Vikan


Vikan - 21.04.1983, Page 46

Vikan - 21.04.1983, Page 46
POSTIKIW Með svo lítinn haus Halló, elsku Póstur. Nú œtti Helga ad vera södd því hún hefur greini- lega étid öll bréfin mín. En snúum okkur þá aö efninu. Ég er 13 ára og 165 cm á hœd. En ég er med svo lítinn haus ad hann gœti passad á 8—9 ára krakka. Mér finnst þad ferlega Ijótt og leiöinlegt. Ég get ekki verið með stutt hár því þá sést það svo greinilega og þess vegna verð ég að vera með sítt hár. En það er svo þunnt, Ijótt og slitið að ég er eins og fuglahrœða. Er ekkert hœgt að gera ? Fuglahrœðan. P.S. Hvað heitir söngvar- inn í The Human League og hvað er hann gamall? I fyrsta lagi: Þú miklar þetta áreiðanlega fyrir þér, eins og allir sem finna ein- hverja vankanta á sér, of stórt nef, of stórir fætur, of lítil brjóst og svo framveg- is. Aðrir taka ekki eins eftir því sem manni sjálfum þykir hræðilega áberandi. En þetta huggar þig sjálf- sagt lítið svo það er best að segja þér hvað er til ráða. Margt er hægt að gera til að plata augað. Þú talar um að þú hafir þunnt og slitið hár en þyrft- ir að reyna að ná rækt í það (pilsner- og maltdrykkja í stað gosdrykkju gæti hjálp- að, sömuleiðis að borða mikið af grófu brauði ef þér er það óhætt og fitnar ekki um of af því). Þú ættir líka að setja hárnæringu í það eftir þvott — muna að skola vel! Ef þú nærð góðri rækt í hárið ættirðu að greiða það með hjálp vinkvennanna, eða jafnvel að reyna að fara á hárgreiðslustofu. Þar getur þú fengið hárið blásið, sett í það alls kyns jelly og annað sem gefur hárinu fyllingu og lyftingu og svo er jafnvel hægt að fá permanent. Það er sem sagt ýmislegt hægt að gera og Pósturinn heldur að það sé misskilningur hjá þér að það eina sem dugir sé sítt hár. En þú skal taka til þinna ráða, þó ekki væri nema til að hressa upp á sálina, því þó öðrum þyki ekkert athugavert við út- litið á manni virðist sem það dugi engan veginn til að sannfæra mann sjálfan. Söngvarinn í The Human League heitir Phil Oakey og er27 ára. Ástarflækja Halló Póstur. Þetta er fgrsta bréfið sem þú fœrð frá mér en ég vona að þú birtir það því ég rœð ekki fram úr þessum vanda sjálf. Ég á vinkonu, segjum Stínu (persónulegra en X). Stína er hrifin af Lalla, ég líka (ekki jafnmikið þó) og Lalli af mér. Ókei. Lalli er besti vinur Halla sem ég er mjög hrifin af — en ég veit ekki hvort ég á séns, ég held ekki. Nú er það svo að á milli okkar Stínu er nokkurs kon- ar þegjandi samkomulag um að ,,taka” ekki stráka hvor frá annarri, það er að segja strák sem hin er hrifin af. Svo eiginlega get ég ekki ,,tekið” Lalla. En mig grun- ar að á milli Halla og Lalla sé sama samkomulag (enda mgndi annað spilla vináttu) svo Halli reiknar ábgggilega ekki með mér sem stelpu til að verða hrifinn af, Lalli var á undan og hefurþví réttinn. Mér finnstþetta auðskilið og vona að þér finnist það líka. Og ég vona líka að þér finn- ist þetta auðlegst, því það finnst mér ekki. Bless, bless. Ein í ástarflœkju. Jú, víst er þetta auðskilið og fullkomlega virðingar- vert viðhorf, að vilja ekki spilla vináttu og virða til- finningar annarra. En það er svo sem ekkert auðleyst, eins og þú ert búin að kom- ast að. Pósturinn getur ekki betur gert en að gefa hugmyndir. Þið þyrftuð greinilega að komast í gott vináttusamband við strák- ana og leyfa málunum að þróast vel. Ef þið hafið að- stöðu til að stunda eitthvert áhugamál með þeim, í skólanum eða utan, drífa þá með ykkur í bíó, án þess að vera nokkuð að reyna við þá auðvitað, þá skýrast málin áreiðanlega og ein- hver slær af sínum kröfum í þágu annarra. Ekki er gott að vita hvað þið eigið auðvelt með að ná betra sambandi við strák- ana en gerið ykkar besta án þess að fara að vera uppá- þrengjandi. Það er gott að hafa frumkvæðið og bíða ekki bara eftir að eitthvað gerist, en þið vitið vel að fólk sem hangir utan í öðrum, hvort sem er stelp- ur eða strákar, án þess að hafa sérstaka ástæðu, er ósköp þreytandi. Sem sagt: Reynið að kynnast betur í gegnum einhver áhugamál, það standast fá vináttusambönd feluleiki eins og þennan lengi. Skrift og rjóðir vangar Hœ, kœri Póstur! Viltu regna að hjálpa mér með nokkur atriði? Hvernig er hœgt að lesa úr skrift? Er það kennt einhvers staðar? Hvarþá? Hvað á ég að gera? Ég er svo ferlega feimin að ef ein- hver horfir á mig þá roðna ég (frekar efþað eru strákar) og ef athgglin beinist gfir- leitt eitthvað að mér, þá roðna ég, stundum þótt ég viti ekki af því sjálf, en oftast veit ég af því. í vinn- unni er ég ekki eins rosalega feimin og ég var en þetta er alveg ferlegt ennþá. Eg veit að þú hugsar: Hvers konar rœfill er þetta? Af liverju herðir hún ekki upp hugann og hugsar ekki um hvað aðrir hugsa? — Alveg eins og þú hefur gfirleitt verið að segja öðrum sem þjást af feimni. En svona þgðir ekki að segja mér að gera því ég mun ekki geta það. Svo langar mig oft til að grenja eftir að ég er búin að roðna því mér líður alveg bölvan- lega á eftir. Er eitthvað snið- ugt að fara til sálfrœðings út afþessu? Mamma stakk upp á því að ég fœri til sálfrœð- ings út afþví að ég er oft svo slœm á taugum. Ég viður- kenni það alveg sjálf. Þá datt mér í hug að sálfrœðingur gœti hjálpað mér með feimni. Hvað á maður að gera ef maður œtlar til lians ? Er ekki dgrt að fara til hans? Jœja, best að hœtta þessu núna. Ég vona að þú gefir ekki þessari landsfrœgu ruslafötu þinni bréfið mitt því ef þú gerir það mun hún eiga svarinn fjandmann alveg þangað til ég deu. Bœ, ÉG P.S. Er ég nokkuð eðlileg að líða illa þegar ég þarf að 62 Vikan 16. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.