Vikan - 29.01.1987, Blaðsíða 8
Gluggaskraut.
Glerblóm og fjörusteinn.
on). Það er brýnt að verkin hafi góð áhrif á
fólk, ég vil ekki koma aftan að því, það er
nóg af ljótum hlutum í heiminum hvort sem
er.“
- Hvernig gengur að lifa af listinni?
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég vinn ein-
göngu við glerlistina. Undanfarin ár hef ég
unnið við kennslu og listin verið aukabúgrein
en mér finnst mikill munaður að geta einbeitt
mér eingöngu að henni. Jafnframt finnst mér
það dálítið ábyrgðarlaust. En þetta veitir mér
mikla gleði. Ég hlakka til hvers dags eins og
ég sé sífellt að leika mér.“
- Og nú ertu að undirbúa ferðina til Frakk-
lands?
„Já, en veistu, ég er bara búin með fjórar
af þeim fimmtán myndum sem ég á að sýna
í Frakklandi. En ég vinn nú reyndar best
undir pressu.“
- Hversu langan tíma tekur það þig að
gera eina mynd eins og þú ætlar með til Frakk-
lands?
„Ef ég geri ekkert annað er ég um það bil
tvær vikur en ef ég þyrfti að vinna með tæki
það mig urn mánuð að fullklára hverja mynd.“
- Nú eru það speglar sem er ætlað að hanga
á vegg sem þú ert að vinna að núna en ekki
steindir gluggar eins og þú ert líklega þekkt-
ust fyrir. Hvers vegna skiptir þú yfir í spegl-
ana?
Ingunn fer að hlæja og segir: „Ég hef víst
sagt þetta oft áður en kveikjan var sú að ég
er mjög hrifin af íþróttum og stunda þær raun-
ar sjálf, en stundum ganga þær út í öfgar.
Mér ofbýður stundum þessi sjálfshrifning
íþróttamanna, sérstaklega þeirra sem eru í
vaxtarrækt, þegar þeir standa fyrir framan
spegil og hnykla vöðvana. Mér fannst að þeir
hefðu gott af því að gjóa augunum á eitthvað
annað en sjálfa sig og því fór ég út í spegl-
ana. Það má eiginlega segja að þetta sé svar
mitt við vaxtarræktinni."
- Hvernig stóð á því að þér var boðið að
vera með einkasýningu í Frakklandi?
„Jaques Foire er mjög þekktur glerlistar-
maður í Frakklandi, konan hans á og rekur
eitt stærsta glerlistargalleríið í Chartres sem
er borg nálægt París. Madame Foire hafði séð
eitthvað af verkum eftir mig og langaði til að
sjá meira. í fyrravetur sendi ég henni ljós-
myndir af verkum eftir mig og fór svo sjálf
út síðastliðið vor og þá var þessi sýning ákveð-
in.“
- En Chartres, hvers konar borg er hún?
„Chartres er miðstöð glerlistarinnar í
Frakklandi. Þar er dómkirkja sem er mjög
fræg fyrir stórkostlega steinda glugga. Fólk
kemur hvaðanæva að til að skoða þá. Þarna
búa frægustu glerlistarmenn Frakklands. Auk
þess eru í Chartres öll bestu glerlistargalleríin
og þar er gott að kaupa gler.“
- Að lokum, hvað er svona heillandi við
að vinna gler?
„Það sameinar þrennt sem mér er mjög
mikilvægt: það er skemmtilegt, það er gefandi
og það er oftast nær þakklátt. Én ef mér líkar
ekki útkoman get ég alltaf látið verkin detta
í gólfið og þá eru þau ekki lengur til," segir
Ingunn hlæjandi en bætir svo við: „Það hefur
reyndar aldrei reynt á það til þessa.“
8 VIKAN 5. TBL