Vikan - 29.01.1981, Síða 36
Fimm mínútur með Willy Breinholst
Skynsamlegar
ráðstafanir
Það er virðingarvert þegar
ungt fólk er fyrirhyggjusamt.
Það láist ungu fólki oft nú á
dögum. Þetta á þó ekki við
Henrik, þann sem þessi saga
fjallar um. Hann sá það í hendi
sér að ekki var mikil framtíð í
þessu dauðleiðinlega, ótrúlega
vanmetna skrifstofustarfi sem
hann var í og sem hann hafði
verið dæmdur til að halda
áfram um ófyrirsjáanlega
framtíð ef hann hefði ekki
tekið í taumana og gert ýmsar
ráðstafanir sem gátu breytt
stöðu hans verulega.
En það var einmitt það sem
hann gerði og við færum okkur
aftur í tímann til þeirrar stund-
ar þegar einkaritari Multi-
bergs, forstjóra stóra iðn-
fyrirtækisins, lokar dyrum
einkaskrifstofunnar á eftir
Henriki. Iðnjöfurinn leit upp
og pírði augun á Henrik.
— Hana, réttið úr yður!
skipaði hann hvössum rómi.
Hann var gömul stríðskempa
og það loddi alltaf eitthvað
hermannlegt í fasi hans frá þvi í
gamla daga. Henrik stillti sér
upp í réttstöðu til að gefa til
kynna að hann hefði meðtekið
boðin.
— Nafn? hélt iðnjöfurinn
áfram stuttur í spuna.
— Henrik . . . Henrik
Andersen.
— Aldur?
— 24.
— Staða?
— Skrifstofublók.
— Hvar?
— Hjá þessu fyrirtæki. Ég
vinn í rekstrardeildinni.
— Þér komið hér og ónáðið
mig og segist vera í áríðandi
erindagerðum. Út með það! En
í öllum bænum verið stutt-
orður. -Hvað er yður á
höndum?
Henrik kom einu skrefi
nær.
— Ég vildi gjarnan biðja for-
stjórann um hönd dóttur hans!
Multiberg iðnjöfur rauk upp
úr sæti sínu.
— Hvað meinið þér,
maður? Kvænast dóttur
minni? Eruð þér bandsjóðandi
bullhvínandi vitlaus, maður
minn? Hvaða framtíðarmögu-
leika eigið þér?
Henrik sté einu skrefi nær.
— Ja, sem stendur er ég
reyndar aðeins venjuleg skrif-
stofublók en ég hef góða von
um að komast í góða stöðu hér
i fyrirtækinu á methraða. Þökk
sé ýmsum ráðstöfunum sem ég
hef gert, get ég treyst þvi að
eiga örugga framtið fyrir hönd-
um í starfi mínu, og frama sem
er utan og ofan við björtustu
vonir manns. Eg á von á að
verða boðin staða aðstoðarfor-
stjóra þegar herra Eriksson
gerist forstjóri útibúsins í Hong
Kong.
Multiberg forstjóri vissi
varla hvað hann átti að segja.
Andartak sat hann og klóraði
sér í hökuskarðinu með
gullsjálfblekungnum sínum —
til að vinna tima. í sannleika
sagt! Hvílík óskammfeilni, það
varð að minnsta kosti ekki af
ungu kynslóðinni skafið.
— Aðstoðarforstjóri! sagði
hann, ekki nema það þó. Ég
hef aldrei á ævinni heyrt annað
eins. Að koma hingað og bjóða
Stjörnuspá
llnilurimi 2l.mar\ 20.a iril
Þér.verður falið að gera
meira en þú ættir að
taka að þér á næstunni.
Þess vegna væri hyggi
legt fyrir þig að reyna
að Ijúka sem flestu nú,
þvi hætt er við að þú
takir flest að þér.
Nákominn ættingi fjar
lægist þig nokkuð.
Ovænt atvik valda þvi
að þú þarft að endur-
skipuleggja áætlanir
þínar að verulegu leyti.
Reyndu að stilla þig um
að vera fljótfær, eins og
vogum hættir til. Sam
vinna getur verið til
góðs ef þú velur þér rétt
samstarfsfólk.
N.-iuliA 21.npríl 2l.m;ii
Þú hefur fengið margar
nýjar hugmyndir að
undanförnu. Hins vegar
hefur þú ekki fengið
tækifæri til að nýta þær
sem skyldi.
Þú ættir á hinn bóginn
að halda öllu góðu um
sinn þó þinir nánustu
reyni nokkuð á þig.
Sponlilrckinn 24.okl. 2.Vnó\.
Þú verður fyrir
gagnrýni úr óvæntri átt.
Þó þú finnir að hún er
að hluta mjög ósann-
gjörn eru viss atriði sem
þú ættir að gefa nánari
gaum. Félagslif verður
blómlegra i kringum þig
þessa viku en oft áður
og þú kannt því vel.
T\ihur;irnir 22.mai 2l.júni
Eitthvað sem þér þykir
miður skemmtilegt
verður rifjað upp að þér
viðstöddum fljótlega.
Miklu varðar að þú
skiljir að þetta mál
kemur þér ekkert við.
því of mikið kjaftæði
getur komið öðrum I
koll.
Hoijmtióuriim 24.nó\. 21.dcs
Þér er Ijúft að axla þá
ábyrgð sem þér er
ætluð.
Ferskar hugmyndir og
skemmtilegur félags-
skapur mun setja
óvenju skemmtilegan
svip á þessa viku. Hætt
er við að þú gleymir
skilaboðum.
kr.'hhinn 22.júni 2.4. juli
Smávægileg óþægindi
og tafir munu fara mjög
i taugarnar á þér þessa
viku. Þessi afstaða
plánetanna verður ekki
lengi og ólíklegt að þú
verðir hrakfallabálkur til
lengri tinia. Breytingar
á högum þínum verða
állar til góðs.
Sicinöcilin 22.dcs. 20. jan.
Þú þarft að taka á
honum stóra þinunt til
að reiðast ekki illa.
Hyggilegast er að reyna
að stilla reiðina þvi að
nokkru leyti getur verið
um misskilning að ræða
Reyndu að afla þér
upplýsinga og leiðrétta
allt sem miður fer.
I. jónii') 24. juIi 24. ;igú*t
Sumir þeir sem þú hefur
mest saman við að
sælda munu snúa við
þér baki vegna ósann-
gjarns söguburðar ef þú
ert ekki vel á verði. Þér
er alveg óhætt að segja
sannleikann því hann
skaðar þig ekkert.
\;ilnshcrinn 21.j;an. I*>.fchr.
Þó þessi vika geti orðið
tíðindasnauðá yfirborð
inu má vera að hún
verði þér hugstæðsiðar.
Ákvarðanir sem varða
allt lífið kunna að verða
teknar. Þú ættir að fara
varlega í samskiptum
við eldra fólk og einnig
það sem er mjög ungt.
\lc> jan 24-;ál*úsl 2.Vscpl.
ÝmÍ9legt hefur gengið
þér i haginn að undan-
förnu og ef þú vinnur
vel að málum er liklegt
að svo verði áfram.
Hins vegar þarft þú að
hafa meira fyrir þvi en
áður. Nýtt fólk kemur
til með að hafa mikil
áhrif á þig.
Fiskarnir 20.fcbr. 20.mars
Þreyta og óþolinmæði
setja svip sinn á þessa
viku. Þú munt finna
eitthvað sem.: getur
orðið þér til mikils
happs I fjármálum. í
einkalífinu skaltu gera
sem minnst því hætta er
á vixlspori og betri tirnar
eru mjög skammtundan.
36 Víkan 5. tbl.