Vikan - 29.01.1981, Page 22
Texti: Þórey Ljósm.: Ragnar Th
M ikið er á sig lagt til að öðlast
hina eftirsóttu líkamlegu fegurð.
Hér fyrr á öldum þekktist það
meðal heldra fólks að konur báru
svokallaö belladonna í augun. Við
það víkkuöu sjáöldrin og augun
virtust stærri og fegurri. Sá var
galli á gjöf Njarðar að um leið og
sjáöldrin víkkuðu dapraðist sjón-
in og konugreyin stauluðust um
hálfblindar. En hvað gerði það
til?
Dæmi um hjálpartæki i sögu
kvenlegrar fegurðar eru reyrð
lífstykki, krínólín, tíu hæða hár-
kollur, mjóir pinnahælar, þröngir
skór og þannig má lengi telja.
Flest þessi pyndingartól heyra
fortíðinni til. Nýjasta tækni og
vísindi hafa á hinn bóginn haft
sín áhrif á þessu sviði sem
öðrum. Snyrtistofurnar eru sem
óðast að vígbúast nýjustu
rafmagnstækjum í viðureigninni
við óvini fegurðarinnar. Eitt
slíkra tækja er svonefnd djúp
hreinsivél. Hún hefur verið í
notkun erlendis um nokkurt
skeið en hefur litið sem ekkert
verið kynnt hérlendis. Eins og
nafnið bendir til er tækinu beitt
við hreinsun húðar. Við hreins-
unina er notaður galvanískur
rafstraumur. í stuttu máli er
aðferðin sú að á húðina er borin
basísk lausn. Eigandi húðarinnar
heldur á jákvæðu rafskauti en
neikvætt rafskaut (það virka) er
borið við húðina. Straumurinn
þrengir lausninni djúpt ofan í
húðina. (basíska lausnin dregst
að jákvæða rafskautinu). Blóðrás
örvast og húðop víkka. Hreins-
unin er tvíþætt. Annars vegar
virkar basíska lausnin eins og
sápa í fljótandi formi. Hún losar
um og mýkir fituna sem oft situr
þykk og hörðnuð í húöopunum og
skolar henni út. Hins vegar
auðveldar þetta venjulega hreins-
un með efnum og „kreistingu".
Að hreinsun lokinni er skipt um
virkt rafskaut. Gagnverkandi
straumur dregur saman húðop og
letur blóðrás.
Þessi aöferð hentar bæði þurri
og feitri húð. Kostirnir eru þeir
að húðin opnast miklu betur en
með nokkurri annarri aðferð.
Hreinsiefni og næring ná þannig
dýpra inri í húðina. Þroti og roði í
húð að lokinni hreinsun er hverf-
andi. Aðferðin er algjörlega
sársauka- og hættulaus.
Galvaniskur rafstraumur og
hátíðnibylgjur eru einnig notaðar
í því skyni að auðvelda næringu
og mýkjandi efnum leið inn í
húðina Húðin er síöan nudduö
eins og í venjulegu andlitsbaði og
loks settur mýkjandi maski á
húöina. Þessi meðferð hjálpar
húðinni að halda betur sinum
náttúrlega raka og mýkir hana,
en þurr húð er einmitt eitt al-
igengasta húövandamál hér á
landi. Nauðsynlegt er að taka
Hér gefur afl Hta Kötka Ólafsdóttur fyrir og aftir afl gerviaugnhérin voru þrndd ó. Augnahéra ésetning
kostar 11&-130 kr. hjé snyrtistofunni Ásýnd og endist 4-6 vikur.
Tæknin í þjón-
ustu fegurðar
22 Vikan 5. tbl.