Vikan - 29.01.1981, Síða 51
Draumar
Þrjú egg og
gifting
Kæri draumráðandi!
Fyrir nokkru dreymdi mig
tvo eftirfarandi drauma sem
ég vona að þú getir ráðið fyrir
tnig. Hér kemur sá fyrri: Mér
fannst ég standa við hátt borð
og á því lágu þrjú egg sem mér
fannst ég eiga. Tvö þeirra voru
sérlega falleg, hvít og slétt. en
það þriðja var stærra, allt
hrukkótt og útmakað af
hænsnaskít. Mér fannst ég
legg/a Ijóta eggið til hliðar því
ég vildi það ekki, það var svo
Ijótt. Mér fannst ég taka annað
fallega eggið og brjóta það. Ég
varð fyrir sárum vonbrigðum
því það innihélt bara hvítuna.
Eg tók hitt og það fór á sömu
leið, eingöngu hvítan. Ég var
lengi að hugsa mig um þar til
ég tók Ijóta eggið og braut það.
bar í voru þrjár fallegar eggja-
rauður og ég man að ég varö
mjög hissa.
Hinn draumurinn var
þannig: Mér fannst ég standa
fyrir framan stóran sérlega
fallegan spegil I útskornum
ramma og ég var I brúðarkjól.
Kjóllinn var hvítur og ég hafði
aldrei séð svona fallegan kjól,
allan I blúndum, og ég var með
langt slör. Það stóðu þrjár
saumakonur I kringum mig og
voru að laga kjólinn, mæla
slörið upp og gera hann sem
fallegastan. Maðurinn sem ég
átti að giftast var enginn annar
en Kristján Eldjárn! Mér
fannst þetta fáránleg tilhugsun.
Klér fannst hann vera svo
valdamikill um allan heim og
þar að auki svona miklu eldri
en ég. (Eg er rétt 21 árs.) Mér
fannst ég líta I spegilinn og fara
að snökta. Þá fannst mér
móðir mín (Á) leggja handlegg-
inn á öxl mér og segja að þetta
yrði allt I lagi. 1 því er stór
útskorin hurð opnuð og
Kristján gengur inn. Mér
fannst hann vera dökkur I
andliti með stóran hvítan blett
á neftnu. Eg fór að hágráta og
þá rétti hann mér fallegan
blómvönd. Eg vaknaði hágrát-
andi.
Með fyrirfram þökk.
ÁSA
Báðir draumarnir eru skemmti-
lega skýrir og táknrænir þó erfitt
geti verið að segja um hvað þeir
boða nákvæmlega. Að dreyma
egg er yfirleitt alltaf fyrir ein-
hverju í sambandi við ástamál,
vini eða fjölskyldu, sumir segja
þó fyrir peningum. Heil og
óskemmd egg eru talin fyrir
góðu en fúl egg fyrir fölskum
vinum. Fallegu eggin tvö eru
fyrir vonbrigðum, hið þriðja og
ljóta merkir uppfyllingu óska
þinna. Ekki treystir draum-
ráðandi sér til að segja af um
hvort eggin tákni ástarsambönd
en þó er það ekki ólíklegt. 1
þessum draumi felst ábending til
þín um að ekki sé allt sem sýnist
og ber þér að fara varlega i
dómum þínum um aðra.
Nokkuð svipað felst í seinni
draumnum, það er ábending ti)
þín um að flana ekki að neinu og
að oft fer öðruvísi en ætlað er.
Bæði spegillinn og hurðin tákna
ókomna tíð. Grátur í draumi er
alltaf fyrir góðu. Brúðkaupið
sem bíður þín í draumnum svo
og hinn sérstæði brúðgumi boða
að þú standir brátt á tímamótum
í lífi þínu og þurfir að taka
ákvörðun um eitthvað sem
leggur þér ábyrgð á herðar en
færir þér engu að' síður mikla
gæfu. Blómvöndurinn er gæfu-
merki, en sem fyrr sagði er ekki
hægt að segja hvort þetta á við
ástamálin eða eitthvað annað.
Ljúfur draumur
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að
ráðafyrir mig draum sem
mig dreymdi nýlega og er á
þessa leið.
Mér fannst vera kvöld og
klukkan vera svona milli 9 og
10. Eg vissi að strákur (ég kalla
hann X) sem ég þekki og er
pínulítið hrifin afvarað vinna.
Hann vinnur I trésmiðju. Eg
fékk lánaðan bílinn hjá pabba
og fór út. Eg stoppaði fyrir
utan sjoppu og fór inn (I
rauninni er engin sjoppa
þarna). Eg keypti mér gos-
flöskur og fór svo út. Þegar ég
kom út sá ég að það var búið
að leggja vörubíl fyrir aftan
mig. Þessi bíll var frá trésmiðj-
unni sem X vinnur I og var
hlaðinn timbri. Eg var að furða
mig á hvers vegna ég sá hann
ekki. Það var pottþétt að hann
væri á bílnum þó ég hefði ekki
séð hann. Þegar ég kom inn I
bílinn var X þar og hafði falið
sig þar til að koma mér á
óvart. Hann var I mjög góðu
skapi og virtist vera glaður vflr
að sjá mig. Sjálf var ég ofsalega
ánægð en það var eins og ég
væri hálftreg tilað sýna það.
X bað mig að keyra sig niður I
vinnu. Eg var ekkert hissa þó
hann væri að biðja mig um far
þó hann væri sjálfur á bíl.
Þegar við komum I smiðjuna
kvssti X mig ogspurði hvort ég
nennti að keyra hann heim.
Mér fannst það sjálfsagt og X
œtlaði aðeins að hlaupa inn og
áður en hann fór út sagði hann
að ég væri perla. Eg beið á
meðan og var ofsalega glöð yflr
því sem hann sagði en var
samt að pæla í hvort hann
meinti þetta. X kom út og með
honum þrír menn sem hann
bað mig að keyra heim líka.
Mér sárnaði því nú hélt ég að
hann væri bara að notfæra sér
mig til að keyra þá heim en
trúði því samt varla því hann
var svo innilegur þegar hann
talaði við mig og viðmót hans
hafði ekki breyst frá því fyrst.
Ég keyrði einn mannanna
heim. Mér fannst einhvern
veginn að við X værum bara
tvö I bílnum jafnve! þó hinir
væru þar ennþá. Ef það skiptir
einhverju máli þá bað X um að
vera keyrður síðastur heim.
Með þökk fyrir ráðninguna
og ágætt blað.
S. N.
Þetta er allljúfur draumur og
ekki laust við að hann beri vott
um óskhyggju. Draumar af
þessu tagi eru oft lítt marktækir
vegna þess hve nátengdir þeir
eru hugsunum í vökunni og eru
nánast dagdraumar. Á hinn
bóginn má segja það að bjart er
yfir þessum draumi og ekki
óliklegt að þú og strákurinn X
eigið eftir að hafa sitthvað af
hvort öðru að segja í náinni
framtíð.
Skop
He.vrðu elskan, það er spurt eftir
Jósep Sveinssyni. Ert þú hann?
Ég veit að þú lætur mig fá riflega
eyðslupeninga Siggi. En þú vinnur
svo mikið aftur I póker . . .
5. tbl. Vikan 51