Vikan - 20.05.1982, Síða 34
Stjörnuspá Fimm mínútur meö Willy Breinholst
llnilurinn 2l.mars 20.ai'iril
Af einhverjum ástæð-
um ertu miöur þín
þessa dagana. Þó þú
hafir orðiö fyrir von-
brigðum með fram-
vindu mála, verður
það ekkert langvar-
andi. Skemmtilegir
tímar eru framundan.
Ki.'hliinn 22.júni 2V júli
Reyndu ekki of mikið
á þig á næstunni.
Framundan er mikið
annríki og þú þarft á
öllum þínum kröftum
að halda til að stand-
ast þá raun. Ovænt
símtal færir þér góð-
ar fréttir.
'tniiin 24.M.-PI. U.\.nkl.
Vertu á verði gagn-
vart slúöri sem þú
munt heyra um
góðan vin. Nú er
komið aö þér aö
launa góöan greiða.
Þú mátt ekki hika því
það gæti misskilist.
Símtal á óvæntum
tíma kemur þægilega
á óvart
Slcingcilin 22. dcs. 20. jan.
Þér hættir til að trúa
öllu sem þér er sagt.
Það er hættulegt því
þú átt þér óvildar-
menn sem reynast
þér illa. Helgin fram-
undan verður við-
burðarík og skemmti-
leg.
\;iuliú 2l.;ipril 2l.ni;ii
Þú ert ekki einn af
þeim sem gleyma
gömlum vinum. En
þú hefur sært einn
þeirra og því er nauð-
synlegt að bæta úr
því sem fyrst. Þú hef-
ur verið latur upp á
síökastiö, taktu þér
tak.
I.jóniú 2f. júli 24. ;ígú«l
Eitthvað sem þú
heyrir í vikunni um
velgengni vina eða
kunningja kemur þér
á óvart. Þú munt
njóta góös af og
skemmtilegur tími
fer í hönd. Gættu
orða þinna.
Sporúdrckinn 24.okl. 2.Vnm.
Vikan er sérstaklega
hagstæð fyrir ungt,
rómantískt fólk. Það
er mikill kraftur í
þér þessa dagana og
gaman aö lifa. Þú
munt hitta marga úr
f jölskyldunni í einu á
næstunni og munt
skemmta þér mjög
vel.
Valnsltcrinn 21. jan. I*>.fchr.
Þessi vika veröur í
flesta staði mjög
ánægjuleg. Langvar-
andi deila er til lykta
leidd og þú hefur
kynnst persónu sem
þú haföir lítið álit á
áður. Nú er rétti tím-
,inn til aö skipuleggja
sumarfríið.
T\ihurarnir 22.mai 21.júní
Eitthvað sem hendir
nákominn ættingja
erlendis hefur áhrif á
framtíð þína. Þú ert
mjög vanafastur en
líklega verður þú að
beygja þig fyrir stað-
reyndum á næstunni
og breyta út frá venj-
unni.
Þú hefur veriö mjög
önnum kafinn við
ýmis störf og ert orð-
inn langþreyttur. Þú
verður að fara að
siaka á kröfunum og
skipuleggja sumarfrí.
Fjölskylda þín þarfn-
ast þess að fara að
sjá framan í þig.
Botíniiiúuriiin 24.nú\. 21.dcs
þú átt talsverða vel-
gengni komna undir
manni sem er viörið-
inn stjómmál og við-
skipti. Þú þarft að
sýna að þú sért
traustsins verður.
Hafðu samband við
gamlan kunningja.
Fiskarnir 20.ícbr. 20.m;irs
Þaöverðurínóguaö
snúast þessa vikuna.
Þú færð óvænta
heimsókn sem þú
hafðir ekki reiknað
með. Engin ástæða er
til svartsýni þó ekki
fari allt eftir áætlun
um helgina.
/ raun og veru má segja að manns-
ævin sé ekki skipulögð á neinn auðskil-
inn hátt. Þegar maður er kominn á
sextugsaldurinn fer manni að fara aft-
ur á einn eða annan hátt. Maður fer að
kalka smátt og smátt, á erfiðara með
að beygja sig niður til aö binda sinn
eigin skóþveng og um sextugt koma
nýir vankantar í ljós. Þegar maður er
sjötugur fer sjón og heym að hraka, ef
til vill verður maður áttræður eða jafn-
vel níræður og endar jafnvel sem
hundraö ára gamahnenni, en eitt er
víst, allt verður naumar skammtað frá
skaparans hálfu seinni helming ævinn-
ar. I staðinn fyrir að það ætti aö vera
öfugt — svo maöur heföi til einhvers að
hlakka á elliárunum.
