Vikan - 24.08.1989, Page 33
Myndavél fyrir
Super VHSA'HS og
stóra spólu.
Myndkíkir er til
hliðar og hægt að
hafa vélina á öxlinni.
tengja auka hljóðnema og
textatæki.
Við margar má tengja
textatæki og hafa mögu-
leika á því að geyma
texta sem kemur fyrir
mynd.
Ef við ætlum að senda myndband til
Bandaríkjanna verður að yfirfæra það á
viðkomandi kerfi svo hægt sé að sýna
myndina þar.
Þá eru þrjú myndbandskerfi ráðandi.
VHS sem er algengast, Beta sem er hætt
að ffamleiða og video 8. Ekki er hægt að
sýna spólu úr einu kerfi í öðru. Hins vegar
er hægt að tengja þau saman með snúrum
og fjölfalda eða klippa frá einu kerfi til
annars.
VHS-C eru litlar VHS spólur (30-60
mín). Þær verður að setja í sérstakt hylki
til þess hægt sé að sýna þær í venjulegu
VHS sýningartæki. Video 8 myndbandið er
á stærð við hljóðkasettu. Upptökutími er
allt að 3 klst. Myndin er oftast sýnd í
myndavélinni sem er tengd sjónvarpi.
Verð og gæði
Þeir sem eru að velta fyrir sér mynda-
vélakaupum hyggja að verði sem er nokk-
uð mismunandi. Gamla og góða þumal-
fingursreglan að verð og gæði fari saman,
er hér í góðu gildi. Endanlegt val fer svo
eftir fjárráðum og þeim kröfum sem hver
og einn gerir til tækjanna.
Það sem sumar dýrari vélarnar hafa fram
yfir er:
— Betri myndgæði, fleiri línur.
— Færanlegur myndkíkir, upp/niður.
— Hægt að hafa vélina á öxlinni
— Möguleiki á því að setja inn nýtt
hljóð á áður upptekið efni (Audio dub).
— Betri klipping milli myndskeiða.
— Gott hljóð (Hi Fi, digital).
— Handvirkar stillingar á skerpu, lit og
Ijósopi.
— Stærra svið á breytilinsu t.d. 8x
Þess ber að geta að sumar vélar í ódýrari
verðflokki hafa einhverja af ofantöldum
eiginleikum.
Samsetning myndavélanna
Linsan. Allar myndavélar eru með breyti-
linsu (zoomlinsu). Þá er hægt að draga að
sér myndefhið eða frá. Flestar vélar eru
með 6x zoom eða t.d. f= 12—72 m brenni-
vídd.
— Skarpleiki. Skerpuna (focus) er hægt
að hafa sjálfstillta (auto focus) eða hand-
virka (manual focus).
- Ljósopið getur bæði verið sjálfvirkt
eða handstillt sem hefúr þá kosti að hægt
er að stjórna lýsingunni, einkum í sterku
mótljósi.
Sumar vélar hafa BLC takka sem kemur
að svipuðu gagni þ.e. lýsir upp. Stærsta
ljósop er merkt fremst á linsuna t.d. f 1.4.
- Makróstilling (macro) gefur kost á
því að taka nærmyndir af t.d. skordýrum.
— Litastilling er nú oftast sjálfvirk (auto
white balance). Einnig getur hún verið
handstillt. Þá verður að beina linsunni að
hvítum fleti og ýta á WB takka.
Myndskoðarinn er efst á vélinni. Þar
getur maður séð væntanlegt myndefhi í
litlum skjá sem er oftast svart/hvítur. Þar
má einnig sjá upplýsingar um: upptöku,
rafhlöður, birtu, litastillingu, dagsetningu
o.fl. Einnig er hægt að skoða það efni sem
tekið hefur verið upp á skjánum.
Hljóðnemi er áfastur tökuvélinni.
Hann tekur upp allt hljóð fyrir framan
tökuvélina.
Fjölhraða raflokari (high speed shutt-
er selector) 1/200, 1/500, 1/1000. Þessi
stilling gefur möguleika á því að skoða
hægar og kyrrar myndir með mikilli
skerpu t.d. upptökur af íþróttum og öðru
sem er á hreyfingu.
Mynd- og hljóðdeyfir (fader). Með
því að ýta á þennan takka sem tengdur er
tökutakkanum gefast möguleikar á því að
byrja mynd í svörtu sem lýsist upp. Einnig
getur myndskeiðið dofnað út í svart. Á
sumum vélum fylgir hljóðið með.
Grafík. Flestar myndavélar eru með
dag- og tímastillingu sem flestir ofnota
vegna þess að þessir stafir sjást í tíma og
ótíma. Sumar vélar eru einnig með enska
staffófinu en það gefur möguleika á titla-
gerð. Einnig eru til vélar sem geyma mynd
t.d. af textaspjaldi sem hægt er að leggja
yfir næsta myndskeið sem getur verið
mynd á hreyfingu undir stöfúnum.
Orkan. Allar myndavélar ganga fyrir
rafmagni. Oftast má nota rafhlöður sem
má endurhlaða og er þeim stungið í
myndavélina. Þær endast lengur ef ekki er
mjög kalt úti og öll sjálfvirkni tengd.
Straumbreytir er nauðsynlegur til þess að
taka upp inni í lengri upptökum og til þess
að endurhlaða rafhlöðurnar. Einnig er
hægt að fá orku úr vindlakveikjara sem er
í mörgum bílum ef réttu milllistykkin og
snúrurnar eru fyrir hendi.
MYNDBÖNDIN
Best er að kaupa stutt vönduð mynd-
bönd. Þau eru yfirleitt dýrari og merkt
>4'v _
■■ j^High Speed Shutter 1 —Éiii Fjölhraða raflokari gerir hrað- ar hreyf-
Conventional ingar skarpar í hægri sýn- ingu.
rteSmmÍKj (1/50 sec.)
VHS-C myndavélar fyrir litlar spólur
þurfa: 1. straumbreytitæki/hleðslutaeki.
2. spóluhylki fyrir VHS tæki. 3. rafhlöðu.
4. axlaról.
High Grade eða Pro. Ekki má geyma
myndbönd í ryki, hita og sterku segulsviði
t.d. frá hátölurum, því þá endast þau
skemur.
Tæknin ein út af fýrir sig gerir ekki góða
mynd. Maðurinn sem þekkir þau tæki sem
hann hefur hverju sinni og kann að beita
þeim getur gert góða hluti.
Ýmsir fylgililutir:
— Traustur þrífótur með haus sem gef-
ur mjúkar hliðarhreyfingar.
— Ljós sem hægt er að hafa á fæti eða
ljós sem setja má ofan á vélina og gengur
fyrir rafhlöðum sem má endurhlaða.
— Hljóðnemi fyrir viðtöl o.fl.
- Heyrnartæki til þess að heyra gæði
hljóðsins við upptökur.
— Straumbreytir/hleðslutæki og snúrur.
— Taska fyrir myndavél.
— Taska fyrir fýigihluti og alls konar
drasl sem fýlgir myndatökum!
í næsta þætti verður fjallað um mynda-
tökur og myndmál.
17. TBL 1989 VIKAN 31