Vikan - 04.07.1985, Síða 50
Leikirí Barna-Viku
Þá höldum við áfram að rifja upp leiki svo Ég veit ekki hvað ég á að gera. Eða: Ég veit ekki
enginn standi nú í góða veðrinu í sumar og segi: í hvaða leik við getum farið.
fyÆsiím&ú
Hollýhú
Þaö var mikiö fariö í leikinn hollý
hú í gamla daga. Hann er þannig aö
nokkrir krakkar raöa sér upp við
vegg en einn stendur fyrir framan
hópinn meö bolta. Sá sem er með
boltann hugsar sér eitthvert nafn
sem hinir eiga síöan að geta upp á.
Krakkinn með boltann byrjar nú á
því aö kasta honum til þess sem er
lengst til vinstri í röðinni og segir um
leið: Ö karlmanns sem þýðir aö
nafniö byrjar á stafnum Ö og er karl-
mannsnafn. Og hinn hendir boltan-
um til baka og reynir aö geta upp á
nafninu og segir kannski Óskar. (En
auövitaö haföi hinn hugsað sér nafn-
iö Óli.) Og boltanum er kastað til
næsta krakka í röðinni. Ef enginn
getur upp á nafninu í fyrstu umferö
heldur leikurinn áfram meö því aö
næsti stafur er sagður: Ó1 karl-
manns og auðvitað segir þá einhver
Óli. Um leið og einhver getur upp á
réttu nafni kastar sá fyrir framan
röðina boltanum í jörðina og segir
hollý og hleypur í burtu. En hinn
sem gat upp á réttu nafni reynir aö
hlaupa til og grípa boltann og segir
hú um leið og þaö tekst. Um leið og
þaö er sagt verður hinn aö stoppa og
standa kyrr en býr um leið til hring
með handleggjunum meö því aö
teygja þá fram og taka saman hönd-
um. Hinn á síöan aö reyna að hitta
ofan í hringinn meö boltanum. Ef
þaö tekst á sá krakki að hugsa upp
næsta nafn en hinn fer aftast í röö-
ina. Ef þetta tekst ekki má sá sem
síðast sá um aö hugsa upp nafn
gera aftur.
Mynda-
styttuleikur
Sumir kalla myndastyttuleik líka
Einn, tveir, þrír, fjórir, fimm.
Myndastyttuleikur er mjög góöur
þegar margir krakkar eru saman.
Hann er þannig aö einn er ’ann og
stendur upp viö vegg með bakið í
alla hina krakkana sem standa í
hæfilegri fjarlægð. Það er ágætt aö
gera strik þannig að allir standi viö
það. Nú kallar sá viö vegginn einn,
tveir, þrír, fjórir, fimm og snýr sér
viö um leið og hann hefur sagt fimm.
Hinir byrja aö hlaupa af stað um leið
og byrjað er aö telja en um leiö og
sagt er fimm eiga allir aö stoppa og
mega þá alls ekki hreyfa sig. Ef ein-
hver sést hreyfa sig þá skipar sá
sem er ’ann honum að fara aftur til
baka og hann verður að byrja upp á
nýtt.
Svo eru til tvær útgáfur af endin-
um á þessum leik. Önnur er þannig
að sá sem kemst fyrst í borg (en
borg er hjá þeim sem er ’ann) á aö
ver ’ann í næsta leik.
50 Víkan 27. tbl.