Vikan - 13.01.1983, Blaðsíða 10
SÚPE
48
RSTJÖRN
r í aug
R
ýsíngu
Fyrir 23 árum fékk ungur
maður 8000 krónur lánaðar og
hélt til New York t leit að frcegð
og frama. í dag er Peter Rogers
einn frœgasti auglýsingahönnuð-
ur íNew York.
Fyrir 14 árum fékk hann það
verkefni að skipuleggja auglýs-
ingaherferð fyrir loðskinnafram-
leiðendur (GLMA). Framleið-
endurnir áttu í vök að verjast þar
sem kaupendur vildu heldur
vefnaðarvöru á viðráðanlegu
verði en dýra loðfeldi.
Þá fékk Rogers frábæra hug-
mynd. Þvt ekki að láta frægustu
súperstjömur í heimt sitja fyrir á
auglýsingamyndunum? Hann
bjó tilauglýsingaslagorð: ,,Hvað
hæfir helst goðsögn ?" og skírðt
fyrirtœkið „Blackglama”. Allt
var þetta gert til að laða neytand-
ann að pelsunum og sannfæra
hann um að loðskinn hæfu hinn
hversdagslega mann upp til skýj-
anna. Færustu Ijósmyndarar voru
fengnir til að taka myndirnar,
þeir Richard Avedon og Bill
King. Þá vantaði ekkert nema
stjömurnar.
Sú fyrsta í röðinni var leikkon-
an Lauren Bacall. Launin voru
ekki af verri endanum: Pels að
eigin vali. En í þessari fyrstu
myndatöku gerði Rogers mikil
mistök. Hann keyrði stjömuna t
milli-klassa bílaleigubíl í Ijós-
myndastúdíðið! Prímadonnan
spurði þá snúðugt: Er það svona
sem faríð er með goðsögn? Eftir
þetta voru allar stjömumar
keyrðar um t svörtum limmósín-
um af lúxusgerð. Næstar í röð-
inni voru þær Liza Minelli,
Raquel Welch, Liv Ullmann og
Marlene Dietrich. Miðað við
fjaðrafokið sem Dietrich olli var
bílaleiguatburðurínn smámunir
einir. Hún lét senda sér 25 pelsa í
íbúð sína í New York, til að máta
þá. Hennifannst þeir allir hræði-
legir. Þá fór Rogers sjálfur með
skóstðan pels til hennar, sem
hún síðan samþykkti. Þegar
hann hrósaði henni fyrir hina
víðfrægu fótleggi svaraði hún
stuttlega: Elskan. Þeir eru ekkert
fallegir. Eg veit bara hvernig ég á
að notfæra mérþá!
Nokkrar stjömur komu í sín-
um eigin pelsum. Ein af þeim
var tískudrottningin Diana Vree-
land. Seinna sagði hún glettnis-
lega í viðtali, er hún var spurð að
því hvað hefði orðið um allar
hrukkurnar á myndinni: ,,Það
var örugglega Michelangelo sem
þama var á ferð. ' ’ Hún átti við
Ijósmyndarann sem af sinni al-
kunnu snilli ,,fínpússaði” allar
myndirnar!
Peter Rogers hefur nú lokið
ætlunarverki sínu. Hann hefur
tekið myndir af 48 súperstjöm-
um og hafið svörtu loðfeldina til
vegs og virðingar á ný. Þeir eru
nú með dýrustu pelsum í heimi
og því gátu eigendumir upþfyllt
ósk leikkonunnar Carol Chann-
ing er hún bað um hvítan þels að
launum fyrír myndatökuna! Þeir
keyþtu hann bara hjá keþþinaut-
unum!
Það tók Rogers 14 ár að gera
þennan draum að veruleika. Þó
fékk hann ekki allar óskir stnar
uppfylltar. Helstu draumadísirn-
ar hans vildu alls ekki sitja fyrír
hjá honum. Það voru Audrey
Hepburn, Elizabeth Taylor og
Greta Garbo.
En Sophia Loren samþykkti og
hún gat unað vel við sitt. Hún
fékk nefnilega að eiga svörtu
lúxusdrossíuna!
Umsjón: Hrafnhildur
Óperusöngvarinn Luciano Pavarotti.
XO Vtkan 2. tbl.