Vikan


Vikan - 21.04.1983, Blaðsíða 16

Vikan - 21.04.1983, Blaðsíða 16
Af fmgrafimleikum á ábyrgð Álafoss Ingibjörg Jakobsdóttir fær aðstoð hjá kennaranum á námskeiðinu, Rögnu Þórhalls- dóttur. í Álafossbúðinni við Vesturgötuna er ýmislegt að sjá — og jafnvel heyra! Úr einu homi búðar- innar berst nokkuð þéttur og jafn kliður ásamt kaffibollaglamri — sem hljómar eins og besti saumaklúbbur áður en jafnréttið skar þá niður við trog af alkunnu miskunnarleysi. Varð það til þess meðal annars að sú þarfa þjóðfélagsumræða og félagsráðgjöf áðuraefndra klúbba féll í hendur alls kyns fræðinga sem auðvitað þurfa að leggja á sig langskólanám til að geta talist klúbbtækir í meðallagi. í Álafosshorainu blómstrar prjónaklúbbur um hábjartan daginn, á miðjum opnunartíma verslunarinnar og viðskiptavinir eru frjálsir að því að horfa og hlusta að vild. Og markmið hefur hópurinn svo sannarlega, frá fingrum fimum renna hin flóknustu prjónamynstur úr fínasta ein- girai sem umbreytist í sparikjóla í fyllingu tímans. Fyrsta tilraun með kennslu í eingiraisprjóni var gerð á vegum Álafoss í haust og varð aðsókn strax mikil. Færri komust að en vildu og var því 16 Vlkan 16. tbl. Úr prjónahomi hjá Álafossi. námskeiðunum haldið áfram eftir áramótin. Kennt er fjóra daga vikunnar og þá þrjá tírna í senn. Hvert námskeið er tvisvar í viku og síðan hvílt aðra viku og þá reiknað með heimaprjóni þátttakenda. Prjónaðir era samkvæmiskjólar og getur hver nemandi valið sér gerð og liti að eigin ósk. Miðað er við að námskeiðið nægi til að ljúka einum kjól og í lokin er haldið hóf þar sem allar mæta í kjólunum þvegnum og strekktum. Tilbú- inn kjóll af þessari gerð kostar frá 6.000 krónum og upp úr en námskeiðsgjaldið er aðeins 100 krónur. En meginmarkmiðið var að kynna íslenska handprjónabandið og fræða fólk um að til er margt annað en lopi og virðist sem þaraa vanti alls ekki áhuga almennings. Meðfylgjandi myndir voru teknar einn kennsludaginn í búðinni og einnig birtum við mynd af síðasta námskeiði, lokakvöldinu þar sem allar mæta í eigin kjólum. í næsta tölublaði Vikunnar verður svo uppskrift að eingiraiskjól sem Álafoss hannaði sérstaklega fyrir okkar ágætu lesendur. Af fyrra námskeiði þar sem allar mættu í kjólunum að nám- skeiði loknu. TextirBorghildur Anna Ljósm.: Ragnar Th. og fleiri

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.