Vikan


Vikan - 23.03.1939, Blaðsíða 8

Vikan - 23.03.1939, Blaðsíða 8
8 V I K A N Nr. 12, 1939 nægan tíma, tóku þeir allt höfuðleðrið af og skiptu því síðan í minni höfuðleður. Það er hryllilegt að hugsa til þess, að lifandi menn skyldu vera svarðflettir. Það var þó ekki venjan, en það kom fyrir. Svarðfletting var kvalafullur, en ekki hættulegur uppskurður. Það eru ekki til svo fá dæmi þess, að hvítir menn hafi lifað eftir að þeir voru svarðflettir. Þegar farið var að veita verðlaun fyrir höfuðleðrin, var um að gera að fá sem flest á sem allra stytztum tíma, og þá var ekki alltaf nægur tími til að athuga, hvort fórnardýrið væri dautt. Til að gefa fólki dálitla hugmynd um, að hvítu menn- imir gáfu Indíán- unum ekkert eft- ir, hvað grimmd snerti, verður hér tekin stytt skýrsla, sem 100 mikils- virtir, amerískir borgarar skrifuðu undir. Hún hljóðar þannig: í Colorado komu 800 manns saman undir stjórn prests nokkurs, Chine- ington að nafni, til að leita að og hegna nokkrum hrossaþjófum, er verið höfðu í hér- aðinu. Á leiðinni rákust þeir á frið- Buffalo Bill svarðfletti í síðasta skipti árið 1876. Þegar Indíánarnir höfðu drepið Custer hershöfðingja og 240 manna liðsveit, varð Buffalo Bill njósn- ari fyrir Merritt hershöfðingja. Cheyenne Indiánahöfðingi skoraði Bill í ein- vígi með hnífum, og Buffalo Bill sigraði. Þó að Indíánarnir kæmu þjótandi höfðingja sínum til hjálpar, svarðfletti Bill óvin sinn og sveiflaði höfuðleðrinu með fjöðrunum yfir höfði sér og hrópaði: „Fyrsta höfuðleðrið fyrir Custer." 134 dollarar fyrir höfuðleður af Indíána, sem er eldri en 10 ára. 130 dollarar fyrir lifandi Squaw eða bam, innan 10 ára aldurs. 50 dollarar fyrir höfuðleður af Squaw eða barni. Og árið 1845 var verðið á höfuðleðri af karlmanni 100 dollarar, kvenmanni 50 doll- arar og barni 25 dollarar. Það getur hver og einn ímyndað sér, hvað margar mann- eskjur — sekar og saklausar — létu lífið á þessum tímum. Prestarnir voru sízt betri. Það er sagt, að þegar prestur nokkur hafi verið að svarðfletta Indíána, hafi hann skorið sig í fingur og fengið alvarlega blóð- eitrun. Peningarnir höfðu þá engu síður en nú takmarkalaust vald yfir mönnunum. Lið- þjálfi einn, David Owens að nafni, hafði strokið og setzt að meðal Indíána. Hann giftist Indíánakonu. En verðið á höfuð- leðmm fór þá mjög hækkandi. Owens þessi fór nú að iðrast eftir að hafa strokið og eina nóttina drap hann konu sína og tvö böm og svarðfletti þau. Hann fékk mikla peninga fyrir höfuðleðrin og varð mikils- virtur maður. Annar maður, Ramsay að nafni, réðist á konur og böm til að svarðfletta þau. Að lokum tóku yfirvöldin hann fastan, en — dómstólamir sýknuðu hann. Konur tóku einnig með ákafa þátt í þessum svarðflettingum. Ein kona, Hanna Dustan, fékk ærið fé fyrir að hafa svarð- flett tvo karlmenn, tvær konur og sex börn með eigin hendi. Auðvitað var það ekki alltaf peninga- áfergjan, sem lá á bak við þessar svarð- flettingar. Meiri hluti þessarra innflytj- enda var heiðvirt fólk, sem hataði og ótt- aðist Indíánana vegna þess, að þeir réð- ust á nýbyggja, sem bjuggu á afskekkt- um stöðum. James Mooney heldur því fram, að venjulegt höfuðleður hafi aðeins verið tek- ið aftarlega á hnakkanum. Ef þeir höfðu saman Indíánaflokk, sem hafði sett upp tjöld við veginn. Þeir heilsuðust eins og vinir og ræddu saman um það, hvar hrossaþjófarnir gætu verið. En allt í einu datt prestinum í hug að hefna þjófnaðar- ins á þessum flokki, því að allir Indíánar væm jafn vondir — þjófar og. morðingjar upp til hópa. Þegar presturinn gaf merki, réðust hvítu mennirnir á Indíánana. Aumingja fólkið féll á kné, fórnaði höndum til himins og hrópaði: „Við erum vinir, við emm vinir!“ En árangurslaust. 170 menn, konur og böm voru drepin. Þegar einstaka hermað- ur vildi taka mæður og böm til fanga, hrópaði presturinn: ,,Við tökum ekki fanga, hver, sem hefir meðaumkun með Indíánum, er fordæmdur." Þegar búið var að drepa allt. fólkið, var það svarðflett. Þegar sigurvegararnir komu inn í Denver City, var þeim tekið með miklum fagnaðarlátum. Um kvöldið var haldin stórveizla í leikhúsi bæjarins, og þar voru borin fram höfuðleðrin af Indíánunum undir dynjandi fagnaðarlát- um. Þetta gerðist fyrir nokkrum mannsöldr- um og er því helmingi hryllilegra. Að vísu höfðu Indíánarnir ráðist á hvíta menn í stómm hópum og hvorki hlíft konum né börnum. En kristnir prestar og menntaðir ? Indíánabúðir á sléttunni fyrir 50 árum, þeg'ar Indíánamir lifðu frjálsu lífi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.