Vikan


Vikan - 16.02.1939, Page 21

Vikan - 16.02.1939, Page 21
Nr. 7, 1939 VIKAN 21 Ungir kvikmyndaleikarar. Það var árið 1918, að Charlie Chaplin lét 4 ára gamlan dreng leika með sér í myndinni „The Kid“. Þessi mynd varð til þess, að kvikmyndaframleiðend- urnir í Hollywood sáu, hvílík ógrynni af peningum væri hægt að hafa upp úr því að láta börn leika stór hlutverk í góðum myndum. Laun barnanna, sem léku í kvikmynd- um, fóru nú að hækka mjög mikið, og Jackie Coogan, sem var eiginlega hin Jane Withers, Tommy Kelly, tvíburamir Bobby og Billy Mauch og Freddy Bartholomew. fyrsta ,,stjarna“ á þessu sviði, var orð- inn stórauðugur, þegar hann var tíu ára gamall. Síðan hefir bætzt við álitlegur hóp- ur af börnum, sem hafa hlotið frægð fyrir leik sinn. Þau tvö börn, sem skara fram úr nú, eru auðvitað Shirley Temple og Preddie Bartholomew. Pyrstu tvö árin, sem Shir- ley lék í kvikmyndum, fekk hún tvö til þrjú sterlingsþund (44—66 kr.) á dag, en það var aðeins örsjaldan, að þeir dagar komu, að hún þyrfti að leika. Það var ekkert gert til þess að koma henni að í stærri hlutverkum. Hún lék, þegar þess var óskað, en þess var aldrei óskað af foreldrum hennar, að hún fengi að leika. Þá varð það, að í einni myndinni, sem hún lék í, kom leikstjóri myndarinnar auga á hina miklu hæfileika hennar, og ákvað að bjóða henni samning, sem skyldi gilda í sjö ár, og tryggja henni 50 sterlingspund á viku (ca. 1100 kr.). Eftir nokkra mán- uði var, eftir talsverðar umræður og deil- ur, gerður samningur, og samkvæmt hon- um skyldi Shirley fá 200 sterlingspund á viku (ca. 4400 kr.). Freddie Bartholomew kom frá Englandi til Hollywood til þess að sækja um að fá að leika Davíð Copperfield, og var hann valinn til þess úr hópi 10,000 umsækjenda. Þetta var árið 1934, og síðan þá hefir hann leikið í mörgum myndum, sem hafa verið hver annari betri. Laun hans eru 19,600 sterlingspund, eða sem svarar rúm- lega 440,000 ísl. kr. Auk þessarra frægu barna, er mikill fjöldi annarra vel þekktra og hátt laun- aðra kvikmyndaleikara á sama reki. Jane Withers vakti fyrst eftirtekt á sér í Shirley Temple mynd, þar sem hún lék óþekka og leiðinlega stelpu með þeim árangri, að eftir það voru henni fengin stærri hlutverk og betur launuð. Þá má nefna tvíburana Bobby og Billy Mauch (framborið Mokk). Bræðurnir, sem verða 15 ára á þessu ári, eru svo líkir, að jafnvel móðir þeirra á stundum erfitt með að þekkja þá 1 sundur. Þeir eru van- ir því að leika hlutverk hvors annars öðru hvoru, til þess að stríða leikstjóranum, sem veit aldrei, hvort það er sá „rétti“ eða sá „vitlausi”, sem leikur. — Bræðurnir eru mjög samhentir og eru mjög sjaldan ósammála, en ef það kemur fyrir, eru þeir vanir að kasta upp peningi og láta til- viljunina ráða, hvor eigi að láta í minni pokann. Þeir hafa mikinn áhuga fyrir efnafræði og eiga ýms tæki til þeirra hluta. Móðir þeirra er þó víst ekki eins hrifin af þessu og þeir sjálfir. En það er víst ekki að ástæðulausu, því að eftir því sem þeir segja sjálfir í blaðagrein í amerísku kvikmyndablaði, þá framleiddu þeir einu sinni ólyktarpillur, sem höfðu þau áhrif á andrúmsloftið í húsinu, að enginn hélzt þar við stundinni lengur. Páir leikarar hafa náð frægð og hylli á eins skömmum tíma og Deanna Durbin. Deanna fæddist 4. desember 1922 í Winne- Liðnir leikarar. Framh. af bls. 17. arviðleitni að sporna við drykkjuskap í skólanum með því að gefa piltum hug- næmt viðfangsefni í frístundum þeirra. Annars var aðgangseyririnn í þá daga kr. 0,75 og 0,50 sitjandi, 0,40 standandi og 0,35 fyrir börn. Það var auðvitað, að jafn áhugasamur maður og fjölgáfaður og Sigurður Mag- nússon myndi koma hinum aðþrengdu leikfélögum að liði, en fjölþættar leikara- gáfur hans nutu