Vikan - 24.08.1989, Síða 15
C5R0ÐURH0RNIÐ
ir kynnist eigandanum. Vinnutíminn er
geysilega langur og allt annað situr raun-
verulega á hakanum. Viss vinnutími er
bæði fyrir opnun og eftir lokun, sérstak-
lega í sambandi við afskornu blómin og oft
skreytingarnar. En draumurinn er líka að
rætast. Mig langaði alltaf að eignast svona
verslun."
— Hvað er skemmtilegast við að reka
verslun af þessari gerð?
„Að kynnast fólki. Hér kemur fólk,
staldrar við til að spjalla og spyrja hvernig
gangi, þótt það kaupi ekki neitt. Ég hef
eignast marga kunningja úr hverflnu, sér-
staklega á meðal eldra fólksins. Það er líka
svo gott að vera innan um blómin.“
— Þú ert með ýmislegt annað en lifandi
blóm, s.s. gerviblóm, ýmsa gjafavöru, kerti
o.s.ffv. Er nauðsynlegt að hafa fleira heldur
en blóm í blómaverslunum?
,Já, því fólk notar blómabúðir mikið til
að kaupa tækifærisgjaflr. Því er kannski
óvænt boðið í afmæli um helgi og þá er
alltaf eitthvað að finna í blómabúðum sem
hægt er að taka með sér. Blóm geta allir
gefið og allir tekið á móti. Enda eru helg-
arnar annríkasti tíminn í blómabúðum.
Merkja kreppueinkennin
á rósakaupum
Afskorin blóm langar okkur til að fræð-
ast um og spyrjum Sigríði hvort þau séu
öll framleidd hér á landi. Sigríður segir að
flest séu þau íslensk og ræktuð í grennd
við Reykjavík. Hún hælir íslensku rósun-
um mikið; hvað búið sé að ná góðum ár-
angri með þær. Þær séu fallegar og standi
lengi. Einstaka blóm séu innflutt og fari
það eftir árstíð hver þau séu. En veit fólk
yfirleitt fyrirfram hvernig blóm það ætlar
að kaupa, þegar það kemur til hennar?
„Það veit það, en þó ekki. Það biður
gjarnan um blómvönd og er með ómótaða
hugmynd um hvernig hann eigi að líta út.
Við fikrum okkur svo áfram með hjálp við-
skiptavinarins, þangað til hann er ánægð-
ur. Þetta á sérstaklega við um konur. Þær
eru einnig passasamari hvað peninga
snertir, halda sig við vissa fjárupphæð.
Karlmenn hins vegar segjast ekkert vit
hafa á blómum. Biðja um hjálp, en hjá
þeim skiptir peningaupphæðin ekki eins
miklu máli. Þeir vilja fá fallegan vönd.“
— Eru tískufyrirbrigði í afskornum
blómum?
,Já, auðvitað, en það skiptist í tvo flokka
eftir aldri kaupanda. Eldra fólkið kaupir
sígild blóm. Yngra fólkið vill eitthvað nýst-
árlegt og öðru vísi en þetta hefðbundna.
Vill t.d. flamingoblóm, condtinum eða
aliunlauk með berengrasi eða stráum. Eða
það kaupir taublóm og tengir lifandi
blómum. Það myndi eldra fólki ekki detta
í hug að gera.“
— Hvað er sígilt í afskornum blómum?
„Rósir númer eitt, tvö og þrjú, þegar
þær fást. Vinsælasti liturinn er rauður, sem
er kærleikstáknið. Og það er í rósakaupun-
um sem maður merkir kreppueinkennin.
Það er búin að vera kreppa nokkuð lengi
núna. Þeir sem keyptu áður 3—5 rósir,
kaupa núna 1—3. Konur gera mikið af því
að kaupa eina rós — sérstaklega á föstudög-
um - þegar þær eru búnar að taka til
Sigríður hælir íslensku rósunum
mikið. Rósavöndur er sígildastur
af blómavöndum og vinsælastar
eru rauðar rósir.
Sjúklingum sem liggja á sjúkrahúsi eru
einkum færðar frestur. Þær ilma vel, eru
smávaxnar og litríkar og því tilvaldar til
að gleðja þá sem eru rúmliggjandi.
17. TBL. 1989 VIKAN 1 5