Vikan - 26.05.1988, Qupperneq 22
Einn af nýjusfu vinum Liz, útgefandinn Malcolm Forbes. Það fer ekki á milli mála að leikkonan er ekki 90 kíló lengur.
að eiginkonan fylgdi honum og gerði sitt
til þess að draga að atkvæðin. Sumir létu
þau orð falla, að þar sem Elizabeth Taylor
væri búin að vera sem leikkona hefði hún
ekki annað betra við tímann að gera en að
reyna að styðja við bakið á eiginmanni
sínum. Ástæðan fyrir því að hún hellti sér
út í kosningabaráttuna af jafnmiklum krafti
og raun varð á var reyndar ekki þessi, að
hennar eigin sögn, heldur það að hún elsk-
aði Warner og trúði á hann og þess vegna
lagði hún sig alla fram um að afla honum
fylgis.
Endalaus vinna
Það rann ekki strax upp fyrir Liz að
kosningabaráttan og allt sem henni fylgdi
var í raun 24 tíma vinna á sólarhring. Hún
hugleiddi því ekki afleiðingarnar af stöð-
ugri þreytu og því að fá aldrei að vera í
ffiði. Hún hugsaði ekki heldur út í hvað
það gæti kostað hana að vera alltaf að
borða óhollan mat og það á öllum tímum
sólarhrings til þess eins að „halda þrekinu"
eins og það var látið heita.
John Warner var alltaf að undirbúa
næsta fúnd, eða næstu heimsókn, ræðu eða
móttöku og Liz vissi að hún varð að standa
við hlið hans. — Ég vissi líka að ég var farin
að þyngjast, segir hún, - rétt eins og marg-
ar aðrar eiginkonur stjórnmálamanna
gerðu, og mér var eiginlega alveg sama.
Það eina sem skipti máli var að sigra í
kosningunum. Þar sem ég var heldur ekki
lengur starfandi leikkona, fannst mér ekki
breyta neinu hvernig ég liti út eða hversu
þung ég væri.
Og leikkonan heldur áfram: — Ef ég hug-
leiði nánar matarvenjur mínar þessa mán-
uði, þá er næsta merkilegt, að ég skuli ekki
hreiniega hafa sprungið. Og það eru engar
ýkjur þegar sagt er að leiðin upp á stjórn-
málahimininn hefur eyðilagt líf jafhmarga
og eyðilagðir hafa verið í Hollywood. Eg
22 VIKAN
Elizabeth Taylor er hér hátt í 90 kíló. Sjálfs-
virðingin orðin mjög lítil og útlitið eftir því.
Hún er á leið í Studio 54 með eigandanum,
Steve Rubell. Myndin er tekin árið 1979.
hafði ekki áhuga á neinu öðru en kosning-
unum. Það var ekki hægt að leyfa sér neins
konar lúxus, en ég hafði einmitt alltaf not-
ið þess að hafa fallega hluti í kringum mig
og njóta lífsins. Ég hafði líka kunnað vel að
meta að á mig væri horft. Margir vinir mín-
ir töldu því heldur ólíklegt að ég ætti eftir
að halda þetta út. -Þú veist Elizabeth að
þú átt eftir að þurfa að ferðast til staða,
þangað sem aðeins er hægt að fara í Grey-
hound áætlunarbíl, og þú veist að þú getur
ekki tekið þjónustulið með þér, já og þú
veist að þú getur ekki haft með þér hár-
greiðslukonu heldur.
Gæti hún klætt sig
og verið stundvís?
John Warner hafði líka áhyggjur af eig-
inkonu sinni. Gæti hún þolað aflt umstang-
ið, gæti hún klætt sig sjálf, lagað á sér
hárið, og það sem mestu máli skipti, —
myndi hún geta verið á réttum tíma á rétt-
um stað. Liz sýndi þeim sem í kringum
hana voru að hún gat gert það sem þurfti,
þegar þess þurfti. Hún fór á fætur eld-
snemma á morgana, ferðast í áætlunarbíl-
um og gerði það sem til var ætlast af
henni. Hún hélt andlegu og líkamlegu
þreki með því að borða. Eini lúxusinn sem
hún nú gat leyft sér, að því er virtist, var að
borða, og það þótt stundum væri ekki um
annað að ræða en belgja sig út á hamborg-
urum og ffönskum kartöflum.
Ekki fékk kona frambjóðandans að ráða
því hverju hún klæddist. Hún hafði lengi
haft mikið dálæti á fljóubláum fötum, en
nú gerðist það dag nokkurn að til hennar
kom sendinefnd frá Republikanaflokknum
og sagði að hún mætti ekki lengur klæðast
fjólubláu. Liturinn táknaði ástríður og auk
þess tengdu margir hann við kóngafólk, og
hvorugt hentaði flokksmönnunum. Það
var ekki um annað að ræða en leggja til
hliðar allt sem fjólublátt var. En það var
fleira sem Elizabeth Taylor varð að þola á
þessu kosningaferðalagi. Hún var stöðugt
að heilsa fólki með handabandi og endir-
inn varð sá að hún fmgurbrotnaði og
hægri höndin bólgnaði öll upp. Flestir
sýndu henni skilning þegar hún reyndi að
hætta að heilsa með handabandi, en hún
átti líka eftir að heyra um það rætt hversu
ókurteis hún hefði verið þegar hún tók á
móti fólki með hendur fyrir aftan bak.
Eftir því sem lengra leið á kosninga-
baráttuna og álagið varð meira fór hún að
auka við sig matinn. Oft var ekki tími til
þess að borða viturlega og hvenær sem því