Vikan - 29.01.1981, Síða 6
Eins og að lenda í Kópa-
voginum.
Manhattan skiptist lika í Uppborg,
Miðborg og Niðurborg (Uptown
Midtown — Downtownl. Uppborg er
fyrir ofan 59. stræti en Niðurborg fyrir
neðan 34. stræti. Það er aðeins í Niður-
borg sent bregður úl al' bessu fastskipu
lagða reitakerfi þvergatna og eivenjúa.
Satt að segja er vandratað fyrir
ókunnuga á köflum þar i Niðurborg,
einkum á tveim stöðum: þar sem heitir
Greenwich Village og eins í hverfinu
umhverfis Wall Street. Þarna heita
göturnar hver sínu nafni og fastmótað
kerl'i l'innst ekki i einu vctfangi að
minnsta kosti. Þetta er eins og fyrir
ókunnuga að lenda í Kópavoginum.
Best að hafa með sér kort og kunna að
snúa því rétt.
Annað sem getur ruglað ókunnuga
við fyrstu sýn er að tvö númeruð eivenjú
heita sinum eigin nöfnum ogeru iðulega
við gatnamót merkt eingöngu þeim.
Þannig heitir Sjötta eivenjú Avenue of
the Americas. Fjórða eivenjú Park
Avenue. Þar við bætist að Madison
Avenue hefur verið skotið inn langsum
milli Fjórða og Fimmta eivenju og
I exington Avenue milli Þriðia og
Fjórða (Park) eivenjú. Þetta getur leikið
grandalausan dálítið grátt i fyrstu af þvi
maður heldur í einfeldni sinni að það sé
kappnóg að telja. En þessar undan-
tekningar (og ntunið líka hvernig
Broadway álar sig á skál eru svo fáar að
þær er auðvelt að læra.
Leigubílar og neðanjarðar-
brautir
Fjarlægðir eru talsvert miklar á
þessari eyju og það getur orðið þreytandi
að þramma hana daginn langan. En
hægt er (nema á mestu annatímum) að
ná sér í leigubil og láta skutla sér. Þeir
cru auðþekktir, allir skerandi gulir og í
að sitja kvíðir maður því mest að þeir
muni hrynja áður en komið er í áfanga-
stað. En það er mesta furða hvað þeir
hanga, eins og farið er með þá; leigu-
bílstjórarnir halda margir hverjir að þeir
séu í einhvers konar bilaleik eða
kappakstri. Lika er mjög auðvelt, og
ódýrt eftir því, að fara flestra sinna ferða
i neðanjarðarbrautunum. þar kostar 60 scnt
skreppurinn og þegar maður er á annað
Ixirð búinn að Ixrrga sig niður i jörðina gæti
sá verið allan daginn ;ið þevsasl nteö neðun
iarðarbrautum sem þannig
væri stemmdur. Kerfið er nokkuð
víðtækt og gott og þessi ferðamáti fljót
legur. þótt hann geti orðið dálítið eftir-
minnilegur á annatímum, þegar fólk
treðst svo svakalega inn í lestarnar að
og leigubílarnir oft á tíðum (að minnsta
kosti lestarnar) og náttúrlega talsvert
ódýrari, því ofan á ökugjaldið sem
mælirinn sýnir ber að gjalda þjórfé, sem
samkvæmt túristaupplýsingum á að
vera 20% af ökugjaldi. Þar að auki er
forvitnilegt að sjá mannlífið eins og það
birtist i almenningsfarartækjunum.
Sé farið eitthvað að ráði út fyrir
Manhattan er ekki talið ráðlegt að taka
leigubíla þangað, nema farið sé á ein
hvern alþekktan stað. Sagt er að þeir
þekki Manhattan eins og handarbakið á
sér en lítið þar utan við, en láti það ekki
uppi heldur þvælist með mann von úr
viti og það án þess að spvrja vegar
þangað til ökugjaldið hleypur á tugum
dollara ef ekki komið upp í hundrað.
