Vikan - 21.04.1983, Blaðsíða 35
Draumar
I barna-
vöggu
Kceri draumráðandi.
Mig langar til að biðja
þig um að ráða fyrir mig
draum sem mig dreymdi
fyrir stuttu. Eg er mjög ber-
dreymin en get ekki ráðið
draumana sjálf svo ég leita
til þtn. Draumurinn er á
þessa leið: Eg og maður,
sem vinnur á sömu skrif
stofu og ég, erum á leið
með mikilvcegt skjal á aðra
skrifstofu. Við komum inn
í forstofuna. Hann biður
mig að bíða þar á meðan
hann fer með skjalið, svo
hverfur hann inn um dyr
hcegra megin íforstofunni.
Eg fer að líta íkringum mig
og sé að þetta er stór salur
eða herbergi með lausum
skilrúmsvegg á miðju gólfi
sem hcegt er að ganga í
kringum. Eg byrja að
ganga inn herbergið og sé
þar mikið af málverkum
uppi á vegg eins og á mál-
verkasýningu. Eg labba að
einni myndinni og sé að á
málverkinu er maður að
faðma konu og hefur bitið
stykki úr hcegri öxl kon-
unnar. Sé ég þá sömu kon-
una standa við hlið mér.
Mig hryllir við og labba frá
myndinm. Þá sé ég að
gólfið hinum megin við
skilrúmið er aflíðandi. Allt
í einu er ég komin ofan í
barnavöggu með banana í
vinstri hendi og þar er
einhver að ýta mér af stað
niður hallann. Eg er komin
á talsverða ferð þegar R
vinur minn stoppar mig.
Hann er hissa á svipinn en
ég prila upp úr vöggunni
og hendi banananum. Eg
held áfram og er komin á
sama stað eða að útgöngu-
dyrunum og horfi út. Þar
sé ég margt fólk að btða
eftir strætó. Einn maðurinn
lítur til mín með áhyggju-
svip — ég brosi til hans.
Allt í einu er ég komin inn
í eldhús til systur minnar
og er hún að baka. Þar er
Itka eldri systir okkar. Eg
segi við þær að mig hafi
dreymt einkennilegan
draum um að ég væri í
barnavöggu. Þá sé ég fjórar
gamlar konur koma inn í
eldhúsið og segja: ,, Það
kemur barn fljótt undir hjá
þér. ” En ég segist ekkert
vera í svoleiðis hugleið-
ingum. En þær halda þessu
stíft fram og íþví vakna ég.
Kæri draumráðandi, ég
vona að þú getir ráðið þetta
fyrirmig.
Með fyrirfram þökk,
Sigrún.
Innan skamms munu
verða merkileg tímamót í
lífi þínu og flest bendir til
að þau verði vegna ein-
kennilegs en ánægjulegs
ástarævintýris sem þú átt,
ævintýris sem mun án efa
verða einhverjum (annarri
konu) til sárinda en þér
gæti það borið ávöxt.
Gömlu konurnar eru mikið
heillatákn og þó þessir
atburðir muni ef til vill
gerast hraðar en þú hefðir
kosið og þú munir minna
ráða en þú myndir vilja um
gang mála verða þessir
atburðir, þegar til lengri
tíma er litið, einhverjir þeir
ánægjulegustu í lífi þínu.
Aðeins einn skugga mun
bera á: einhver sárindi og
jafnvel vinamissir virðist
óhjákvæmilegur í sam-
bandi við þetta. Ómögu-
legt er að sjá á þessum
draumi hvort ævintýrið
verður skammvinnt eða
langvinnt (hvað þá hvort
það muni endast ævina út)
né hvort maðurinn sem í
hlut á er sá sem er með þér
í drauminum.
Bleik
frá hvirfli
til ilja
Mig dreymdi að ég var á
leiðinni í vinnuna í strætó.
Eg fór úr strætó á Hlemmi
og labbaði framhjá búð.
Fyrir utan búðina var stillt
upp einhverjum fötum,
meðal annars húfum og
höttum. Eg stoppaði og fór
að skoða fötin. Þá finnst
mér kona, sem stendur við
hliðina á mér, taka einn
hattinn og setja hann á
höfuðið á mér. Hatturinn
var bleikur og fannst mér
hann fyrst vera of lítill en
hún þrýsti honum niður og
þá var allt í lagi. Stðan
spurði ég hana hvort hann
færi mér ekki vel, mér
fannst ég vera nokkuð
ánægð með hann. Þá
verður mér litið niður eftir
sjálfri mér og sé þá að ég er
í bleikum sokkum, bleikri
kápu og undir kápunni
bleikum kjól. Eg sagðist
ekkert skilja í mér að hafa
farið í öllu bleiku, en ég
hefði bara ekki tekið eftir
hvað ég hefði verið að gera.
Eg sagði: ,,Einnst þér þetta
ekki Ijótt?” Hún sagði:
,,Jú. ” Síðan hlógum við
lengi vel og innilega og
var mér sagt að ég hefði
hlegið upp úr svefninum.
Bleiki liturinn var svona
baby-bleikur, eins og oft er
á fötum ungra stúlkna. Eg
var vakin og man ekki
meira af draumnum.
Með bestu kveðju,
nágranni.
Hérna skiptast góð og
slæm tákn á eftir nokkuð
föstu kerfi og virðist
næstum ætlað að vega
hver á móti öðrum. Von-
ir sem þú bindur við
framtíðina eiga eftir að
rætast að miklu leyti en þar
koma inn í vonbrigði með
hluti sem virtust svo dæma-
laust eftirsóknarverðir úr
fjarlægð. Þetta á bæði við
um félagslega stöðu og
einnig samskipti við þína
nánustu. Reyndar má segja
að velgengnistáknin séu
mun meira áberandi og því
betra að minnast þess að
ekkert er alveg gallalaust í
samskiptum mannanna.
Táknin eiga greinilega
bæði við starfið og einnig
samband við hitt kynið og
það tengist hvort öðru aftur
og aftur. Einhverjir ófyrir-
sjáanlegir erfiðleikar við að
sameina þetta tvennt eru
flest slæmu táknin en svo
koma inn í góðu hliðarnar
sem boða mikla velgengni
og spor í þá átt sem þér
sjálfri þótti mikilvægust.
16. tbl. Vikan 51