Vikan


Vikan - 01.09.1988, Síða 45

Vikan - 01.09.1988, Síða 45
keisarans ekki lengur klárhelstur, mælti Kastor. — Samkvæmt skipun keisarans er hann nú rómverskur borgari. Skilurðu? — Já, sagði ég. — Það sem meira er, hélt Kastor áfram, - þá geturðu tekið nafhspjaldið af jötu- stokknum þarna. Hann heitir ekki lengur Porkúlus. Nú heitir hann Insítatus. Það mun láta nærri að Insítatus þýði Hvatur, Léttir eða því um líkt. Það var líka sannnefni, sem Porkúlus var ekki. — Já, herra, sagði ég bara. — Þetta er allt og sumt. Mundu að sýna honum tilhlýðilega virðingu framvegis. Talaðu ekki til hans nema vera spurður og kallaðu hann „herra“, — þú sem ert ekki nema aumur þræll, Pallas minn! Kastor fór sína leið en ég var hálfniður- dreginn eftir. Sá sem er þræll kann best við að allt sé eins og það hefur verið. Öll breyting er yflrleitt til bölvunar. Og ég fann það á mér að nú stóðu breytingar fyr- ir dyrum. Næstu vikurnar gerðist ekkert sérstakt. Insítatus vann öll sín hlaup með óbreyti- legri reglusemi. Þegar aðrir voru viðstadd- ir goetti ég þess vel að ávarpa hann ekki nema þegar svo virtist sem hann vildi mér eitthvað. Ég þurfti ekki annað en kitla hann á kviðnum til þess að hann hvíaði af vonsku og það var nægilegt ávarp. — Já, herra minn, flýtti ég mér þá að segja. — Undireins, herra! Samkomulagið okkar í milli hafði mikil áhrif á alla í hesthúsunum. Að þjóna hátt- settum, rómverskum borgara skapaði mér álit sem enginn hinna hestasveinanna hafði til að bera. En þegar ég var einn með Insítatusi fór ég að honum með gamla lag- inu og virtist hann ekkert hafa við það að athuga. Það var áður en veðhlaupatíminn var úti að tvennt gerðist er tíðindum sætti. Fyrra: Emilíus gaf mér Ioforð fyrir því að ég mætti kvænast Kamillu dóttur hans. Annað: Yfirmatreiðslumaður keisarans, Lúsíus Afer, varð bráðkvaddur. Ég leiddi ekki hugann að láti Lúsíusar Afers fyrsta kastið. Ég gat ekki um annað hugsað en Kamillu og beið með óþreyju eftir að ná fúndi hennar næst. Hún ætlaði að hitta mig um kvöldið á venjulegum tíma bak við hesthús keisarans. Hún stóð þar og beið mín þegar ég kom. En er ég nálgaðist hana gerðist nokkuð sem vakti mér furðu. Hún snerist á hæli og hljóp sína leið. — Kamilla! hrópaði ég, en hún svaraði ekki. Hún var fljót á fæti og ég náði henni ekki fýrr en hún var komin upp á heyloft- ið. Ég klifraði upp stigann og sá að hún lá á grúfú í heyinu og grét eins og hjarta hennar ætlaði að springa. Ég dró stigann upp og gekk til hennar og strauk hár hennar án þess að segja neitt í fyrstu. En ósjálfráður ótti læsti sig um hjartarætur mínar. Loks spurði ég: — Kam- illa, hvað gengur að þér? — Ó, Pallas, svaraði hún grátandi, — nú fæ ég aldrei að sjá þig framar. Ég varð alveg forviða. — Já, en hvað ertu að segja, elskan mín? Faðir þinn, sem Iof- aði... Hún hristi höfúðið. — Já, en það gagnar okkur ekkert. Hann á ekki sök á-því. Við verðum bæði tekin af lífi ef við sjáumst saman. — Tekin af lífi? Hún kinkaði kolli. — Það er allt saman því að kenna að Lúsíus Afer er látinn og því átti faðir minn að búa til matinn fyrir keisarann. Faðir minn var svo feginn að hafa fengið tækifæri... Hún þagnaði og gat ekki sagt nokkurt orð. Ég þóttist skilja hvernig í öllu Iægi. — Þú átt við að ... að föður þínum hafi tekist illa með miðdegisverð keisarans? Kamilla neri hendur sínar. - Hamingjan gæfi að það væri svo vel. En það var ein- mitt ógæfan, Pallas. Keisarinn sór og sárt við lagði að hann hefði aldrei borðað jafn góðan mat. Hann gerði boð eftir föður mínum og gaf honum frelsi samstundis svo að nú er ég ekki lengur ambátt! Ég skildi hana. Fyrir þærl og ambátt sem gefið hefúr verið frelsi og finnast í nánum samskiptum er ekki nema um eina hegn- ingu að ræða: Þau verða bæði að láta lífið! Ég laut höfði. — Þú hefðir ekki átt að hætta lífi þínu með því að koma hingað, mælti ég- - Ég vildi fegin deyja fyrir þig, Pallas. En nú er ekki um neina leið að ræða. Ég reyndi að hugga hana sem best ég gat. Við vorum bæði sannfærð um að sam- band okkar væri á enda. Ég hafði álíka mikla möguleika á að verða leystur úr þrældómi og Emilíus til að verða keisari. — Ég skal aldrei giftast neinum öðrum svo lengi sem ég lifi, hvíslaði Kamilla. f næstu viku fékk ég nýtt áfall. Ég var að kemba Insítatusi þegar ég heyrði að stall- meistarinn kom inn. ÉG herti mig upp. — Já, herra, sagði ég hárri röddu við klárinn, — eftir andartak skal ég nú kemba á yður taglið, herra minn. — Herra? æpti Kastor með ógnarröddu. — Við hvað átt þú eiginlega með því að segja herra? Veistu ekki við hvern þú ert að tala? — Ég var að tala við Insítatus borgara, svaraði ég. - Ég skal láta Iemja þig fyrir ósvífnina! ansaði stallmeistarinn. — „Borgara" leyfir hann sér að segja! Hans hátign keisaranum ANTHONY STEVEN Eftir 'S*. VIKAN 43

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.