Vikan - 13.01.1983, Blaðsíða 30
Geimgrísirnir.
Amerfaki öminn Þungbrýnn að vanda og Ker-
Dýralsekna'
Hvað er líkt með Prúðu leikurunum og
leikritum Shakespeares?
Karlmenn bæði í kven- og karlhlutverk-
um!
Það er reyndar af sem áður var að karl-
menn færu með öll kvenhlutverk í leikritum
Shakespeares. En meðan hann var og hét
(hvað sem hann nú hét) var það alsiða og
annað reyndar óþekkt. Sjálfsagt verður kona
komin í hlutverk Svínku eftir 3—400 ár
líka. Konurnar eru komnar í velflest kven-
hlutverk hjá Shakespeare og því skyldi þró-
unin ekki verða svipuð hjá Prúðu leikurun-
um. Tekur varla nema nokkur hundruð ár.
Það er að segja ef Kermit og Svínka verða
jafn „lífseig” og Rómeó ogjúlía. Við vitum
hvernig fór fyrir þeim!
Reyndar fara konur með hlutverk í
Prúðu leikumnum, en þau em bæði fá og
smá. Sú fyrsta sem slóst í hópinn segir líka:
,,Ég var ekki valin vegna leikhæflleika
minna heldur vegna þess hvað ég var stór. ’ ’
Hvað það kom málinu við skýrist á eftir.
235 milljónir manna í meir en hundrað
löndum horfa reglulega á Prúðu leikarana
og þættirnir hafa verið verðlaunaðir í bak og
fyrir. Börn sem ekki vom fædd þegar þeir
hófu frægðarferilinn em sífellt að bætast í
aðdáendahópinn svo varla verður lát á vin-
sældunum í bráð. Ef eitthvað drepur Prúðu
leikarana verður það helst pillan eða atóm-
bomban.
Jim Henson og fyrirtæki hans, HA!
(Henson Associates), reka Prúðu leikarana
viku eftir viku í ný ævintýri og nánustu sam-
starfsmennirnir, Frank Oz (Svínka og
Fossi bjöm) og Jerry Nelson (Vitlausi Harry
og fleiri) em einnig stórtækir í handritagerð
og öðm sem fylgir.
Kermit var fyrsti prúði leikarinn sem Jim
Henson skapaði og þjóðsagan um græna
vetrarfrakkann og golfkúlurnar tvær sem
hann lagði í froskinn er að verða jafnþekkt
og sagan um upphaf Rómaborgar.
Kermit er orðinn 26 ára, reiknað í mann-
ámm því hann væri sjálfsagt löngu dauður
ef hann reiknaðist í froskámm. Jim Henson
sér sjálfur um stjórn hans og ljær honum lát-
bragðið og rödd sína. Jim er reyndar óspar á
röddina því raddir sænska kokksins, Hrólfs
og Tanna læknis em einnig úr hans barka
komnar og er þá alls ekki allt upp talið.
Jim Henson byrjaði smátt eins og vera ber
í amerískum framaferli. Hann var í átta ár
(frá 1955) með fimm mínútna sjónvarps-
þátt, Samma og vini hans, í hverri viku,
seint um kvöld.
Þar kom að hann var farinn að vekja at-
hygli og honum var boðið í fræga og vinsæla
þætti eins og til dæmis þátt Ed Sullivan.
Konajims, Jane, hjálpaði honum fyrst í stað
en þegar Prúðu leikaramir komu til sögunn-
ar var hún farin að gæta bús og barna og
annað samstarfslið bar hitann og þungann
meðjim.
Þungann já, það var nefnilega engin til-
viljun að konan var valin eftir stærð en ekki
hæfileikum, það þurfti líka að velja karlana
með sömu sjónarmið í huga. Talsverða
krafta þarf til að leika sér að dúkkunum í
Prúðu leikara-sýningunni því þær eru af
stærri gerðinni svo sem sjá má ef þær eru
bornar saman við gestina sem einatt fylgja
þáttum Prúðu leikaranna. Þar þarf engar
tæknibrellur til að sýna rétta stærð. Tækni-
brellumar em geymdar og notaðar í ýmislegt
annað.
Ekkert lát er á vinsældum Prúðu leikar-
anna og að sjálfsögðu em þeir famir að leika
í kvikmyndum og kringum þá hefur skapast
leikfangaiðnaður, plakataiðnaður, plömiðn-
aður og annað slíkt sem vinsælum fígúmm
fylgir. Gestir Prúðu leikaranna em orðnir
æði margir og þeirra á meðal er heimsfrægt
fólk sem lætur ekki sjá sig í hvaða þætti sem
em.
Þýðandi þáttanna, Þrándur Thoroddsen,
hefur þótt standa sig með eindæmum vel,
en hann hefur látið hafa eftir sér að sér þyki
þættirnir mótast mest af gestunum sem í þá
koma hverju sinni og vera jafnmisskemmti-
legir og gestirnir em margir.
í hverjum þætti er reynt að skapa alveg
nýtt andrúmsloft og þá í stíl við gestinn og
hópurinn á bak við Prúðu leikarana tekur
virkan þátt x vali gesta og síðan í því að
semja og skapa efni kringum hvern gest fyrir
sig. Möguleikarnir em óþrjótandi eins og
aðdáendur hafa tekið eftir og þó er ramm-
inn, gamla leikhúsið, nokkuð þröngur.
Og hvað skyldu þeir sem að baki Prúðu
leikaranna standa sýsla við þegar þeir em
ekki að vinna þættina um Prúðu leikarana?
Við því er sjálfsagt ekkert algilt svar en þess
má geta að Jim Henson og vinir hans eru
líka með aðra sjónvarpsþætti á sínum snær-
um. Þeir þættir heita Sesame Street og um
hvað skyldu þeir svo sem vera
nema.....brúður!
30 Vikan 2. tbl.