Maður heyrir meira að segja hroll-
vekjandi sögur af þvi hvað kostað hafi
fyrir ferðalanga að taka leigubíl utan af
Kennedyflugvelli inn í miðborg, af því
að leigubílstjórarnir hafi farið kráku-
stigu — af stigamennsku eða fákænsku.
Skoðunarferð gefur yfirsýn
Mörgum Islendingum þykir fyrir
neðan sína virðingu að fara i skoðunar-
ferðir — tala um það með fyrirlitningu
að þeir láti sko ekki smala sér á ein-
hverja túristastaði, heldur séu af
alkunnum, íslenskum stórgáfum færir
um að finna allt af sjálfum sér og séu
auk þess yfir það hafnir að hafa gaman
af því sama og annað fólk. Þó er það nu
svo um stóra staði, að það gefur býsna
góða yfirsýn yfir þá að fórna nokkrum
tíma í góða skoðunarferð og þótt ekki sé
viða stansað er farið fram hjá og bent á
ýmislegt sem stórgáfaður landinn á þá
kannski auðveldara með að leita uppi
sjálfur eftir á og kanna á eigin spýtur og
telja sér trú um að hann sé nú svei mér
þá eitthvað annað og merkilegra en
túristi!
Mælt var með Grayline Tours, sem
aðsetur hafa á Sjöunda eivenjú milli 51.
og 52. þvergötu. Að fenginni reynslu
komum við meðmælunum á framfæri
og styðjum þau. Þar er hægt að fá ferðir
um parta af Manhattan brot úr degi eða
ferð sem gefur heildaryfirsýn yfir eyjuna
og tekur bróðurpart úr degi, og þar er
meira að segja hægt að fá kvöldtúr ef
maður vill sjá eitthvað al' næturlifinu nteð
allt sitt á sæmilega þurru. Þjónustan er á
þokkalegu verði og leiðsögumennirnir
fróðir um ólíklegustu atriði. En það er
til marks um gagnsemi ferða af þessu
tagi að okkur er kunnugt um jafnvel
gamalreynda ferðakappa sem gist hafa
New York oft og iðulega en segjast hafa
fengið algerlega nýja hugmynd um
Manhattan með þvi að skreppa í svona
ferð. Líka má benda á skemmtisiglingu
maður hlýtur að undrast hvort nokkurn
tíma verði hægt að ná þvi úr aftur. En
það hefst, viti menn, og ekki hafa
áhyggjur af þvi þótt þú getir ekki með
nokkru móti strokið þér um nefið af þvi
þú getur ekki hrært legg né lið í þröng-
inni — þú getur einfaldlega núið þvi við
öxlina á þeim sem er fyrir framan þig;
hann getur heldur ekki rönd við reist.
Einnig ganga strætisvagnar eftir
eivenjúunum endilöngum og kostar það
sama og í lestarnar. 1 báðum tilvikum er
Ixst að vera dálítið birgur af sérstökum
peningum, sem fást á brautarstöðvunum
og gilda aðeins i þessar lestar og strætis-
vagnana, því annars þarf oft að bíða í
biðröð á stöðvum neðanjarðarlestanna
eða hafa tilbúið nákvæmlega það sem
við á í strætó, því þar er ekki skipt. Satt
að segja mælum við með því að nota
frekar almenningsfarartækin eftir þvi
sem hægt er, þau eru fullt eins hraðfara
Þótt Súpermann væri tiltölulega
aftarlega í skrúðgöngunni miklu
á Broadway fór þeim mun meira fyr-
ir honum. Hann var meira en
í stil við húsin í kring og þurfti
að hafa á honum földamörg
stög svo hann stigi ekki of hátt til
lofts. Á efri myndinni blasir hann við
i allri sinni dýrð en á þeirri neðri er
hann kominn fram hjá og þá er hægt
að gera sér grein fyrir fyrirferðinni
með þvi að bera hann saman við
fólkið.
6 Vikan 5. tbl.