Vikan - 21.07.1988, Qupperneq 24
Sumargetraun Vikunnar
Amsterdam, Hamborg
Þitt er valið, lesandi góður, vinnir þú í
Getir þú sagt rétt
til um hverjir
nota þau tólf
merki, sem birt
eru í þessu tölu-
blaði Vikunnar
og því næsta,
gætir þú unnið
heimsborgarferð
fyrir tvo með
Arnarflugi.
Hún er ekki erfið,
sumargetraun Vik-
unnar og Arnar-
flugs, sem fer af
stað á þessari opnu og líkur
í næsta tölublaði. En verð-
launin eru glæsileg; vinn-
ingshafinn getur valið á milli
vikuferðar til Amsterdam,
Hamborgar eða Zurich,
þessara þriggja heimsborga
í Hollandi, Þýskalandi og
Sviss, sem Arnarflug heldur
uppi áætlunarflugi til allt árið
um kring.
Vinningshafinn getur farið
í verðlaunaferðina hvenær
sem honum best hentar og
tekið með sér ferðafélaga.
Þeim verður svo séð fyrir
gistingu á glæsilegu hóteli í
þeirri borg sem fyrir valinu
verður og tryggt að vel verði
tekið á móti þeim.
Það er vissulega erfitt val
sem vinningshafinn stendur
frammi fyrir því allar eru
borgirnar þrjár spennandi
enda allar fjölsóttar af ferða-
mönnum. Allar bjóða þær
allt það er ferðamaður á
heimsborgarreisu leitar að,
sama hvort sóst er eftir að
skoða listasöfn, hlýða á
góða tónleika, fara í leikhús,
versla, borða góðan mat
með góðu víni á ólíkustu
veitingastöðum, fara í stutt-
ar siglingar, skemmta sér
þar sem næturlífið er hressi-
legt - eða Ijúft, allt eftir
smekk. Allt er þetta að finna
í borgunum þremur og gott
betur en það.
Nú, eða kannski þú kjósir
einfaldlega að skoða borg-
arlífið í rólegheitum á
gönguferðum. Þá eru borg-
irnar hver annarri fegurri og
hreinasta veisla fyrir augað
að virða þar fyrir sér gömlu
Aukavinningar: Bond-prjónavélar frá ALLT
^^ukavinningarnir í þessari
#% sumargetraun Vikunnar
^■^Leru Bond-prjónavélar
# % frá versluninni ALLT
við Drafnarfell 6 í Breiðholti.
Síðan innflutningur hófst á
þessum vélum fyrir aðeins fimm
árum hafa á milli fimm til sex-
þúsund vélar verið seldar. Verð-
ið er um tíu þúsund krónur og
býður verslunin upp á námskeið
í notkun vélanna eða mynd-
band að láni með öllum nauð-
synlegum leiðbeiningum. ís-
lenskur leiðarvísir fylgir líka vél-
unum.
Það er innan við áratugur síð-
an framleiðsla Bond-prjónavél-
anna hófst ( Englandi, en vin-
sældir þeirra urðu strax miklar i
bæði Evrópu og Bandaríkjun-
um. Til marks um það má t.d.
geta þess, að í Svíþjóð, Bret-
landi og Bandaríkjunum eru
gefin út sérrit reglulega með
uppskriftum sérstaklega fyrir
Bond-prjónavélarnar.
Vigdís Stefánsdóttir í ALLT
segir okkur þannig frá því
hvernig framleiðsla vélanna
hófst: „Prjónavélasölumaður í
Bretlandi hafði velt því talsvert
fyrir sér hvort ekki væri hægt að
framleiða einfaldari prjónavél en
þá sem hann var að selja. Hann
hafði líka veitt því athygli, að í
lesendadálkum breska blaðsins
Observer var alltaf verið að
kvarta yfir því hve flóknar
prjónavélar væru f notkun.
Sölumaöurinn fékk blaðið til liðs
við sig og auglýst var eftir hug-
myndum lesenda að óska-
prjónavélinni. Úrhugmyndunum
var svo hönnuð hin einfalda
Bond-vél sem strax vakti verð-
skuldaða athygli."
Bond-prjónavélin er með einu
borði, eins metra löngu. Hægt
er að fitja upp 100 lykkjur, en
gert er ráð fyrir að hægt sé að fá
30 nála viðbót ef þess er óskað.
Prjónafestan er ákveðin með
fjórum mismunandi plötum, sem
lagðar eru í sleðann ofan á vél-
arborðinu eftir því hvaða garn á
að nota hverju sinni. Fjórar
lóðastengur fylgja vélinni til
þess að hengja neðan í prjóna-
skapinn eftir þörfum og grófleika
garnsins. Hægt er að prjóna úr
garni sem prjóna mætti á prjóna
frá nr. 2 1/2 til 7 eða 8 og meira
að segja íslenskan lopa.
Einhverjir tveir þátttakendur
sumargetraunarinnar eiga eftir
að eignast Bond og kynnast
kostum hennar innan skamms. í
næsta tölublaði birtast tvær
uppskriftir Vigdísar Stefánsdótt-
ur að peysum, sem prjóna má í
höndunum eða á Bond-vélar.
24 VIKAN