Vikan - 21.04.1983, Page 12
Hvemig býr
fræga fólkið?
Morgan Fairchild er ein af þessum fallegu og frægu í
amerískum sjónvarpsþáttum. Hún leikur venjulega konur
sem settar eru í einhvers konar tæfuhlutverk í söguþræði
þáttanna (ein svoleiðis er nauðsynleg í hverjum þættil) og að
sjálfsögðu er hún íþess konar hlutverki í vini vorum Dallas-
þættinum.
Heimili hennar er í hróplegu ósamræmi við ímyndina,
friðsælt og fallegt — blár draumur upp á amerískt orðaval.
Og sjálf er konan í hágæðaflokki tískudómara, talin fjórða
best klædda kona í heimi.
Ballettstjörnur og kvik-
myndagoð á plakötum prýða
stofuna hennar. Hönnuð-
urinn Stanley Hura og
aðstoðarmaður hans, Jerry
Hearn, nota efni frá Laura
Ashley og þau eiga sérlega vel
við gamla gripi eins og tesett-
ið sem Morgan erfði eftir
ömmusystur sína. Gólfteppið
er einlitt, blátt, og bindur vel
saman mynstrin.
11 Vikan 16. tbl.