Vikan - 11.02.1988, Blaðsíða 21
Hvað kostar að
horfa á málverk?
Myndlistarmenn huga nú í
vaxandi mæli að höfundar-
rétti sínum. Hljómlistar-
menn og rithöfundar hafa
áratugum saman verið
vemdaðir með sérstökum
reglum og lögum um höf-
undarrétt. Myndlistar-
mennirnir hafa í raun engan
rétt - þegar málverk er selt,
jafnvel fyrir milljónir á upp-
boðl, hefur hingað til lítið
eða ekkert runnið til þess
sem myndina málaði elleg-
ar erfingja hans/hennar.
Á síðasta löggjafarþingi fs-
lands voru samþykkt ný lög um
listmunauppboð. Þar er tekið
fram að 10% söluverðs lista-
verks á uppboði skuli renna til
listamannsins eða handhafa
höfundarréttar hans.
Nú um helginá verður haldin
ráðstefiia um þessi höfúndarrétt-
armál myndlistarmanna og mun
þá væntanlega margt rætt sem
hugsanlega gæti bætt stöðu
myndlistarmanna í þessum
efhum, svo sem árlega greiðslu
fyrir myndverk sem hangir uppi í
opinberri stofiiun, gjald vegna
sýningar á myndverkum á opin-
berum vettvangi og gjald vegna
birtingar á myndverki í blöðum
og bókum. - GG
MÁNAKLÚBBURINN
perla íslensks
skemmtanalífs
Hljómsveit Mánaklúbbsins
er skipuð þaulreyndum
tónlistarmönnum
og leikur fyrir dansi
á föstudags-
og laugardagskvöldum
Sjáumst
MÁNAKLÚBBURINN ER OPINN:
Fimmtudagskvöld kl. 18.00 - 1.00 Laugardagskvöld kl. 18.00 - 3.00
Föstudagskvöld kl. 18.00 - 3.00 Sunnudagskvöld kl. 18.00 - 3.00
Brautarholti 20, símar 29098 og 23335.
Gengið inn frá horni Brautarholts og Nóatúns.
I m la carte" salnum er boðid upp á glœsilegan sérrétta matseðil, góða
þjónustu og þcegilegt umhverfi.
Borðapantanir daglega í símum 29098 og 23335
VIKAN 21