Vikan


Vikan - 23.03.1939, Page 7

Vikan - 23.03.1939, Page 7
Nr. 12, 1939 VIK AN 7 Puritanar, hinir áköfu trúmenn, voru ekki hvað beztir við Indíán- ana, þar sem þeir hétu fyrstir verðlaunum fyrir höfuðleður af Indíánum. Af þessu leiddi stríð. hafi tekið höfuðleðrið af óvinum sínum. Þeir tóku fyrst höfuðið af búknum, drógu síðan húðina af ,,með öllum hárum fyrir ofan eyrun“, þurrkuðu hana og geymdu höfuð- leðrin. Champlain, sem dvaldi í mörg ár við St. Lawrence- fljótið í Kanada og kynnti sér siði og venjur Indíán- anna segir, að þeir hafi lagt mikið upp úr höfuð- leðrunum. Árið 1603 var hann viðstaddur mikla hátíð hjá Algonquinþjóð- flokknum. Hermennirnir höfðu komið heim með mikið af höfuðleðrum af Iroquesum eins og venja var, og það átti að halda sigurinn hátíðlegan. Sex árum síðar tók Champlain þátt í herferð gegn Iros- quesum. Það var barizt í návígi, og þá sá hinn hug- rakki ferðamaður, hvernig þeir voru svarðflettir. Það hafði hryllileg áhrif á hann að sjá fangana svarðfletta lifandi. Eskimóarnir í Norður- Ameríku svarðflettu aldrei óvini sína. Þetta má ekki Indíánamir réðust á og eyðilögðu lítinn bæ, Deerfield í New Englandi í fransk-enska stríðinu. — Þar var hvorki konum né bömum hlíft. En Evrópumenn höfðu heldur ekki sýnt Indíánunum neina miskun. Evrópumenn ekki rétt á að kasta eign sinni á Ameríku? — Áttu aðeins örfáar milljónir Indíána að búa í þessu auðuga landi í stað hinna mörgu mill- jóna hvítra manna, sem búa í því enn þann dag í dag? That is the question. En svo að við snúum okkur aftur að efninu: svarðflettingu. Að því er vitað er, er fyrsta frá- sögnin um þetta frá árinu 1502. Fyrsti maðurinn, sem segir frá þessu var ferðamaður, Franc- isco Garay að nafni, og var hann sjálfur viðstaddur svarð- flettingu í Pánuco árið 1520. Frösögnin er stutt og var al- mennt ekki skilin. Næsta frásaga er frá 1535. Þá skýrir Frakkinn, Jacques Cartier, frá því, hvemig Indíánarnir í Montreal hafi hengt höfuðleðrið á grindur til þerris. Og fimm árum síðar fékk nýr leiðangur sann- anir fyrir þessum ógeðslega sið, þar sem einn af leiðangursmönnunum, Simon Rod- riguez, var svarðflettur. Ferðafélagi hans, de Carmona, komst nauðuglega undan. Nú rak hver frásagan aðra, meira eða minna ýktar, frá öllum héruðum Ameríku. Þjóðverjinn, Ulrich Schmith, sem tók þátt í að stofna fyrstu nýlendurnar í Paraguay og Argentínu og gaf út bók árið 1567, segir, að Yapirú og Mbaia-Indíánarnir skilja þannig, að þeir hafi verið friðsam- ir menn, heldur var það svo óþægilegt fyrir þá að þurfa að drasla miklu með sér heim á löngum og erfiðum ferðalög- um. Indíánar, sem bjuggu við Hudsonflóann, fengust ekkert við svarðflettingar fyrr en Hollendingar settust að í New York. Þeir höfðu svarta þræla, sem iðulega reyndu að strjúka. Þá tók nýlendustjórnin það til bragðs að gefa ærið fé fyrir hægri hend- ina á strokuþræli. Þetta var ekki eingöngu góð verzlun fyrir Indíánana, heldur líka fyrir hvíta menn. Siðurinn að skera af þeim hendina lagðist niður, þegar Eng- lendingar tóku að veita verðlaun fyrir höfuðleðrið. I Kaliforníu tóku sumir þjóðflokkar höfuðleðrin, aðrir eyrun og enn aðrir aug- un. Nýbyggjar voru sérstaklega hræddir við þá, sem sóttust eftir augum. Það var sagt, að Indíánarnir réðust á hvíta menn og þrýstu augunum úr úr höfðinu á þeim lifandi. Enn útbreiddari siður var þó að skera eyrun af og þekktist hann líka hjá mongólskum þjóðum. Hin miklu verðlaun, sem veitt voru fyrir höfuðleður, ginntu jafnt hvíta menn og Indíána. Svarðflettingarnar jukust ár frá ári. Það hefir mikið verið um það rætt, hverskonar áhöld Indíánarnir hafi notað til að svarðfletta með. Jarðfræðingar hafa haldið því fram, að þeir hafi notað stein- hnífa, en ferðamenn segja, að .þeir hafi oftast notað tréhnífa. Verðlaunin ýttu mikið undir svarðflett- inguna. Englendingar, Frakkar og Hollend- ingar hafa ásakað hverir aðra fyrir þessi verðlaunaheit. En að því er bezt verður vitað, eru þeir allir jafnsekir. Puritanar, sem voru ákafir trúmenn, hétu fyrstir verðlaunum fyrir höfuðleður af Indíánum. En þetta náði svo fljótri útbreiðslu, að það var síður en svo litið niður á þá fyrir til- tækið. Árið 1690 var verðið á höfuðleðri í kringum átta sterlingspund. Síðar hækk- aði verðið: 80 krónur fyrir höfuðleður af karlmanni, 40 krónur fyrir höfuðleður af kvenmanni. Opinber verðlisti hljóðaði þannig árið 1764: 150 dollarar fyrir lifandi Indíána, sem er eldri en 10 ára. John Archdale, landstjóri í Norður-Caroline var góður og skynsamur maður og tengdist vináttu- böndum við Indíánana í héraði sínu.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.