Vikan - 21.04.1983, Blaðsíða 47
PÓSTURINN
fara eitthvad sem ég veit ad
ég hitti marga krakka á
svipudum aldri og ég ? Eg get
nœstum fengið í magann af
kvíða stundum þegar ég er
að fara eitthvað. Allir eru
eðlilegir efég erþað.
Samkvæmt þessu
síðastnefnda eru greini-
lega allir eðlilegir. Póstur-
inn getur ómögulega séð
nokkuð óeðlilegt við þig og
þessi vandamál sem þú ert
að lýsa. Þú verður bara að
hafa það. Hins vegar er
hæpið að það bæti líðan
þína nokkuð og því miður
er það ósköp eðlilegt líka.
Pósturinn vildi gjarnan
vera þess umkominn að
geta sagt einhver töfraorð
og læknað alla þá sem til
hans leita vegna feimni og
afleiðinga hennar (meðal
annars að roðna). En því
miður, þetta verður bara
að koma frá hverjum og
einum sjálfum. Pósturinn
getur þó ekki staðist að
benda þér á tvennt: Annars
vegar að fáum þykir
nokkuð athugavert við það
þó fólk roðni, sumum
finnst það meira að segja
reglulega fallegt eða
„sætt”. Ég býst við að ef þú
ert ekki þeim mun óhress-
ari með tilveruna almennt
þyki þér sjálfri allt í lagi þó
aðrir roðni. Og annað er
líka, þótt Pósturinn sé
harðlega á móti allri
flokkun eftir kynjum, það
þykir kvenlegt að roðna,
það eru frekar strákar sem
fá leiðinlega stríðni ef þeir
roðna. Svo þú þarft alls
ekki að taka þetta svo
nærri þér, það eru óskap-
lega margir í þínum
sporum. Svo er til ráð, en
því fylgir sá ókostur að það
fer illa með húðina. Ef þú
roðnar bara í kinnunum
getur þú hreinlega fengið
húðlitt meik sem hylur vel
(ætlað til að hylja bólur) og
prófað að láta það á
kinnarnar dag og dag,
þegar þú ert sérlega
óhress. Það hefur að
minnsta kosti þau áhrif að
þér getur liðið betur dag og
dag og er skárra en ekki
neitt. En í guðanna bænum,
ef þú ætlar að maka þig
með einhverju upp á hvern
dag reyndu að útvega þér
eitthvað sem fer sæmilega
með húðina, í það minnsta
ekki of illa. Stúlkur í
apótekum eru oft mjög lið-
legar að hjálpa, og einnig á
snyrtistofum. Reyndu
þetta ef þér líst á það en
láttu það samt ekki
skemma húðina, þú verður
að þvo allt vel af á kvöldin.
Varðandi sálfræðiaðstoð
ættir þú að hafa samráð við
heimilislækninn þinn. Hann
er bundinn þagnareiði og
þú átt að geta treyst honum
fullkomlega. Það hefur
reynst mörgum vel að tala
við sálfræðinga þó vanda-
mál eins og þitt hljómar sé
ekki svo afleitt. Þú verður
að gera þér grein fyrir að
þú ert fullkomlega eðlileg
og það að vera slæmur á
taugum er einnig algengt.
Kostnaður þarf ekki að
vera svo mikill ef þú getur
fengið heimilislækni til að
mæla með að þú farir í
viðtal. Annars skaltu ekki
hika við að hafa samband
við sálfræðing símleiðis og
spyrja um kostnað og segja
erindi þitt. Það er eina sem
Pósturinn getur mælt með.
Varðandi lestur úr skrift er
það mikið nám og ekki á
hvers manns færi, en í
bókaverslunum, eins og
Eymundsson og Bókaversl-
un Snæbjarnar í Reykjavík
og jafnvel í stærstu
bókaverslunum á því svæði
sem þú býrð, má fá
erlendar bækur sem eru
mjög ítarlegar. Þar er
mest sýnt með ljósmynd-
um og stuttum texta og
með orðabók ættir þú að
geta ráðið úr því, ef þú ert
ekki sterk í enskunni.
Gangi þér bara vel með öll
þín mál og mundu að þú ert
ekki ein með þau. Reyndu
að gera þaö sem þér finnst
sjálfri hyggilegast. Bréfið
er skynsamlega skrifað og
þú ert áreiðanlega fullfær
um að takast á við þetta
ívandamál.
Strákur f
öðrum skóla
Kœri Póstur?
Ég get ekki rœtt þetta við
neinn svo ég gerði mér lítið
fyrir og tók mér blað og hér
sérðu útkomuna: Ég er með
strák í öðrum skóla, en ég fœ
ekki að fara út til að hitta
hann (mömmu er illa við
hann). Finnst þér það sann-
gjarnt? Svo þegar hann
hringir skellir mamma á eða
rífur kjaft við hann og segir
honum að hœtta þessum
hringingum. Hvað á ég að
gera? Hvað heldurðu að ég
ségömul?Er nóg að strákur-
inn noti verju eða þarf
stelpan líka að nota eitt-
P.S. Helga á ekki skilið
svona mikilvœgt bréf.
Póstinum sýnist að lítið
sé hægt að tjónka við
mömmu þína og satt að
segja eru alltaf tvær hliðar
á öllum málum. Reyndu að
íhuga hvað mamma þín
hefur á móti stráknum.
Hefur hún eitthvað fyrir
sér í þessu? Finnst henni
þú of ung til að vera á
föstu? Pósturinn hefur ekki
hugmynd um hvað þú ert
gömul og finnst erfitt aö
giska. Þú verður að koma
einhverri annarri reglu á ef
mamma þín skellir á
strákinn, það gefur
augaleið að ekki náið þið
sambandi á þann hátt.
Varðandi verjur eru þær
mjög góð getnaðarvörn en
yfirleitt þykir betra að fá
sæðisdrepandi krem í
túpum til að nota með, þá
er öryggið orðið býsna
mikið. Það er mjög gott aö
þið hugsið um þetta í
alvöru, þó þið séuð hugsan-
lega nokkuð ung til að fara
að sofa saman. Þú skalt
bara hafa samband viö
lækninn þinn og fá hjá
honum leiðbeiningar um
hvaða krem hann telji
henta þér með verjum. Þú
getur vel fengið krem sjálf
með þessu og um leið ættir
þú að fá leiðbeiningar um
notkun þess. Þaö skiptir
máli að nota hlutina rétt.
Vertu ekki feimin við lækn-
inn, hann ætti að vera
þaulvanur svona
spurningum og ekki fer
hann að blaðra í foreldr-
ana, til þess hefur hann
ekki einu sinni leyfi.
Reyndu að athuga
sjónarmið allra og leysa
máliö jafnrösklega og með
þessari byrjun, að tala um
það við Póstinn. Þá getur
þú vel talað við lækni um
kremið og strákinn um
hvernig þið getið mælt
ykkur mót og hist. Póstur-
inn býst ekki við að nokkuð
sé hægt að hagga mömmu
þinni en ef þú telur von til
þess vertu þá reglulega
indæl og segðu henni frá
þínum sjónarmiðum.
Mjög laglegt hjá þér, Sveiflandi
Uxahali, en við höfðum doltið
annaðihuga. . .
16. tbl. Vikan 63