Vikan - 11.02.1988, Blaðsíða 46
Af
barnum
í glímuna
líramlciðcndur Staupasteins
hafa nú ákveðið að búa til nýjan
grínþátt með Khea Perlmann í
aðalhlutverki. Rhea leikur bar-
þernuna kjaftforu og barn-
mörgu, Caria Portelli, í Staupa-
steini en í nýju þáttunum verð-
ur hún umboðsmaður hóps
glímukvenna. Þess má geta í lok-
in að Rhea er gitt engum öðrum
en Danny DeVito sem lék m.a. í
Romancing the Stone og Ruth-
less People. Sannast þar hið
fornkveðna; sækjast sér um líkir.
Tímosparandi föt
Cybill Shepherd sem leikur
eins og kunnugt er Maddie Hay-
es í þáttunum Hasarleikur þarf
ekki lengur að eiga í vandræð-
um með brjóstagjöf í vinnunni.
Fatahönnuður þáttanna hannaði
nefhilega alla búninga hennar
þannig að framparturinn á þeim
er útbúinn með frönskum
rennilás og hægt að svipta hvor-
um helmingnum sem er frá
fýrirvaralaust.
Til þessara ráða var gripið eft-
ir að Cybill fór að mæta á töku-
stað með tvíburana sína ný-
fædda og í ljós kom að verðmæt-
ur tími fór til spillis þegar hún
þurfti að svipta sig klæðum og
koma þeim aftur á sinn stað eftir
að tvíburarnir voru búnir að fá
nægju sína.
Skrifaðu ávísanir sjálfur
Bill Cosby er eins og alþjóð
veit einn tekjuhæsti og ríkasti
leikarinn þar vestra og talið er
að hann hafl halað inn u.þ.b. 57
milljónir dollara á síðasta ári.
Þegar minni spámenn í skemmt-
anabransanum spyrja hann ráða
í sambandi við fjármál svarar
hann því til að fyrsta reglan sé
að skrifa sjálfur undir ávísanirn-
ar sínar.
„Það skiptir engu máli hversu
ríkur þú ert, skrifaðu sjálfúr
ávísanirnar. Margir gefa um-
boðsmönnum sínum, lögfræð-
ingum eða framkvæmdastjórum
umboð til að skrifa út af heftinu
og komast svo allt í einu að því
að þeir eru gjaldþrota eða
skulda yfirvöldum stórar
fúlgur.“ Svo mörg voru orð
„Dollar Bills“ eins og hann er
kallaður unt hvað skal varast
þegar ntaður er fjáður.
Brúðkaup
taka tvö
Og enn af skötuhjúunum ný-
giftu þeint Bruce og Denii. Þeg-
ar forráðamenn Tri Star, kvik-
myndafyrirtækisins sem sér uni
dreiflngu á nýjustu mynd Bruce
Willis, fréttu af brúðkaupinu
varð aldeilis uppi fótur og fit.
Brúðkaup í kyrrþey var nefiii-
lega álitið sóun á kynningartæki-
færi og því báðu kaupahéðnarn-
ir unt að fá að halda þeim glæsi-
legt brúðkaup með öllu tilheyr-
andi.
Þó að hjúin hafi ekki hugsað
sér að endurtaka athöfnina létu
þau undan og því var haldið eitt
stykki brúðkaup nteð öllu í
Hollywood rétt fýrir jólin. Talið
er að kostnaðurinn við brúð-
kaupið hafi numið u.þ.b. tíu
milljónum króna og þótti kvik-
myndajöfrum fjármununum vel
varið vegna auglýsingagildi at-
hafnarinnar.
Ekkert var til sparað og voru
einkaþotur pantaðar í hrönnum
til að ilytja veislugesti til og frá
brúðkaupinu og aðeins mamrinn
ofan í gestina finim hundruð
kostaði hátt á þriðju milljón
króna.
Að sögn Bruce var fyrri at-
höfnin hljóðlát, fljótleg og róm-
antísk, alveg eins og hann vildi
hafa hana. — „En ég vildi að
Derni fengi að upplifa þann
glæsilegasta og eftirminnileg-
asta dag sem nokkur brúður get-
ur beðið um,“ sagði hann unt þá
ákvörðun að endurtaka brúð-
kaupið með stæl.
Brúðkaups-
myndir
Bruce Willis og Denti Moore
sem giftu sig í kyrrþey í lok nó-
vember á síðasta ári fengu höfð-
inglega brúðkaupsgjöf frá 20th
Century Fox kvikmyndafyrir-
tækinu, nefnilega myndbönd
með öllum kvikmyndunt sem
Fox hafa framleitt, yfir 1000
talsins. Ef hægt væri að kaupa
þennan pakka á frjálsum mark-
aði (mörgum myndanna er ekki
dreift á myndböndum) myndi
hann kosta u.þ.b. þrjár milljónir
króna. Verðgildi myndanna er
enn meira í augum Bruce þar
sem eitt helsta tómstundagam-
an hans er að horfa á gamlar
bíómyndir.