Vikan - 29.01.1981, Síða 16
NÝ SENDING
Heilsubótartafflan
gefur yður ótal möguleika til notkunar, eru góðar fyrir heilsu yðar, þær
má nota heima, i sundlaugunum, 1 gufubaði, i garðinum, á ströndinm
o.s.frv
Töfflurnar eru léttar og laga sig eftir fætinum,
örva blóðrásina og auka velliðan, þola oliur og
fitu, auðvelt að þrifa þær.
Fáanlegar i 3 litum: Gult, rautt, blátt.
Stærðir nr. 35—46.
Verð kr. 1.450.
Póstsendum.
Skóverzl. Þóröar Péturssonar,
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll. Sími 14181
Laugavagi 95. Sími 13570
„Þannig liggur í því. Ég skal fjár-
magna aðgerðirnar og útvega menn til
að framkvæma verknaðinn en þin
verður áþyrgðin á ráðagerðinni."
Nú hafði ég tækifæri til að leika á
hann. Ég var búinn aðeyða fimm síðast-
liðnum nóttum í að velta því fyrir mér
hvernig ég gæti leikið á þennan mann og
ég var búinn að komast að hugsanlegri
niðurstöðu.
„Ég samþykki það með vissum skil-
yrðum."
Æðisglampinn blossaði upp i köldum.
gráum augum hans.
„Þú ert ekki í þeirri aðstöðu að þú
getir sett skilyrði!"
„Þar skjátlast þér. Þú vilt fá hefnd. af
þvi að Brannigan kom upp um þig sem
ómerkilegan fjársvikara. Þú veist að þú
kemur illa við hann ef þú tæmir fjár-
hirsluna I „öruggasta banka í heimi". Þú
hikaðir ekki við að láta myrða Marsh til
að neyða mig til að finna leið fyrir menn
þina þangað inn. Að þú skulir hafa
drepið mann gefur mér til kynna að þú
sért fastákveðinn i að lækka rostann i
Brannigan. Veiki hlekkurinn í þessari
ráðagerð þinni kann að vera sá, að þú
hafir vanmetið mig og að ég kunni að
kjósa að slanda frammi fyrir rétti, sak-
aður um morð sem ég framdi ekki. Þú
ert á skrá yfir sakamenn og lögreglan
þekkir þig. Ef þú værir ekki á sakaskrá
væri ég ekki í jafnsterkri aðstöðu og
raun er á. Ég myndi segja allt af létta
frammi fyrir rétti. Ég myndi segja
Brannigan og lögreglunni upp alla sögu.
Sú staðreynd. að ég bjargaði öruggasta
bankanurh í heimi og mannorði hans þar
með. myndi gera Brannigan mér hlið-
hollan. Ef hann beitti ofboðslegum
áhrifum sínum gæti svo farið að ég yrði
sýknaður en það leikur enginn vafi á því
að Brannigan réðist gegn þér og lögregl-
an sömuleiðis. Þú færir aflur i fangelsi."
Ég þagnaði og hélt svo áfram: „Svo þú
skalt ekki segja að ég geti engin skilyrði
sett.”
Við störðum lengi hvor á annan. Svo
kinkaði Klaus kolli og það fóru kippir
um varir hans.
„Þetta er rétt hjá þér. herra Lucas. Ég
sé að ég hef vanmetið þig. Hvaða skil-
yrði seturðu?”
Ég gætti þess að breyta ekki um svip
en fann þó sigurhrósið fara um mig er ég
sá að mér myndi takast að leika á hann.
Ég hallaði mér fram og drap í sigarett-
unni.
„Þú segist ætla að borga mér milljón
dollara. Ímyndarðu þér að ég sé svo vit-
laus að taka orð þín fyrir því? Heldurðu
að ég viti ekki að um leið og menn þínir
eru komnir inn í fjárhvelfinguna og ég er
búinn að sýna þeim hvernig þeir komast
'v \
..%
' 's
4\rnaud Sa/Á\/j
SIIÍI'MRTIISTOFB
VESTURGÖTIJ 39 — SÍMI 16508
Andlitsbad — Húðhreinsun — Augn-
háralitun — Vaxmeðhöndlun fvrir
andlit ogfætur.
Vöðvastyrking — Bakhreinsun
Hand- og fótsnyrting — Samkvæmis-
snyrting
Leitið ekki langt yfir skammt.
Vinsamlegast pantið tíma ísíma: 16508
Verið velkomin.
GRÓA PÉTURSDÓTTIR ÞÓRDÍS BJORNSDÓTTIR
Snvrtifræðingur Snvrtifræðingur
Heimasími 83549 Heimasími 16769
Erum meðlimir í Eélagi islenskra snyrtifræðinga.
16 Vikan S.tbl.