Vikan - 03.09.1987, Side 44
Vikan — böm
MJÓLKURHRISTINGAR
OG HANASTÉL
Hvernig væri að fá sér girnilegan
mjólkurhristing? Já, eða skrautlegt
hanastél. Hér höfum við nokkrar upp-
skriftir sem auðvelt er að fara eftir. Það
er nauðsynlegt að nota fin glös undir
drykkina en fáið þó leyfi hjá foreldrum
ykkar svo að þið verðið ekki skömmuð
fyrir að nota rándýr kristalsglös. Svo
skuluð þið skreyta drykkina, til dæmis
með mislitum sogrörum, pappírssólhlíf-
um eða ávöxtum, allt eftir því hvað til er.
Þessir drykkir eru ætlaðir til hátíða-
brigða enda ekkert gaman ef þetta er
gert á hverjum degi.
Þessu fylgir líka að taka verður til
eftir sig. Annars er ekki víst að þið fáið
að spreyta ykkur i eldhúsinu aftur.
En nú skulum við líta á uppskriftirnar.
BANANAHRISTINGUR
1 stór banani
1 teskeið nýkreistur sítrónusafi
1 teskeið sykur
4 desílítrar mjólk
Afhýðið bananann og merjið með
gaffli. Setjið bananastöppuna, sítrónu-
safann og sykurinn í hrærivélarskál og
þeytið vel. Þá er mjólkinni hellt saman
við og þeytt svolítið lengur. Hellið þessu
í há glös og setjið sogrör í.
SUKKULAÐIHRISTINGUR
3 desílítrar mjólk
'A lítri vanilluís
5 matskeiðar kakómalt
Hellið mjólkinni í hrærivélarskál,
skerið ísinn í smábita og setjið í skálina.
Þá er kakómaltinu bætt út í og þeytt
vel. Hellið þessu í há glös, stráið söxuð-
um möndlum yfir ef þær eru til og setjið
sogrör í drykkinn.
KÓKAKÓLADRYKKUR
Frystið kaffi í ismolaboxi og myljið
klakann siðan og hálffyllið hátt glas.
Fyllið glasið síðan með köldu kóki og
setjið sítrónusneið út í.
Ykkur finnst þetta ábyggilega skrýt-
inn drykkur og kannski illa farið með
kókið, en það er allt í lagi að prófa
hvernig kaffi og kók smakkast saman.
Að lokum er hér uppskrift að ekta
sparidrykk, en til að laga hann þarf að
hafa rafmagnshristara.
JARÐARBERJA-
HANASTÉL
8-10 fersk jarðarber
1 desílítri grenadín (eldrautt
síróp í flösku, fæst í
mörgum matvörubúðum)
1 desílítri rjómi
1 desílitri engifer-gosdrykkur
Setjið allt saman í hristarann ásamt
muldum klaka. Setjið hristarann á fullan
hraða i nokkrar sekúndur. Hellið
drykknum í glös og skreytið með hálfu
jarðarberi og sogröri.
44 VIKAN 36. TBL