Vikan - 01.09.1988, Page 45
keisarans
ekki lengur klárhelstur, mælti Kastor. —
Samkvæmt skipun keisarans er hann nú
rómverskur borgari. Skilurðu?
— Já, sagði ég.
— Það sem meira er, hélt Kastor áfram,
- þá geturðu tekið nafhspjaldið af jötu-
stokknum þarna. Hann heitir ekki lengur
Porkúlus. Nú heitir hann Insítatus.
Það mun láta nærri að Insítatus þýði
Hvatur, Léttir eða því um líkt. Það var líka
sannnefni, sem Porkúlus var ekki.
— Já, herra, sagði ég bara.
— Þetta er allt og sumt. Mundu að sýna
honum tilhlýðilega virðingu framvegis.
Talaðu ekki til hans nema vera spurður og
kallaðu hann „herra“, — þú sem ert ekki
nema aumur þræll, Pallas minn!
Kastor fór sína leið en ég var hálfniður-
dreginn eftir. Sá sem er þræll kann best við
að allt sé eins og það hefur verið. Öll
breyting er yflrleitt til bölvunar. Og ég
fann það á mér að nú stóðu breytingar fyr-
ir dyrum.
Næstu vikurnar gerðist ekkert sérstakt.
Insítatus vann öll sín hlaup með óbreyti-
legri reglusemi. Þegar aðrir voru viðstadd-
ir goetti ég þess vel að ávarpa hann ekki
nema þegar svo virtist sem hann vildi mér
eitthvað. Ég þurfti ekki annað en kitla
hann á kviðnum til þess að hann hvíaði af
vonsku og það var nægilegt ávarp. — Já,
herra minn, flýtti ég mér þá að segja. —
Undireins, herra!
Samkomulagið okkar í milli hafði mikil
áhrif á alla í hesthúsunum. Að þjóna hátt-
settum, rómverskum borgara skapaði mér
álit sem enginn hinna hestasveinanna
hafði til að bera. En þegar ég var einn með
Insítatusi fór ég að honum með gamla lag-
inu og virtist hann ekkert hafa við það að
athuga.
Það var áður en veðhlaupatíminn var úti
að tvennt gerðist er tíðindum sætti. Fyrra:
Emilíus gaf mér Ioforð fyrir því að ég
mætti kvænast Kamillu dóttur hans.
Annað: Yfirmatreiðslumaður keisarans,
Lúsíus Afer, varð bráðkvaddur.
Ég leiddi ekki hugann að láti Lúsíusar
Afers fyrsta kastið. Ég gat ekki um annað
hugsað en Kamillu og beið með óþreyju
eftir að ná fúndi hennar næst. Hún ætlaði
að hitta mig um kvöldið á venjulegum
tíma bak við hesthús keisarans.
Hún stóð þar og beið mín þegar ég kom.
En er ég nálgaðist hana gerðist nokkuð
sem vakti mér furðu. Hún snerist á hæli og
hljóp sína leið.
— Kamilla! hrópaði ég, en hún svaraði
ekki. Hún var fljót á fæti og ég náði henni
ekki fýrr en hún var komin upp á heyloft-
ið. Ég klifraði upp stigann og sá að hún lá
á grúfú í heyinu og grét eins og hjarta
hennar ætlaði að springa.
Ég dró stigann upp og gekk til hennar
og strauk hár hennar án þess að segja neitt
í fyrstu. En ósjálfráður ótti læsti sig um
hjartarætur mínar. Loks spurði ég: — Kam-
illa, hvað gengur að þér?
— Ó, Pallas, svaraði hún grátandi, — nú
fæ ég aldrei að sjá þig framar.
Ég varð alveg forviða. — Já, en hvað ertu
að segja, elskan mín? Faðir þinn, sem Iof-
aði...
Hún hristi höfúðið. — Já, en það gagnar
okkur ekkert. Hann á ekki sök á-því. Við
verðum bæði tekin af lífi ef við sjáumst
saman.
— Tekin af lífi?
Hún kinkaði kolli. — Það er allt saman
því að kenna að Lúsíus Afer er látinn og
því átti faðir minn að búa til matinn fyrir
keisarann. Faðir minn var svo feginn að
hafa fengið tækifæri... Hún þagnaði og gat
ekki sagt nokkurt orð.
Ég þóttist skilja hvernig í öllu Iægi. — Þú
átt við að ... að föður þínum hafi tekist illa
með miðdegisverð keisarans?
Kamilla neri hendur sínar. - Hamingjan
gæfi að það væri svo vel. En það var ein-
mitt ógæfan, Pallas. Keisarinn sór og sárt
við lagði að hann hefði aldrei borðað jafn
góðan mat. Hann gerði boð eftir föður
mínum og gaf honum frelsi samstundis
svo að nú er ég ekki lengur ambátt!
Ég skildi hana. Fyrir þærl og ambátt sem
gefið hefúr verið frelsi og finnast í nánum
samskiptum er ekki nema um eina hegn-
ingu að ræða: Þau verða bæði að láta lífið!
Ég laut höfði. — Þú hefðir ekki átt að hætta
lífi þínu með því að koma hingað, mælti
ég-
- Ég vildi fegin deyja fyrir þig, Pallas.
En nú er ekki um neina leið að ræða.
Ég reyndi að hugga hana sem best ég
gat. Við vorum bæði sannfærð um að sam-
band okkar væri á enda. Ég hafði álíka
mikla möguleika á að verða leystur úr
þrældómi og Emilíus til að verða keisari.
— Ég skal aldrei giftast neinum öðrum
svo lengi sem ég lifi, hvíslaði Kamilla.
f næstu viku fékk ég nýtt áfall. Ég var að
kemba Insítatusi þegar ég heyrði að stall-
meistarinn kom inn. ÉG herti mig upp.
— Já, herra, sagði ég hárri röddu við klárinn,
— eftir andartak skal ég nú kemba á yður
taglið, herra minn.
— Herra? æpti Kastor með ógnarröddu.
— Við hvað átt þú eiginlega með því að
segja herra? Veistu ekki við hvern þú ert
að tala?
— Ég var að tala við Insítatus borgara,
svaraði ég.
- Ég skal láta Iemja þig fyrir ósvífnina!
ansaði stallmeistarinn. — „Borgara" leyfir
hann sér að segja! Hans hátign keisaranum
ANTHONY STEVEN
Eftir
'S*.
VIKAN 43