Vikan - 29.01.1981, Qupperneq 31
Plakatið
SUZI QUATRO
leggur nú alla
áherslu á
Bandaríkja
markað
Söngkonan og bassaleikarinn
Suzi Quatro er bandarísk, en
hefur ávallt átt mestu fylgi að
fagna í Evrópu. Nú er hún
samt að vonast til að geta lagt
föðurlandið að fótum sér. LP
plata hennar Rock Hard var
I tekin þar upp síðastliðið
haust. Þá kemur Suzi einnig
fram á tvöfaldri plötu, sem
nefnist Times Square og hefur
að geyma tónlistina úr
samnefndri kvikmynd.
Upptökustjóri og aðallaga-
höfundur Suzi og hljómsveitar
hennar er Mike Chapman.
Hann gerði garðinn frægan í
Evrópu í mörg ár, en flutti
fyrir nokkru til Banda-
ríkjanna. Þar hefur honum
vegnað mjög vel. Meðal
annars sér hann um alla stjórn
á plötunum hjá hljómsveitinni
Blondie. Chapman ætti því að
vera farinn að átta sig á því,
hvað hentar Bandaríkjamönn-
um best.
Suzi Quatro varð þrítug í
júnímánuði á síðasta ári. Hún
er fædd í Detroit og er yngst
fimm systkina. Faðir þeirra,
Art Quatro, stjórnar jasstríói
og systkinin fengu öll að
Suzi Quatro er með
eindæmum l'rfleg á
sviði. Hér áður fyrr
var hún jafnan klædd
leðurfatnaði frá toppi
til táar, en eftir að
pönkarar og nýbylgju-
menn tóku að
klæðast leðri skipti
hún um.
spreyta sig þar. Til dæmis lék
Suzi á unga aldri á trommur,
píanó og gítar. Fjórtán ára
stakk hún af frá skólanámi,
tók að kalla sjálfa sig Suzi
Soul og stofnaði rokkhljóm-
sveitina Pleasure Seekers með
systrum sínum Patti, Nancy
og Arlene.
Pleasure Seekers léku víða
um Bandarikin, en þar kom
að nafninu var breytt í
Cradle. Undir því nafni fóru
systurnar til Viet Nam og
skemmtu bandarískum
hermönnum þar. Einhverju
sinni sem þær héldu hljóm-
leika í Ðetroit heyrði enski
plötuútgefandinn og upptöku-
stjórinn Mickie Most í þeim.
Hann féll alveg fyrir Suzi og
bauð henni plötusamning í
Englandi.
Fyrsta plata Suzi Quatro á
Englandsmarkaði nefndist
Rolling Stone. Hún hlaut
slæmar undirtektir. Þá var
það að Mickie Most kvaddi til
Mike Chapman og félaga hans
Nicky Chinn (þeir eiga hljóm-
plötufyrirtækið Dreamland
sem gefur nú út plötur Suzi).
Skemmst er frá því að segja
að frami Suzi varð skjótur
eftir að Chapman og Chinn
tóku við. Þeir sem hlustuðu á
enskt popp fyrir sjö til tíu
árum kannast áreiðan-
lega við lögin Can The Can,
48 Carsh, Daytona Demon,
Devil Gate Drive og The Wild
One frá þessum tíma.
Um tíma hætti Suzi að
syngja lög eftir Chinn og
Chapman. Ekki var að sökum
að spyrja að salan á lögum
hennar hraðminnkaði, svo að
hún kom aftur til baka. Suzi
er hvað vinsælust á megin-
landi Evrópu um þessar
mundir. Einnig nýtur hún
mikils fylgis meðal táninga í
Japan, Ástralíu og víðar. Ekki
er hún alveg óþekkt nafn á
bandarískum vinsældalistum.Til
dæmis varð lagið Stumblin’ In
með henni og Chris Norman
mjög vinsælt þar fyrir i m
nokkrum árum. 1"
5. tbl. Vikan 31