Vikan - 11.02.1988, Blaðsíða 22
Orioistreymi ti Autar
Gleðskapur að fornum höfðingjasið á
hálfrar aldar afmæli Auðar Eydal
Þegar íslenskir menn sóttu heim konunga og aðra
höfðingja til foma vom þeir oft svo fátækir að verald-
legum auði, að þeir gátu sjaldnast sýnt stórmönnun-
um virðingu sína með stómm og verðmætum gjöfum.
Hins vegar vom hinir íslensku fömmenn að jafnaði
aufusugestir meðal höfðingja þar sem þeir færðu
jafnan óforgengilegri gjafir en margir þeir sem ríkari
vom. íslendingamir vom andans menn og orðsins.
Þeir færðu konungum og öðmm stórmönnum eilíft
líf af orðsins snilld og bjuggu mönnum því orðstý
sem „aldregi deyr“ í mörgum ódauðlegum kvæðum.
Auður Eydal leiklistargagnrýnandi og lífskúnstner er
fædd á sama degi og ekki ómerkari kona en sjálf
Hollandsdrottning, þann 31. janúar. Þær stöllur litu
þennan heim fyrst fyrir fimmtíu ámm og hafa báðar
gert garðinn frægan hvor á sinn hátt. Okkur er
ókunnugt um hvernig Beatrice drottning hélt upp á
hálfrar aldar afmæli sitt en Auður kaus hins vegar að
feta í fótspor fornra höfðingja og þyggja firemur
andans gjafir en veraldlegar frá gestum sínum á
þessum tímamótum. í stað venjulegra pakka í glans-
pappír með slaufu urðu gestimir að færa afmæl-
isbaminu persónulegri gjafir beint firá hjartanu hver
með sínu lagi. Vikan var meðal gesta á þessari nýstár-
legu afimælisveislu og var ekki annað að sjá og heyra
en að gestir og gestgjafar skemmtu sér konunglega.
Auður Eydal ásamt eiginmanni sínum Sveini R. Eyjólfssyni blaða-
útgefcnda. Auður heldur á myndbandssnældu sem félagar henn-
ar og samstarfcfólk í kvikmyndaeftirlitinu færðu henni með
lúðraþyt og söng.
Erlingur Gíslason leikari hafði fengið leyfl konu sinnar Brynju
Benediktsdóttur til að mæta í afrnæli Auðar vinkonu þeirra og
„jafnvel sprella svolítið," eins og hann orðaði það. „Drápur“
Erlings voru í formi sonnetta sem hann flutti af meiri Iist en við-
staddir höfðu áður heyrt.
Veislustjóri í hálfrar aldar af-
mælisveislu Auðar Eydal var
Ellert B. Schram ritstjóri DV.
Hann sést hér ásamt afmælis-
barninu og eiginmanni Auðar,
Sveini R. Eyjólfssyni.
4 100 ára aflnæli Auðar verður
væntanlega haldið með viðlíka
glæsibrag og 50 ára afinælið,
þar sem henni var færð orka
mikil og öflug að gjöf sem
tryggir það að hún getur hald-
ið upp á aldaraflnæli sitt í flillu
fiöri. Orkuflytjendur og fram-
leiðendur voru þau Ingunn
Benediktsdóttir glerlistakona
og jógaiðkandi og maður
hennar Högni Óskarsson geð-
læknir. Þau söfnuðu saman
andlegrl orku viðstaddra og
beindu henni um stund
óskertri að Auði til að hlaða
hana upp fyrir næstu 50 árin.
22 VIKAN