Vikan


Vikan - 21.04.1983, Side 6

Vikan - 21.04.1983, Side 6
Handhæga settið og Á kirkjulistarsýningu sem haldin var á Kjarvalsstöðum um páskana vakti Handhæga settið eftir Magnús Tómas- son athygli margra. Nöturieg tenging við nútimann var ef til villþað sem augað greip og eftirsat. Magnús var heimsóttur um það leyti er sýningin stóð sem hæst, spurður um þetta verk og önnur sem hann átti á sýn- ingunni, SÚM, borgarlistamennsku og sitthvað fleira, en þó fyrst og fremst um kirkjulist og unga myndlistarmenn. „Eg var eiginlega alveg búinn að gleyma þessu verki, það lenti einhvern veginn á milli sýninga, varö til rétt eftir að ég sýndi 1969 og þegar ég sýndi næst féll það ekki inn í þá sýningu. Á þessum tíma óx maður svo fljótt frá verk- um sínum. Margt af því sem ég gerði á þessum árum fór á haug- ana, maður var bara feginn að losna við þetta. Flest af því var of stórt til aö hægt væri að halda upp á þaö, enda sæi maður víst hvern- ig væri umhorfs í heiminum ef allt væri varðveitt. Handhæga settiö slapp kannski fyrst og fremst viö haugana af því þaö var ekki stærra en þaö er. Ef ljósmynd varöveitir verk er það ekki alveg glataö. Annars breytist maður með árunum og nú held ég upp á verkin mín. Á þessum tíma taldi ég mig vera ateiista, guöleysingja, en að vísu trúaöan guöleysingja. Og það á ekkert skylt við að vera guðlaus trúmaður. Biblían er, eins og gríska goðafræöin, menningararf- ur og hvort tveggja nota ég mynd- rænt þegar hægt er að skírskota til nútímans! Þegar ég byrjaöi á sögu flugsins var auðvitaö ekki hægt að ganga fram hjá heilögum anda, svo þaö sem á kirkjulistarsýningunni heit- ir I upphafi er aðeins brot af sögu flugsins. 1969 varð til verkiö: Vertu þinn eiginn guð, do-it- yourself-kit í stíl við litla efna- fræðinginn með myrkri á flöskum, peru og batteríi. Ég hef fengist við sköpunarsög- una í járn og sýndi það á sýningu sem hét 0 og fór um Noröur- lönd 1972-3. Brauðiö og fiskarnir eru hagnýt- ar biblíusögur og í skapandi stærð- fræöi nota ég líka biblíuefni með ævintýrum H.C. Andersens. Efniö sem ég vinn í getur breyst, ég er til dæmis að mála stór málverk núna sem eru í beinu framhaldi af litlu þrívíðu myndun- um sem ég sýndi á Kjarvalsstöð- um í fyrrasumar. Hlutirnir breytast á yfirborðinu en hugmyndalega er ákveðinn skyldleiki. Það er skrýtið, maður uppgötv- ar aö maður hefur lagt lykkju á leið sína til aö vinna hugmyndir sem maður fékk fyrir 14—15 ár- um. Mér finnst ég samt alltaf vera sami byrjandinn. Það sem ég hef verið aö gera seinustu 10—12 árin veröur aö skoðast sem heild. Ég kalla það sem ég er að gera visual poetry, sýniljóð, og get ekki flokkað þaö undir annaö nafn. Það má segja að öll góð mynd- list sé óöur til sköpunarmáttarins. En ég hef ekki fundiö að ég ætti samleið með kirkjunni. Lúterska kirkjan virðist ekki hafa haft áhúga á því í aldaraðir aö nota sér skapandi myndlist. Sú kaþólska vildi beygja listina undir beina þjónkun viö kirkjuna — með fáum undantekningum eins og Hier- onyus Bosch. Svo er það alltaf spurning hvort kirkjulist sé list sem sé kirkjunni þóknanleg. Sýningin á Kjarvals- stöðum var ekki þannig hugsuð. Fleiri SUM-menn hafa unnið trúarverk en ég. Ef kirkjan heföi viljað hagnýta sér listamennina hefði ekki verið fyrirstaða af þeirra hálfu. Þegar maður skoðar kirkju- byggingar á íslandi fær maður á tilfinninguna aö ekki hafi verið smekkmenn á ferðinni. Gömlu handverksmannakirkjurnar eru bestar. Þær eru notalegar. Arki- tektar eru tæknimenntaðir. Og kirkjubyggingarnar eru hrikaleg- astar þeirra verka. Þeir hafa ekki þá myndlistarmenntun sem til þarf til að leika sér að línum og formum. Þessu mætti ef til vill ráða bót á með því aö gera al- menna myndlistarmenntun að inntökuskilyröi í arkitektaskól- ana, en þaö er ekki gert nú, þó svo aö til dæmis í Kaupmannahöfn séu arkitektar menntaðir í sér- hluta listaakademíunnar. Þaö er undarlegt hvernig skipu- lagsyfirvöld og arkitektar fá að 6 Vikan 16. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.