Vikan - 29.01.1981, Page 62
Er aö skrifa bók
Kæri Póstur.
Þannig er mál með vexti að
ég er að skrifa bók en vanda-
málið er hvað ég á að gera við
hana. Mig langar að lála gefa
hana út eða að minnsta kosti
fá einhvern til aö IIta á hana.
Hvert á ég að leita? Ég vil
skrifa undir dulnefni. Þú gætir
nú. Póstur góður. kannski birt
auglýsingu og ef einhver bóka-
Leiðrétting:
í 2. tbl. þessa árs er sagt frá
lögregluþjónum sem voru að
Ijúka fyrri áfanga lögreglu-
skólans. Eitt nafn var þar
mishermt. Maðurinn hér í
ræðustólnum heitir Reynir
Ragnarsson. og er frá Vík í
Mýrdal, eins og áður er getið.
Við biðjum hlutaðeigandi
velvirðingar á þessum
mistökum.
Leiðrétting:
útgefandi hefði áhuga á því að
kíkja á söguna látið hann hafa
nafn mitt og heimUisfang. Ég
er 13 ára. Ekki segja mér að
bíða þar til ég verði eldri. Og
svo kemur hin sígilda spurning:
Hvað lestu úr skriftinni?
Ein sem langar að
verða rithöfundur
Bókaútgefendur eru yfirleitt
önnum kafnir og alls ekki víst
hvort þeir fást til að lesa
eitthvað sem þeir hafa ekki
fyrirfram hugmynd um hvað
er. Sennilega væri best fyrir þig
að velja nokkra þeirra úr (til
dæmis eftir símaskránni) og
senda þeim bréf, þar sem þú
skýrir frá fyrirætlunum þínum
og efni sögunnar í stórum
dráttum og spyrð hvort þeir
myndu hugsanlega vilja sinna
þér. Annars hlýtur þú að geta
fundið einhvern ráðgjafa heima
hjá þér eða i grenndinni, til
dæmis einhvern kennarann í
skólanum. Kennarar eru oft
hjálplegri og vinsamlegri en
margan nemandann grunar. En
þú ættir að endurskoða þá
ákvörðun þína að vilja skrifa
undir dulnefni. Þau duttu úr
tísku fyrir mörgum árum. Þá
endurskoðun að minnsta kosti
ættir þú alls ekki að bíða með
þangað til þú verður eldri.
Skriftin þín segir mér að þú
sért drjúg með þig en reynir að
bæla það niður eftir bestu getu.
Þú veist sjálf hvað þú ert klár
og sniðug en reynir að segja
það ekki beint heldur láta
öðrum eftir að uppgötva það.
Þú ert stíflynd og ákveðin og
mátt passa þig á að verða ekki
skass með aldrinum.
Ein í vanda
Kæri Póstur!
Ég er hérna I vandræðum.
Ég er voðalega hrifm af strák
sem er svolítið eldri en ég.
Þannig er mál með vexti að
það var á diskóteki I skólanum
í hausl að ég fór til stráksins og
bauð honum upp og hann
sagði já. Svo hef ég oft verið
að revna við hann I frímínút-
um. Hann vill alveg hlusta á en
hann fer bara svo voöalega hjá
sér. Ég hef oft farið til hans á
kvöldin. Én hann bara fer svo
í 1. tbl. 1981 birtist uppskrift
að svefnpoka í barnavagninn.
Svo óheppilega vildi til að
mynsturteikning féll niður og
birtist hún hér með. Við
biðjumst innilega afsökunar.
hjá sér. Hvað á ég að gera? Eg
vona að Helga sé södd og líka
þó þetta bréf verði birt.
Bæ. bæ.
Ein á R.
Pósturinn telur Ijóst mál að
strákurinn er eitthvað veikur
fyrir þér fyrst að hann fer svona
hjá sér. Það eina sem þú getur
gert í málinu að svo stöddu er
að halda áfram að reyna við
hann. Þú verður að sýna
honum fyllstu nærgætni svo að
hann verði ekki hreinlega
hræddur við þig og hlaupi burt.
En vertu samt ákveðin.