Nú, en á plánetunni Plútó, þar sem
búsett er mannkyn sem er nákvæm-
lega eins og við, er öllu öfugt farið.
Maður fæðist hundrað ára og yfirgefur
þennan heim sem komabam. Það er
eitthvað sem vit er í. Við skulum fylgj-
ast með Plútó-búanum Zero frá kör til
grafar. Á 100 ára afmælinu opnar hann
augun í fyrsta sinn. „Sjáið,” segja
ættingjarnir í kringum hann. „Hann
er lifandi! Zero gamli er lifandi.”
Þetta er mikill gleðidagur og lífsins
vatn er teygað fram á rauðan morgun.
Zero gamli er enn of veikburða tLL að
skilja það sem gerist í kringum hann,
andardrátturinn er veikur, skeifugöm-
in sömuleiöis, sjón, heyrn og nýru eru
ekki í sambandi sem vera skyldi. En
með hverjum deginum sem líður má
sjá framför hjá Zero gamla, hann fer
að geta sest upp í rúminu, taka við
næringu sjálfur og ná sér í svolitla
brjóstbirtu. Tíminn líður og á 90 ára
afmælisdaginn sinn er Zero gamli bú-
inn að taka fyrstu tennurnar, getur
fleygt stellinu sínu og eins og hann hef-
ur nú verið þrautpíndur og plagaður í
nýrunum þá líður honum nú óöum bet-
ur í þeim. Hann er líka farinn aö heyra
rétt mátulega vel tónlistina í útvarpinu
til aö taka smásnúning eftir kaffi. En
sjónin er enn lítil, það veit hamingjan.
Og hamingjan er honum hliöholl.
Á áttræðisafmælinu getur Zero
gamli lesið gleraugnalaus og þess er
getið í blöðunum. Þar stendur líka að
hann sé orðinn svo hress og kátur að
hann sé farinn að taka þátt í þjóðmála-
umræðum. Hins vegar er þess ekki get-
iö í blöðunum að Zero gamli sé farinn
að horfa á eftir stelpum í stuttum pils-
um á götunni. Hann er að vísu ekki far-
inn að gera sér grein fyrir hvers
vegna, en það kemur allt.
Svo rennur upp dagurinn þegar Zero
verður 67 ára, þá er ellilifeyririnn tekinn
af honum og hann fær leyfi til að fara
að vinna. Frá þeim degi er Zero eins og
nýr maður. Hann hefur fengið um eitt-
hvað annað að hugsa en þessa smá-
kvilla sem hrjá hann. Nú þarf hann
ekki lengur að eyða deginum í stól við
gluggann, að hugsa um hvað hann sé
gamall. Nei, nú fer Zero að lifa lífinu
fyrir alvöru. Hann eignast hús og
heimili, bíl og uppkomin börn. Nýrun
komast í lag og ístran veldur honum
minni erfiðleikum en áður. Hann er far-
inn að ganga í jakkafötum sem hann
hefur ekki komist í í langan tíma og út-
haldið stórbatnar, hann þolir meiri
vökur með hverjum deginum, þegar
samkvæmi eru haldin á heimilinu.
Þegar hann verður fimmtugur eru
haldnar margar hátíðarræður, og sagt
er að nú fari lífið aö byrja fyrir alvöru,
það versta sé búið, framundan er æsk-
an meö áhyggjuleysi sitt og gleði.
„Við vitum öll að manni getur ekki
fundist maður gamall lengur þegar
maður er orðinn fimmtugur og er í
fullu fjöri og fertugsaldurinn nálgast.
Fæðingin nálgast, hann lengi lifi.
Húrra! Húrra! ” Zero varð fertugur og
síðan þrítugur. Þegar hann varð 28 ára
varð hann piparsveinn og kunni svo
sannarlega að lifa lifinu! Því það er
einmitt þessi frjálsa piparsveinatil-
vera, laus við allar áhyggjur, sem
hann hefur hlakkað til alla ævi. Hann
er glæsilegur ungur maður. Hann er
búinn aö fá ljóst liöaö hár, er hættur að
ganga með gleraugu, ístran farin veg
allrar veraldar og hann veifar Tarzan-
bringunni á ströndinni, og stúlkurnar
falla fyrir honum unnvörpum. Dag
nokkurn verður hann yfirliðþjálfi, yfir-
Hvað ertu að biðja mig að skella
ekki þegar ég fer? Ég var að
koma heim úr vinnunni!
34 Vikan 20. tbl.