Vikan - 01.08.1985, Blaðsíða 27
fæddir eru á þessum degi, geta
huggað sig við þaö að börnin
þeirra verða oftast nær fööur-
betrungar.
Heilsufarið
Líkamleg heilsa hjá afmælis-
börnunum er óaðfinnanleg en and-
leg heilsa þeirra er stundum í
veikbyggðara lagi. Mikilvægt er
að menn reyni sem mest að láta
ekki skapið hlaupa með sig í
gönur.
Happatölurnar eru bæði 1 og 2.
3.
ÁGÚST
Skapferlið
Hreinskilnin situr í fyrirrúmi
hjá því fólki sem fætt er í dag. Það
vill alltaf koma til dyranna eins og
það er klætt og hræsni og yfir-
drepsskapur er þessu fólki víðs
fjarri. Afmælisbörnin vilja sem
sagt hafa allt á hreinu og láta oft
uppi skoðanir sínar sem koma við
kaunin á öðru fólki. Þetta atriði
veldur oft óvinsældum hjá
afmælisbörnunum en þeir sem
setja þau á svartan lista hafa
sjálfir oft óhreint mjöl í poka-
horninu.
Lífsstarfið
Afmælisbörnin afla sér oftast
haldgóðrar menntunar sem á eftir
aö nýtast þeim vel í starfi. Algengt
er að þau taki háskólapróf og velji
sér lífsstarf sem krefst mikillar
menntunar. Þessi menntaáhugi er
stundum túlkaður sem mennta-
hroki og er þar um einn mis-
skilninginn að ræða.
Ástalífið
Því hefur stundum verið fleygt
að þetta fólk sé með háskólagráðu
í rúmfræði, svo vel virðist það
vera aö sér í ástalífinu. Ekki skal
fullyrt nokkuð um þaö en það er
víst að ástarguðinn á ekki dyggari
stuðningsmenn en þá sem fæddir
eru á þessum degi. Oft er það svo
að þetta fólk gengur alls ekki í
hjónaband en lifir þó.ekki neinu
klausturlífi. Ef fólk þetta gengur í
hjónaband verður sambúðin slétt
og felld svo það minnir helst á
lognmollu. Börnin verða sjaldnast
fleiri en tvö.
Heilsufarið
Heilsan er góð en þó þarf
afmælisfólkið að gæta sín á að
vanrækja ekki hjartaö og
blóörásarkerfið.
Hamingjutölurnar eru 1 og 3.
4.
ÁGÚST
Skapferlið
Lundarfar afmælisbarnsins
minnir oft á þjóðhátíðardag
Bandaríkjanna sem var fyrir
mánuöi. Fólkið, sem fætt er í dag,
slær oft á létta strengi allan
daginn og gerir allt í því að ekkert
spilli fyrir gleöi sinni. Þaö er sem
sagt sífellt í hátíðarskapi en í raun
og veru veit það sjálft ekki af
hverju. Það er grunnt á þunglynd-
inu hjá afmælisbarninu þótt alltaf
sé reynt aö byrgja það inni sem
mest. En dags daglega er lundin
létt og það er fyrir mestu.
Lífsstarfið
Oft er sagt að afmælisbörnin
fari syngjandi í gegnum lífiö og
það gildir líka um atvinnulífið.
Þessu fólki virðist standa algjör-
lega á sama hvar þaö vinnur og
hvað það vinnur lengi á hverjum
vinnustað. Hins vegar er þetta
fólk ágætisvinnukraftur þótt þaö
stansi stutt á hverjum stað í einu.
Þaö er þess vegna erfitt aö henda
reiöur á einhverju sérstöku ævi-
starfi en vinsældirnar á meðal
vinnufélaganna eru ótvíræðar.
Ástalífið
Maður dagsins sprangar á milli
viðkomustaðanna á ástarbrautinni.
Hann stansar aldrei lengi á sama
stað heldur lætur gamminn geisa
áfram. Margir reyna aö bregöa
fyrir hann fæti og leggja fyrir
hann tálsnörur. En maður dagsins
er háll eins og áll og smýgur úr
greipum allra þangað til ...
Hjónabandið verður hamingju-
ríkt.
Heilsufarið
Fólk, sem er fætt á þessum degi,
er yfirleitt stálhraust en karl-
mennirnir, sem fæddir eru í dag,
verða að passa vel upp á hjartaö
og spaðann.
Happatalan er6.
5.
ÁGÚST
Skapferlið
Ef líkja má fólkinu frá því í gær
viö þjóðhátíðardag Bandaríkj-
anna má segja að afmælisbörn
söm, léttlynd og lausbeisluð. Þetta
er kannski ýkt mynd af fólki
dagsins en þó er það staðreynd að
margir eru óvenjukærulausir og
láta allt reka á reiðanum. Samt er
þetta fólk ágætisfólk að mörgu
leyti og góðir vinir vina sinna. En
vegna þess að afmælisbörnin taka
ekki lífshlaupið nógu föstum
tökum verða þau stundum undir í
lífsbaráttunni.
