Vikan


Vikan - 29.01.1981, Page 38

Vikan - 29.01.1981, Page 38
Nú í dag hafa hellarnir verið yfirgefnir og kirkjurnar eru lokaðar. Undir stóru hellal'iöllununi eru tvrknesk fwrp og smáborgir. Suma hellana nota [xtrps- búar til geymslu eða þá sem asnahús; aðrir eru mannabústaðir með venju- legum framhliðum húsa. Fyrir einum áratug fundu nokkrir smádrengir óþekktan helli. Við nánari rannsókn kom í Ijós að hann var heil byggð af firnastærð. Flann er sextán íbúðahæðir — loftgöngin teygja sig 120 metra niður í jörðina! Einu sinni var þarna heil neðanjarðarborg með rými fyrir sextán þúsund íbúa. Fjórar neðanjarðarborgir hafa fundist síðan en ekki er búið að grala þær upp að fullu. Saga hclla- ríkisins er kynleg frásögn um harmsögu- legar aldir, um stríð og hörmungar, en einnig ótrúlegar hetjudáðir. Þegar menn ganga um þennan kynlega bæ komast þeir ekki hjá að hugsa um þá sem forðum bjuggu hér. Sjá fyrir sér það líf er þar var lifað; manneskjur sem keifa áfram eftir öng- strætum, svefnhella fulla af hjalandi börnum, öldunga og gamlar konur við vinþrúgurnar, finna þef af mat og súru víni. Þeir sjá prest, sem messar i kirkju- hellinum, og syrgjandi söfnuð. Fólk sem ber sandpoka frá nýhöggnum hellunum upp að útgöngudyrum. Borg sem metur félagslund og þar sem halda varð strangar umferðarreglur i þröngunt götunum. Nú erum við komin á enda, segir leiðsögumaðurinn. Viðstöndum frammi fyrir snarbröttum hamravegg. Leiðsögu maður leiðir okkur inn meðfram smá- kjarri og áfram inn í jarðgöng. Til að byrja með heldur hann á byssu í annarri hendinni og vasaljósi í hinni, á eflir honum fer klyfjaður múlasni hans. þá Fwat, túlkurinn okkar. Dauft Ijósið frá munnanum hverfur fljótt, göngin liggja lengra og lengra inn í fjallið. Þau þrengjast og lækka. Að lokum verður jafnvel múlasninn að lúta. Sesam opnast þú Allt í einu taka göngin enda. Við stöndum í keng mörg hundruð metra inni i fjallinu, í blindgötu. Leiðsögu- maðurinn muldrar óánægður. Bíðið hér, segir hann og hverfur með vasa- Ijósið aftur að útganginum. Við bíðum heila eilífð í köldu myrkrinu. Múlasninn er rólegur — hann hefur beðið hér áður — svo að okkur tekst að halda óróanum í skefjum. Að lokum heyrum við hljóð. Það berg- málar. Veggurinn ler að hrevfast. hann er þá hurð sem renna má til hliðar. Flinum megin stendur öldungurinn i upplýstum helli. — Þið eruð sjálfsagt þrevtl. segir hann. Þið getið sofið þarna. Hann bendir á op i hellisveggnum áður en hann hverfur i annaðskipti. Mosaklæddur hellir fyrir þann sem þreyttur er Olíulampi lýsir upp hellinn. — Þarna er svefnherbergið, segir Fwat og bendir á op, sem minnir á glugga, á hellisveggnunt. Þar l'vrir innan er hlýlegt litið herbergi með þykkar mottur á gólfi. kodda og dýnur. Á veggjum og i lofti eru teppi með fallegu mynstri. Á hvers konar merkisstað hefur Fwat leitt okkur? Dálítið kynlegur kvistur, Fwat. — Ég skal sýna ykkur fallegan stað. sagði hann. Og nú sitjum við inni í fjalli í Litlu-Asíu, i mottuklæddum helli. Fwat hlær. — Bíðið þangað til á morgun. Þá getið þið sjálf séð. Tveggja daga ferð Ferðin hefur verið þreytandi. I tvo daga höfum við farið um grýtt landslag. Fyrst fórum viðeftir öðrum bakka Kizil lrmak um Soganidalinn, þá óðum við yfir fljótið og klifum brattann. Við héldum áfram í áttina til Topaz Dags. tindar hans eru snævi þaktir, upp og niður um þrengslin. Fæturnir eru þungir sem blý. Fwat er grútsyfjaður og býður góða Tvö þúsund ár undir jörðinni nótt. 'i^psar hugsanir sækja á. Það býr þá hérna fólk, hér heyrist mannamál. Hvað hefst það að hér? Hvað er þessi hellir stór? Er hann stór? Er hann amerískt eldflaugahreiður? Þá hefðum við ekki fengið að koma hingað... Ef til vill falinn skæruliðabústaður? Fallegar litlar ibúðir Morguninn eftir fáum við verð í rúmið. Stúlka með langar. svartar fléttur ber fram brauð. olifur og ost. Hún sest hjá okkur og hellir í teglösin okkar. Leiðsögumaðurinn sækir okkur og fer með okkur inn í hellisgöngin, sem minna á völundarhús. Frá kringlótta hellinum. í miðju Tyrklandi, milli borganna Kayseri og Aksaray er merkilegt landslag. Regn og vindar hafa meitlað ævintýralegar myndir í mjúkan sandsteininn, sykur- toppafjöll, súlnaskóga, fellingalöguð brengsli, rósrauð og skjallhvít og allt þar á milli. Fjöllin og þrengslin eru sundurgrafin af hellum sem hafa ekki aðeins að geyma mannabústaði, heldur um leið klaustur og kirkjur. Mótmælendasamfélag — einstæð hellaborg Súlnafjallið. Við ævafoma hella var a»ar byggl Það má sjá venjulega húsframhlið. Sumir hellarnir eru notaðir sem birgðageymslur og aðrir sem gripahús. 38 Vikan S.tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.