Honum líður sjálfsagt mjög illa
út af því hve hann er feiminn
og þiggur örugglega hjálpina
ef þú ferð fínt í sakirnar.
Unglingabólurn-
ar, kvikmynda-
gerð og Bo
Derek
Kæri Póstur!
Þú þarft ekki að birta þetta
bréf I dálkinum þínum í
Vikunni, en viltu vera svo
vænn að svara þessu bréfi. Og
hér koma spurningarnar.
1. Hvernig fer ég að því að
losna við unglingabólurnar á
enninu? Eg get ekki hætt að
kroppa I þær. Ég get alls ekki
greitt hárið frá enninu til að
láta sólina skína á bólurnar.
2. Getur þú útskýrt fyrir mér
hvernig maður fer að því að
skrifa handrit að kvikmynd?
Gerðu það eins nákvæmlega og
þú getur. Ef þú getur þetta
ekki. getur þú þá bent mér á
einhvern mann hér á íslandi
sem getur frætt mig um þetta?
3. Éru einhverjar bœkur til á
íslensku fyrir ferðamenn um
Kaliforníu og Kentucky? Ef
þær eru til, hvaða heita þær og
hvar fást þær?
4. Getið þið á Vikunni ekki
fækkað framhaldssögunum og
smásögum en I staðinn haft
þætti um frægt fólk, t.d.
Sophiu Loren, Roger Moore,
Barböru Bach, Bo Derek. Burt
Reynolds, Marilyn Monroe og
fleiri.
Þakka þérfvrir.
H
P.S. Hvenær fæddist Bo
Derek? Er hættulegt að þvo
hárið á hverjum degi ef maður
notar milt sjampó?
Unglingabólurnar leiðinlegu eru
mörgum vandamál. Yfirleitt er
þetta aðeins tímabundið og lag-
ast með árunum. Mikilvægt er
að hreinsa húðina vel. í snyrti-
vöru- og lyfjabúðum fást ýmis
efni sem ætlað er að bera á bólur
og feita húð. Vertu óhræddur
við að leita þar upplýsinga.
Mataræðið skiptir einnig miklu
máli í þessum efnum. Þeir sem
þjást af bólum ættu að forðast
feitan mat, kökur, sælgæti og
gosdrykki (að minnsta kosti
neyta jxssa í hófi). Forðast ber
eftir megni að kreista bólurnar
með eigin höndum en ef þess
gerist þörf er ágætt að fara á
snyrtistofu (þangað leita bæði
konur og karlar). Vendu þig af
því að kroppa bólurnar sí og æ.
Það gerir illt verra og getur skilið
eftir sig ör.
Þvi miður hefur Pósturinn
fremur litla reynslu í samningu
kvikmyndahandrita. Til þess að
geta samið nothæft handrit þarf
maður nokkra þekkingu á
möguleikum kvikmyndavélar-
innar og skilning á hinum ýmsu
sviðum kvikmyndagerðar.
Æskulýðsráð Reykjavíkur hefur
í samráði við grunnskólana í
borginni boðið upp á námskeið í
kvikmyndagerð. Athugaðu
hvort þannig námskeið stendur
til boða í þínum skóla. Hér á
landi eru margir ágætir
kvikmyndagerðarmenn sem ef
til vill gætu gefið þér upplýsing-
ar, til dæmis Ágúst Guðmunds-
son, Hrafn Gunnlaugsson.
Þorsteinn Jónsson og fleiri. Ekki
þorir Pósturinn að lofa neinu en
líklega skaðar ekkert að reyna
að ná tali af þeim.
Ekki er um auðugan garð að
gresja hvað snertir bækur á
íslensku um Bandaríkin. „Á
langferðaleiðum” eftir
Guðmund Daníelsson kom út
1947 og „Bandaríkin — Land
og lýður” kom út á vegum
Menningarsjóðs 1954. Báðar
þessar bækur eru til á Borgar-
bókasafninu í Reykjavík.
Það eru nú skiptar skoðanir
um það eins og annað hvort
fækka eigi framhaldssögum og
62 Víkan 5. tbl.