Vikan


Vikan - 10.12.1987, Blaðsíða 5

Vikan - 10.12.1987, Blaðsíða 5
Trabantinn af Brávallagötu enn til Um síðustu helgi hélt Bylgjan uppboð á dýrmæt- ustu eign þeirra skötuhjúa á Brávallagötunni, glæsilegri sjálfrennireið, svartri að lit af gerðinni Trabant. Uppboðið var haldið í Kringlunni og var áhuginn fyrir því svo inikill að þrengslin urðu með ólikindum. Skúli rafvirki (faðir Eiríks Fjalars) sá um að bjóða gripinn upp og gerði það með tilþrifum. Ekki lét hann það á sig fá þó raf- magnið feri af hátalarakerfinu, heldur hækkaði hann bara rödd- ina og manaði fólk upp í að bjóða í gripinn. Undirtektirnar létu heldur ekki á sér standa, boðin hækkuðu ört og á endan- um höfðu þeir sem æstastir voru í austantjaldslímúsínuna boðið 30 þúsund krónur í hana. Þrátt fyrir að Skúli reyndi mikið sölu! til að fá boðið hækkað um fimm aura voru þær tilraunir árang- urslausar og bíllinn var semsé sleginn á fyrrnefhda upphæð. Þegar kveðja átti svo þennan kostagrip eftir margra ára dygga þjónustu fann húsbóndinn á BrávaUagötunni, hún Bibba, svo sáran sting af söknuði í brjósti sér að hún gat ekki með nokkru móti hugsað sér að láta hann af hendi. Hún keypti hann aftur með þeim orðum að hún yrði að fá eitthvað meira fyrir bílinn en bara peninga ef hún ætti að geta séð af honum. Þessi sögufræga bifreið er því enn til sölu á ffjálsum markaði, með þeim kvöðum þó að sá sem festir kaup á henni situr uppi með Halldór líka, því eins og Bibba segir þá verður söknuður- inn léttbærari ef maður losnar við einhvern óþarfa í leiðinni. AE. LJÓSM.: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON Halldór Aml Sveinsson, útvarpsstjóri Útvarps Hafnarfjarðar, stendur hér við stjómvölinn. Ljósm.: m. Hjörleifss. Gaflarar láta sér ekki nægja minna en tvær útvarpsstöðvar Loksins þegar Hafnfirð- ingar ráðast í að hefja stað- bundnar útvarpsútsending- ar láta þeir sér ekki nægja eina stöð heldur er allt útlit fyrir að þær verði tvær. Hall- dór Árni Sveinsson heitir bjartsýnismaðurinn sem fór af stað með Útvarp Iíafnar- flörður á FM 87,7 þann 30. nóvember síðastliðinn. Út- varpar stöðin fréttum og tónlist milli klukkan fjögur og sjö alla eftirmiðdaga nema á sunnudögum. Útvarpsstöð Halldórs Árna er til húsa við Kaplahraun 10 í Hafnarfirði. Upp úr áramótum má svo búast við að í Flensborg- arskóla taki til starfa önnur út- varpsstöð, sem rekin verður í samvinnu nemenda skólans og Hafnarfjarðarbæjar. Frumkvæð- ið áttu nemendur skólans, en bærinn hefúr nú samþykkt að reka stöðina á sína ábyrgð, leggja til allan búnað fyrir stöð- ina og greiða starfsmanni laun, en skólinn leggi til húsnæði — og eitthvað af dagskrárgerðarfólk- inu. Af öðrum er það svo að frétta m.a. að næstkomandi sunnudag hyggjast vinstrisinnaðir útvarps- áhugamenn hefja útsendingar frá stöð sinni, Rót. Að þeirri út- varpsstöð standa yfir 30 ein- staklingar, sem starfað hafa í ýmsum félagasamtökum. VIKAN 5 UÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.