Vikan - 29.10.1981, Page 10
Texti: Guðfinna Eydal
t V v SH°
Skólamál hafa verið talsvert til
umræðu á undanförnum mánuðum.
Menn hafa meðal annars rætt um skóla-
starfið og mikilvægi þess að foreldrar
kynntust sem best hvernig lífi barna i
skólum sé háttað. Það má fagna því að
skólamenn reyni að kynna foreldrum
vinnustað barna sinna þar sem mikill
hluti af lífi barna eftir sex ára aldur fer
einmitt fram innan veggja skólans.
Líðan barna í skóla og reynsla þeirra af
skólastarfi hefur oft úrslitaáhrif á
framtið bama og hvemig þeim vegnar I
lífinu. Margir öðlast jákvæða reynslu af
skóla en margir fá einnig neikvæða
afstöðu til alls sem heitir skóli. Slík
neikvæð viðhorf geta erfst frá foreldrum
til barna og endurtekið sig kynslóð eftir
kynslóð.
Margir reyna sína fyrstu ósigra I
skóla, bæði I námi og félagslega. Oft
hefur sú gagnrýni komið fram að aðal-
áherslan I skólastarfi sé á námslega þátt-
inn en andlegri liðan og félagslegri
aðlögun sé ekki nægjanlega sinnt.
Vitað er að margir nemendur eru
beittir andlegu ofbeldi af hendi félaga
sinna. Þeir nemendur sem verða fyrir
slíku eru oft mjög neikvæðir gagnvart
skóla og foreldrar þeirra eiga einnig oft
erfitt með að skilja af hverju hræðsla og
neikvæði barnanna stafar.
0
Hvað er ofbeldi barna?
Allir kannast við að sumum börnum
er strítt í skóla. Sum eru lögð í einelti og
jafnvel barin af skólafélögum. Sum börn
eyðileggja gjaman hluti eða föt fyrir
skólafélögum sínum. Orð eins og stríðni
hefur oft verið notað yfir margs konar
afbrigðilega hegðun. Margar erlendar
þjóðir hafa hins vegar ákveðið orð yfir
börn sem ráðast að öðrum börnum og
eru enska orðið „mob" eða skandi-
navíska orðið „mobbing” þekktust. Þessi
orð geta merkt að hópur safnist saman
um eitthvað sem hann á sameiginlegt,
eins og að ráðast að einhverjum
ákveðnum einstaklingi. Árásin þarf hins
vegar ekki að vera framkvæmd af hóp,
eitt eða tvö börn geta lagt barn I einelti.
Andlegar og líkamlegar misþyrmingar
á meðal barna hafa verið mönnum
mikið áhyggjuefni þar sem þær virðast
hafa aukist á síðastliðnum árum. Viða
um hinn vestræna heim eru
framkvæmdar rannsóknir á þessum
fyrirbærum til þess að reyna að hjálpa
þeim einstaklingum sem hlut eiga að
máli og komast að þvi í hverju vandinn
liggur.
Orsakir ofbeldis
Dan Olweus, prófessor i sálarfræði I
Bergen, hefur gert víðtækar rannsóknir
á ofbeldi barna í skólum. Nefnd verða
nokkur atriði sem hann hefur bent á I
þessu sambandi.
Stærð skóla virðist ekki hafa mikil
áhrif á hvort börn ráðast hvert á annað.
Börn með sérstakt útlit, til dæmis feit
börn, rauðhærð börn eða málhölt börn
virðast heldur ekkert frekar vera iögð i
XO Vikan 44. tbl.