sín þegar frá leið miður en skyldi, vegna sjálfsskaparvítis, sterkr- ar tilhneygingar til áfengra drykkja. Að- staða hans sem leikara varð af þeim sök- um erfið, því þó hann gerðist bindindis- maður með köflum, átti hann ekki ávalt samleið með samleikurum sínum, sem lang- flestir voru komnir frá leikfélögum góð- templara og héldu órjúfanlegri tryggð við þann félagsskap. Það var því ekki í leik- félaginu í Góðtemplarahúsinu, sem Reyk- víkingar fengu fyrir alvöru að sjá Sig- urð, heldur í leikfélaginu í Breiðfjörðs- húsi. Það leikfélag hafði ýmsum ágætum kröftum á að skipa. Þar lék í fyrsta skipti hin vinsæla leikkona okkar Reykvíkinga, frk. Gunnþórunn Halldórsdóttir, en auk Sigurðar má nefna af þeim, sem liðnir eru, Ólaf H. Benediktsson, bróðir Einars þjóð- skálds, eitthvert glæsilegasta leikaraefni, sem sést hefir á leiksviði hér. Þegar Leik- félag Reykjavíkur var stofnað upp úr báð- um hinum félögunum fyrir forgöngu Þor- varðar Þorvarðarsonar prentsmiðjustjóra, brast félagið giftu til að ná samstacfi peg, Canada, og heitir réttu nafni Edna Mae Durbin. Árið 1936 var hún ráðin til Metro-Goldwyn-Mayer til þess að leika í mynd, sem síðan var aldrei sýnd. Skömmu síðar fór hún að syngja í útvarp, á dag- skrá, sem skopleikarinn Eddie Cantor stjórnaði. 1 útvarpinu vakti hún mikla at- hygli fyrir söng sinn, og hvort sem því er að þakka eða ekki, þá er víst um það, að hún gerði stuttu síðar samning við Universal, þar sem hún lék í myndinni „Þremur kænum stúlkum“ og fleiri mynd- um, sem allar hafa aukið á hróður hennar. Auk þeirra, sem hér hafa verið nefnd, er vitanlega f jöldinn allur af velþekktum nöfnum, sem hægt væri að segja frá, ef rúm leyfði. Það þekkja t. d. flestir kvik- myndahúsgestir Douglas Scott, Binkie Stuart, Jackie Cooper o. fl. Mikill fjöldi fólks, streymir til Holly- wood á hverju ári, en þeir eru fáir, sem komast inn um hið gullna hlið kvikmynda- framleiðslunnar. Nýir menn taka við af þeim, sem hverfa úr myndunum. Nýjar stjörnur eru skapaðar strax og hinar þekktu fara að fölna. Starfstími barnanna er oft mjög skammur, 5—6 ár, en að þeim tíma liðnum eiga flest þeirra álitlega fúlgu, svo að þau geta lifað áhyggjulausu lífi um langan aldur. Ólafs, og hann hvarf bráðlega úr leik- endatölunni, en Sigurður Magnússon varð einn aðalleikandi félagsins á fyrstu árum þess við hlið þeirra Árna Eiríkssonar og Kristjáns Ó. Þorgrímssonar, af karlmönn- um. Þó leikaraferill Sigurðar yrði ekki lang- ur tókst honum að leika hvert hlutverkið öðru betur, en því miður voru viðfangs- efni hans af léttari tegundinni og hinum fædda skapgerðarleikara gafst aldrei kost- ur á að sýna sig á réttu sviði. Meðferð hans á Babberley í Frænku Charley’s var jafnað til leiks eins bezta gamanleikara Norðurlanda, Pjeldstrups, í því hlutverki, og það af jafn samvizkusömum leikdóm- ara og Vilhjálmi Jónssyni póstafgreiðslu- manni. Þó virðist Sigurði hafa mistekizt hlutverk Vermundar í Æfintýrinu, en söng- meðferðinni kennt um. Harmar leikdómar- inn það mjög, að Ólafi H. Benediktssyni hafi ekki verið fahð það hlutverk. Sami leikdómari bregður upp mynd af leikar- anum Sigurði Magnússyni, sem á skilið að varðveitast. I dómi sínum um fyrstu leik- sýningu Leikfélags Reykjavíkur 1897, seg- ir hann: „Vér gleymum aldrei gamla manninum með rósina, sem hr. Sig. Magnússon leik- ur með svo mikilli snilld, að vér ekki segj- um meistaralegri snilld, því öll leiklist hjá okkur yfir leitt, er enn í barndómi. Þar er hið rétta hlutverk Sigurðar — eldri, sér- vitru, hlægilegu karlarnir —.“ Það eru margir Reykvíkingar, sem geyma þessa mynd af leikaranum með rósina — hina hálfútsprungnu rós mikilla leikarahæfileika. L. S.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.