Lífsstarfið
Mönnum dagsins gengur illa að
festa hugann við eitthvert eitt
ákveðið ævistarf. í starfi gengur
þessu fólki upp og ofan. Það vill
leggja sig fram enda hefur það
alla hæfileika til að vegna vel í
starfi. En kæruleysið veröur
mönnum oft aö falli á vinnu-
staðnum.
Ástalífið
Margir gætu haldið af þessari
lýsingu að afmælisbörnin
„parkeri” hvar sem er á ástar-
brautinni. Raunin er hins vegar sú
aö þó aö þau séu opin fyrir hinu
kyninu þá binda þau ekki trúss sitt
við hvern sem er. Fólk dagsins
gengur yfirleitt snemma í hjóna-
band á ævinni og sambúðin verður
hnökralaus.
Heilsufarið
Heilsufarið er eins og hjá fíl með
hestaheilsu, sem sagt óaðfinnan-
leg. Fólk, sem á afmæli í dag, nær
líka oftast háum aldri án þess þó
að ganga í barndóm.
Heillatölurnar eru 2 og 5.
6.
ÁGÚST
Skapferlið
Þeir sem fæddir eru í dag eru
miklir skapmenn. Samt eru þeir
léttlyndir dags daglega. En ef þeir
finna að ekki er fariö með rétt mál
eða þeim finnst fólk sýna óréttlæti
þá bregðast þeir ókvæða við og
sýna tennurnar. Þetta gerir
afmælisbörnin oft á tíðum óvinsæl
en þau láta ekkert hagga sinni
réttlætiskennd. Menn dagsins
hafa gáfur sem eru vel yfir meöal-
lagi og eru alltaf reiðubúnir að
miðla öðrum úr viskubrunni
sínum.
Lífsstarfið
Afmælisfólkiö hefur hæfileika á
ýmsum sviðum og er alltaf reiðu-
búið að þroska þessa hæfileika.
Þess vegna vill þaö ekki rígbinda
sig við ákveðið ævistarf heldur
skipta um starf og umhverfi
sinnum á ævinni.
dagsins í dag séu eins og
verslunarmannahelgin: óreglu- nokkrum
Örlögin valda því hins vegar að
fólk fær ekki að leika lausum hala
langt fram eftir ævinni heldur
verður það að negla sig niður við
ákveöiö starf.
Ástalífið
Afmælisbörnin hafa ótvíræða
hæfileika til að laða að sér hitt
kynið. Kynni við hitt kynið hefjast
snemma á ævinni en þau veröa oft
stutt og snubbótt án þess þó að um
nokkur illindi sé að ræða.
Heilsufarið
Heilsufarið er veikur punktur
hjá afmælisbörnunum, einkum
hjá konum. Einu ráðin, sem hægt
er að gefa, eru þau að fólk passi
vel upp á útlínurnar og drekki
frekarvatn en vín.
Heillatölurnar eru 1 og 6.
7.
ÁGÚST
Skapferlið
Maður dagsins er fljótur að
kynnast bæði nýjum hugmyndum
og persónum. Hann er vinsæll af
alþýðu manna og kemur sér alls
staöar vel. Hann lætur fátt koma
sér úr jafnvægi og tekur á vanda-
málunum af rósemi og festu. Þaö
eina sem hægt er að setja út á
hann er að hann sé of ýtinn, sumir
segja frekur. En þá er hann í raun
og veru aðeins aö berjast fyrir sér
og sínum og það er ekkert annað
en gott um það að segja.
Lífsstarfið
Fólkið, sem fætt er í dag, býr
yfir óvenjumiklum hæfileikum.
Það býr til dæmis yfir stórkost-
legum listrænum eiginleikum sem
mikilvægt er að fái að njóta sín.
Ævistarfið er oftast á listasviðinu
eða störfum sem tengjast á
einhvern hátt listum.
Ástalífið
Menn koma ekki að tómum
kofunum þegar hitt kyniö ber á
góma hjá afmælisbörnunum. Þau
fá snemma áhuga á nánum
kynnum viö hitt kynið og stundum
er afsprengi æskuástarinnar
komið í forskóla þegar afmælis-
barnið setur upp stúdentshúfuna.
Hjónabandið verður langlíft og
stórslysalaust en almennur áhugi
á hinu kyninu hverfur ekki fyrr en
menn berja nestiö.
Heilsufarið
Ekkert er hægt að setja út á
heilsufarið. Einstaka afmælisbarn
á þó í erfiðleikum með meltinguna
og meltingarfærin.
Heillatölur afmælisbarnsins eru
1 og7.
31. tbl. Víkan 27