Vikan


Vikan - 01.09.1988, Síða 28

Vikan - 01.09.1988, Síða 28
Mick Jagger og Jerry Hall að skilja? Mick Jagger og sambýliskona hans, fyrirsætan Jerry Hall, eru um það bil að skilja. Samkvæmt því sem nánir vinir þeirra segja Shamband hins 45 ára gamla Rolling Stones meðlims og hinnar fögru Jerry hefur verið stormasamt alveg frá byrjun þessa árs og þau hafa rifist heiftarlega, meira og minna allan tímann. Og á síðustu vik- um hefur sambúð þeirra, sem staðið hefur yflr í 10 ár, verið enn þvingaðri en nokkru sinni eftir að Mick komst að því að kærastan hans, og móðir tveggja barna hans, hafði farið á bakvið hann og staðið í sambandi við ungan og mynd- arlegan hefðarmann, Ogilvy lávarð sem á litla höll þar sem þjónustufólk er í hverju skoti. Jerry, sem er 33 ára, og Da- vid Ogilvy, sem er ríkur, þrí- tugur og lávarðssonur, hittust í brúðkaupsveislu hjá „fína“ fólkinu á írlandi í síðasta mán- uði. Síðan hafa þau hist mörg- um sinnum - Mick til mikillar talinn eiga sem svarar hálfum öðrum milljarði íslenskra króna. Kunningi þeirra hjónaleysa sagði: „Mick varð alveg foxill- ur þegar hann komst að því að Jerry var að hitta þennan mann. Hún var mjög hrifln af Ogilvy þegar hún hitti hann fyrst; það er stíll yfir honum og hann er ótrúlega myndarlegur. t>ó Mick sé einn af frægustu skemmtikröftum heims, þá lít- ur hann nijög upp til aðalsins og hefði ekkert á móti því að tilheyra honum sjálfur. Þannig að nú þegar kærastan hans hef- ur fallið fyrir einum úr þeim hóp þá hlýtur það að snerta hann mjög illa. Jerry hefur ekkert verið að fara í felur með samband sitt við aðalsmanninn. Um daginn voru þau saman í partýi og vönguðu þá svo ])étt saman að það hefði þurft logsuðutæki til að aðskilja þau. Og í öðru var það þannig að þó hún kæmi á staðinn með Mick þá var Jerry' hálft kvöldið með Ogilvy. Hún flögraði á milli þeirra án þess að skammast sín hið minnsta. Hinir gestirnir trúðu varla sín- um eigin augum - og vissu ekk- ert um hvað þeir ættu að tala við Jerry. Þeir vissu ekki hvort 28 VIKAN þeir ættu að spyrja hana um Mick eða David. Þetta var nijög pínlegt." Laumustefnumót Jerry við laglega lávarðinn sinn hafa orðið til þess að samband hennar og Micks hangir á blá- þræði ef hann er ekki þegar slitinn. En áður en Ogilvy kom til þá var ástarsamband þeirra þegar orðið lítilfjörlegt og ekk- ert nema vandamál — og það stærsta að Mick neitaði að kvænast Jerry. Brúðkaup eða Jerry hefur hótað brottför Þessi sem allt vissi upplýsti í viðbót að Mick hefði nokkrum sinnum lofað brúðkaupi en alltaf hætt við á síðustu stundu. „Sem varð til þess að Jerry hefur sagt Mick nokkrum sinnum að hún ætli að fara frá honum, en hann hefur alltaf litið á það sem ntarklausa hótun. Núna eru þau aðskilin; hún fór til New York þar sem hún verður „aðalnúmerið" í leikhúsverki og hann fór í liöll- ina sína í Frakklandi. Jerr\ hefur sagt okkur að hún sé búin að fá nóg af Mick. Ekkert okkar sem eru henni nákomin getum ásakað hana því hún hefur átt virkilega erf- itt undanfarið. Nokkrir álíta að hún sé að niðurlægja Mick op- inberlega með því að vera ekk- ert að fela samband sitt og Ogilvy — og urn leið að þrýsta á hann; þannig að vilji hann fá hana aftur þá verði það ekki nema þau gifti sig.“ Jeriy' er á leiðinni að feta i fótspor Marilyn Monroe því hún er að fara að leika í upp- færslu leikhúss í New Jersey á myndinni „Bus Stop“. En hún hefur áður staðið í ástarsam- bandi við annan á þessu 10 ára tímabili sem hún og Mick hafa verið saman. Það var með milljónamæringnum og veð- hlaupahestaeigandanum Ro- bert Sangster árið 1982, eftir að Mick hafði sést víða, alltaf með ny'rri og nýrri — og auð- vitað fallegri konu. Það var ekki bara til að hefna sín held- ur líka til að fá Mick til að hegða sér betur og það virkaði svo sannarlega. Hún gerði hann að fífli og það líkaði Mick afar illa. Að lokum tókst hon- um að vinna Jerry til baka með því að lofa þvi að þau rnyndu stofna fjölskyldu. Vinir Jerry, sem á tvö börn með Mick: Elizabeth Scarlett sem er fögurra ára og James sem er tveggja, telja að ástand- ið sé mun aivarlegra núna held- ur en þegar fyrirsætan frá Tex- as hljópst á brott með Sangster fyrir sex árum. Vegna þess að Jerry heíúr unnið að því síð- ustu mánuðina að verða fjár- hagslega sjálfstæð þannig að hún geti tekist á við skilnaðinn — og svo hefur heyrst að Ogil- vy sé tilbúinn að kvænast henni. Hún hefur undirritað marga girnilega samninga — þar á meðal samning um að vera í auglýsingu í breska sjónvarp- inu þar sem verið er að aug- lýsa kjötsoðsdrykk og fyrir það fær hún sem nemur ríflega 20 milljónum króna. Einnig hefur hún skrifað undir samning við framleiðendur sundfata um að hún fari af stað með eigin línu í sundfötum og þetta ætti að gefa henni um milljón dollara í aðra hönd. Hún hefur einnig keypt sér hús í London, sem hún ætlar að nota sem sinn samastað. Og nú þegar henni hefur loks tekist að fá aðal- hlutverkið í „Bus Stop“ þá ætti henni að takast að skapa sér nafn í skemmtanabransanum — og ekki bara fyrir að vera kær- asta Mick Jagger. Kunningi hennar sagði: ,Jerry hefúr gert sér grein íýrir því í nokkurn tíma að hún þyrfti að geta staðið á eigin fót- um - fjárhagslega, vegna þess að samband þeirra Mick hefur gengið svo illa.“ Mick hefnir sín Mick hefúr brugðist við þessu á þann hátt að fara með fallega, enska fyrirsætu, Cam- illa Nickerson sem er 23 ára, til pínulítillar „paradísareyju" úti fý'rir strönd Florída, eftir því sem sagt er. Áður hafði sést til þeirra í ST. James klúbbnum í London þar sem einkar vel virtist fara á með þeim, þó Mick neiti því að um ástar- samband sé að ræða; Camilla svarar þó ekki á sama máta. Vinkonu Camillu sagði: „Hún

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.