Vikan - 29.01.1981, Blaðsíða 15
Framhaldssaga
tæki sem getur opnað dyrnar. Það er
bara spurning unt að vera á rétlunt tíma.
Þegar vörðurinn er bak við bankann i
eftirlitsferð sinni komast menn þinir inn.
Þegar þeir eru komnir inn þurfa þeir að
glima við dyrnar á fjárhirslunni. Sú hurð
er gerð úr sérlega hertu stáli. Þó að
unnið væri að því í heila viku og beitt
sérstökum verkfærum tækist engum svo
mikiðsem aðdælda hurðina."
Klaus hreyfði sig óþolinmóður.
..Hirtu ekki um smáatriðin." Rödd
hans var hvöss. „Hvernig kem ég niönn-
um minum inn?”
„Dyr fjárhirslunnar opnast af radd-
bylgjum." sagði ég honuni.
Hann rifaði litil augun.
„Hvaðáttu við?”
„Klukkan stundvíslega 8.30 á morgni
hverjum. nema á laugardögum og
sunnudögum. hringir einhver frá aðal ■
skrifstofunum í Los Angeles töluraðir í
sérstakan síma sem er í beinu sambandi
við bankann í Sharnville. Þannig fer
tölva í gang og opnar þrjá lása hvelf-
ingarinnar. Klukkan nákvæmlega 8.35
segir Manson aðra talnaröð í míkrófón i
skrifstofu sinni, rödd hans setur aðra
tölvu í gang og hún opnar þrjá aðra lása,
svo að dyrnar renna upp."
Klaus starði á mig og andlit hans var
svipbrigðalaust meðan hann velti þessu
fyrir sér.
„Gæti einhver sem kynni tölurnar
farið með þær i míkrófón Mansons og
þannig opnað lásana?"
„Það var það sem ég meinti með radd-
bylgjum. Röddin verður að vera rödd
Mansons eða tölvan fer ekki í gang.”
„Þú hefur verið ákaflega snjall. herra
Lucas." Rödd hans var eilítið hvöss.
„Þetta er öruggasti banki í heimi."
Hann hugsaði sig um andartak en
sagði svo: „Hvað gerist ef Manson fer í
fri eða dettur niður dauður?"
„Það er búið að sjá fyrir því. Það er til
segulbandsupptaka af rödd hans, sem
tölvan tekur góða og gilda. Ef hann fer
btirt eða eitthvað kernur fvrir liann fær
einhver umboð til að nota upptökuna.
Það þarf ekki annað en að setja kassett-
una í sérstaka, falda rifu og þá opnast
fjárgeymslan."
„Og hver er þessi einhver?"
Ég horfði beintáhann.
„Það var ákveðið að það skyldi vera
ég, þar sem ég fann upp kerfið."
Hann hallaði sér fram.
„Ert þú með kassettuna?"
„Hún er í bankanum. Ef neyðartilfelli
vcrður fer ég í bankann, næ í kassettuna
og opna lásana þrjá. Eftirmaður Man
sons lætur gera aðra kassettu. Ég breyti
tölunni þannig að hún taki rödd hans
gilda og þá erum við aftur komnir á upp-
hafsreit.”
„Það lítur út fyrir það, herra Lucas,
að bankinn treysti þér.”
„Það eru sex lásar á hvelfingunni. Ég
get ekki opnað nema þrjá. Þú gleymir
því að hinir lásarnir þrír eru opnaðir
með símtali frá aðalskrifstofunni." Ég
tók upp sígarettupakka. „Þeir trevsia
mér ekki í svona mikilli blindni."
„Hvað gerist ef þú dettur niður
dauður, herra Lucas, eða ferð í lifstíðar-
fangelsi?”
„Brannigan veit hvar kassettan er."
Hann starði á hendur sinar meðan
hann velti þessu fyrir sér. Ég kveikti mér
í sigarettu og beið.
„Mér virðist L.A.-þátturinn ætla að
verða erfiður," sagði hann.
„Þér já, en ekki mér. Ég get séð um
það. Ég get koniið mönnunt þinum inn i
fjárhirsluna, en það er allt að þvi
ógerlegt að komast undan með þýfið."
Hann yppti öxlum.
„Það er þinn hausverkur. herra
Lucas. Ég myndi ætla að þú með þina
sérfræðikunnáttu fyndir lausn í skiptum
fyrir milljón dollara og öll sönnunar
gögnin um sekt þina. sem ég hef undir
höndum.”
„Þannig að það á að neyða mig til að
sjá um allt saman?"
S. tbl. Vikan 15