Vikan


Vikan - 29.01.1981, Qupperneq 8

Vikan - 29.01.1981, Qupperneq 8
Vikan kynnir stórborgir og þaðekki um neitt skitiri. 100 dollarar minnir mig hat'i verið hámarkssektin. Þar við má bæta til marks um hug New Yorkara til hundahalds. að til skamnts tíma að minnsta kosti kostaði leyfisbréf i New York 4 dollara en leyfi til hunda- Italds 5 dollara. Að gera bargein Enginn íslendingur — hvernig sem liann lætur af gáfnafari sínu og eðal- borinni menningarleit — kemur i stað eins og New York án þess að fara í búðir. Allir ætla að gera kostakaup, eða það sem heitir á enskri islensku að gera bargein. Vist er um það, að margt er hægt að fá við verði sem hér heima þykir hlægilegt, og sumir komast i þvílikan innkaupahant að þeir kaupa hluti sem þeim dytti aldrei i hug að kaupa væru þeir með fyllilega réttu ráði. Sá sem kaupir peysu fyrir litinn pening græðir augljóslega á því, og innkaupahagfræði innkaupaæðisins segir að sá sem kaupi fjórar peysur fyrir lítinn pening græði fjórfalt. Spurningin er bara hvað hann hefur við fjórar peysur að gera. í New York eru alltaf einhverjar útsölur i gangi. Þar má oftast gera kjara- kaup. Sunnudagsblöðin eru yfirfull af auglýsingum um útsölur. Sömuleiðis er hægt að komast að góðuni kjörum i sér stökum afsláttarverslunum og afsláttar- deildum stórverslananna. Þar sem heitir Orchard Street í gyðingahverfinu i Neðri-austursiðu er rekinn prútt- markaður, en betra mun að vera dálítið útsmoginn og séður sjálfur ef gyðingur- inn á ekki að maka krókinn meira en kaupandinn. Þafl er Macy s sem stendur fyrir göngunni miklu á þakkargjörðar- daginn, og þarria rétt fyrir jöfin war búifl afl skreyta húsifl í tilefni jólanna. En varið ykkur á búðum sem auglýsa með stórum skiltum svo og svo mikinn afslátt af þvi að leggja eigi búðina niður og allt eigi að seljast. Á Manhattan eru h6 nokkrar búðir sem veifað hafa þannig skiltum i mörg ár ef ekki áratugi. Það hefur yfirleitt aldrei skaðað neinn afl flýta sér hægt fyrst í stað, meðan verið er að átta sig á almennu gangverði á hlutunum. Margur mun komast að raun um að stóru verslunarmagasinin. sem héðan sjást í dýrðarhillingum, eru alis ekki ódýr. Og vert er að muna að við allt uppgefið verð á að bæta 8% söluskatti. Kaninn gefur nefnilega upp falsað verð eins og sum fyrirtæki hér heima gera líka og endanlegt verð vöru eða þjónustu kemur ekki fram fyrr en kemur að skuldaskilum. Það er annars út í bláinn að ætla sér að kenna Islendingum að versla. Þeir hafa yfirleitt takmarkað verðskyn eins og vonlegt er, eins og sést á því að búðir hér heima þrífast hlið við hlið með aldeilis ótrúlegum verðmun á sömu vörum. Aðeins er rétt að benda fólki á að láta skynsemina ráða. Við þekkjum daemi um ungan Islending sem keypti einar 20 grammófónplötur þegar hann komst í plötubúð erlendis af því hann græddi svo mikið á hverri miðað við verð hér heima, en átti svo ekki málungi matar á eftir af því hann var búinn að græða svo mikið. Þar við má svo bæta að þótt margt sé á gjafverði í New York miðað við það sem hér tiðkast er ýmis- legt annað engu betri kaup þar en hér. Nú eftir heimkomuna höfum við séð dæmi þess að fólk búsett ytra kaupir hér eitt og annað í stórum slurkum til að> ihafa með sér heirn og græðir á því. Ég hafði líka hugsað mér að kaupa mér gallabuxur í New York, en fann þar engar á góðu verði með sniði sem ég sætti mig við eða úr efni sem mér leist á. Eftir heimkomuna keypti ég mér svo þrautprófaða íslenska framleiðslu eftir bandarísku einkaleyfi og kenndar við löngu dauðan Austurrikismánn á því nær sama verði og það sem mér þótti einna álitlegast í New York og þóttist gera bargein. Því til hvers er að kaupa fyrir gjaldeyri það sem maður fær á sama verði hér heima fyrir krónur? Sagðirðu bargein? Komdu þá með á útimarkaðina í Queens. Þangað er ferðinni heitið í næsta blaði. New Yorkarar eru duglegir afl þramma um göturnar sinar og bera mátulega mikla respekt fyrir bíla- umferflinni. En allt virflist þetta ganga áfallalaust og þann tíma sem vifl vorum þarna sáum vifl aðeins einn árekstur — og hann ómerkileg- an. 8 Vikan 5-tbl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.