónsdóttir, Jón Ásgeir Sigurðsson, Þórey Einarsdóttir. Útlitsteiknari:
Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Ragnar Th. Sigurðsson. RITSTJÓRN í SIÐUMÚLA 23, sími
27022. AUGLÝSINGAR: Birna Kristjánsdóttir, sími 85320.
AFGREIÐSLA OG DREIFING í Þverholti 11, simi 27022. Pósthólf 533. Verð i lausasölu 18,00 nýkr.
Áskriftarverö 60,00 nýkr. á mánuði, 180,00 nýkr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega oðá 360,00 nýkr.
fyrir 26 blöð hálfsárslega. Áskriftarverö greiðist fyrirfram, gjalddagar nóvember, febrúar, mai og
ágúst. Áskrift í Reykjavik og Kópavogi greiðist mánaðarlega.
Um málefni neytenda er fjallað í samráöi við Neytendasamtökin.
Forsíða
Sá sem prýðir forsiðuna okkar að
þessu sinni heitir Viðar Guðjohnsen
og eins og sjá má er hann allvel að
manni. Við erum með fleiri myndir
af honum og starfi hans inni i
blaðinu. Ljósm. Ragnar Th.
5. tbl. Vikan 3