Vikan


Vikan - 23.03.1939, Page 23

Vikan - 23.03.1939, Page 23
Nr. 12, 1939 VIKAN 23 hefði mátt búast við að hefði í fylgd með sér hjálpars. „hafa“, en í Sonatorreki Egils kemur þetta orðalag einnig fyrir (hann segir: „uni alit“), svo að það virðist hafa verið leyfileg málvenja að sleppa orðinu „hafa“, á 10. öld, úr þátíð nafnháttar. í síðari helfingi vísunnar virðist orðið „ne“ vera stafavíxl fyrir ,,en“, því að þetta samtengingarorð vantar í vísuhelfinginn, en á 10. öld var það úrelt málvenja, að því er virðist, að skeyta neitunar orðið „ne“ framan við sagnorð, sem -at eða -t var skeytt við í merkingunni ,,ekki“. „Mattið" er óþekkt mynd, sennilega þannig til orðin, að upphaflegt rúna ,,t“ er ráðið = d en því svo eftir að ,,ð“ kom til sögunnar breytt í þenna nýja staf. Orðið „hliðs“ er meira, en grunsamlegt orð. Hins vegar er ,,líðs“ = öls tilvalið orð í kvenkenningu, sem að orðið ,,henni“ sýnir, að hefir staðið í vísunni, en annars vantar. Hins vegar er hitt að bæta ,,h“ framan við orð algengt, og því ástæða til þess að sjá hvemig orðið reynist ef ,,h“ er strikað út. Orðið „gina“ er gmnsamlegt. Af þessum ástæðum er rétt að athuga hvemig lesa má úr vísunni, sé hún rituð með rúnastafsetningu. Hún liti þá svo út: Kúnastafsetning á hdr. vísunni: framit þutumk ek fluta fraur mínum kram traura kauts at katna muti kaltrs bluþfrikum halta in(ni) klumranar kina kat (h)liþs init matit min laikr hukr a hini hlun ius uiþbanmuni. Hin nýja ráðning rúnanna: Framit þættumk ek flótta Freyr mínum gram dreyra Gauts at gatna móti galdrs blóðfrekum halda en glym Ránar ginna gát líðs innit máttit mínn leikr hugr á henni hlunn jós viðbanmunni. Klassiskar kenningar, og nýgervingar, ar Kormáks, eru þessar: 1. Gautsgaldrs = Óðinssöngs = orustugatna (gata, vegr, land, hólmr) = orustuhólms Freyr = hólmgöngumaður. 2. Dreyraflóttamót = fundur, sem dreyrinn flúði frá. 3. Gramr = sverð. 4. Blóðfrekr = blóðþyrstur, hug- rakkur. .5. Glym Rán = hávaðasjór = brim- jós = sjávarhests = skipshlunn (hér = karlkyns viðarheiti) = skipsviðr = maðr. 6. Gát (eða gátt) = sú, sem gætir líðs = ölgæzla (sbr. fangagæzla) = kona. 7. viðbanmunni = viðarbanamunni = elds, Logamunni = sverðseggju (tólfall), sbr. Sn. E. og þulur hennar. = Ég hólmgöngu- maðurinn, ætti að þykjast hafa haldið sverði mínu bíóðþyrstu á mótinu, sem dreyrinn flúði frá, en ég megnaði ekki að ginna (konuna nefni ég ekki — mér leik- ur hugur á henni) manninn með sverðs- egginni. Vísan er einskonar „revy“vísa, sem þeir, er vissu allar aðstæður, sennilega hafa skemmt sér vel við. Hver konan er, sem K. þykist hafa tekið eftir á mótinu, en ekki komist í tæri við, vitum vér ekki, en ef til vill skýtur hann þessu inn til þess eins að gera Steingerði afbrýðisama, ef hún heyri vísuna — nærgætni þeirra hvors til ann- ars virðist ekki hafa verið til fyrirmyndar. Um hólmgönguna vitum vér hinsvegar það, að stykki úr sverði Kormáks hrökk í fingur á honum sjálfum og særði hann. Bersi notaði sér af þessu til þess að hætta leiknum, en Korm. vildi halda bardagan- um áfram og taldi að Bersi vildi hætta vegna þess að hann skorti hug til þess að halda áfram. Ef vér tökum orðið ,,dreyri“ í þeirri merkingu, sem vér leggjum í það nú og teljum að hann hafi haft sömu skoðun á eðli og þýðingu blóðsins og vér, þá verður nýgervingurinn „dreyraflóttamót" í raun- inni tóm vitleysa. Ef vér hinsvegar leggj- um þá merkingu í orðin, sem hann hlaut að leggja í þau vegna þess að menn héldu þá að blóðið flytti andann eða huginn um líkamann, þá verður annað uppi á teningn- um. Dreyraflóttamót verður þá „fundur- inn, sem hugurinn eða hugrekkið flúði frá“, eða m. ö. o. fundurinn, þar sem Bersi misti móðinn. Þessi merking í orðinu blóð kemur og fram annarsstaðar t. a. m. í vísu kerlingarinnar, sem kveður um uxann, sem drap Þórodd í Álftafirði. Hún segir, að hann knýi blóð sitt = nísti hug sinn = geri sig hrædda. Þetta lifir enn í málinu. Strákarnir segja: „Sé nokkur ærlegur blóðdropi í þér þá kondu“ = Sé nokkur snefill af hug í þér, þá eigðu við mig. Til þess að skilja mann, sem við tölum við, verðum vér að leggja í orð hans þá merkingu, sem hann gerir. Sama gildir um vísurnar skyldi menn ætla. Merm verða að reyna til þess að mynda kenningar eftir þeim reglum, sem skáldið fór eftir og nota orðin í þeirri merkingu, sem það lagði í þau. Um hina vísuna: Huilum handar bála hlin valda skaup sinu þat siam reið at raði rik tueim megin brikar nærgi er oss ieina angrlaust sæng gaungum dyr skaufnungi drafnar dyneyjar við freyja, er fátt að segja annað en það, að 5. v. o. er rangt kveðið vegna þess að afritari hefir látið orðin: „sæng“ og „nærgi“ skipta um sæti og ,,sköfnungi“ ritvilla f. „sköfnunga“. Vísuna virðist verða að skilja þannig: „Handarbála Hlín, hvílum tveim megin bríkar. Reið sköp, rík at ráði sínu, valda. Þat séum dyn Drafnar Freyja, dýr Sköfn- unga við, nærgi es gangim í eina sæing, oss angrlaust. * Kormákur notar alls ekki persónufor- nöfnin í þessari vísu. Handarbála = gull- hringa Hlín = kona. Sköp (fl.t. vegna þess að K. talar um skap þeirra beggja) ’= geð. Reiðsköp = geðílska. Rík at ráði sínu = sem hefir mikið vald; drottnar. Dyn Dröfn = hávaðaalda = brimalda. Brimöldueyjar = steinar, klettar. Freyja = ásynja = Gerðr. Dyn Drafnar eyjar Freyja = Steingerðr. Sköfnunga við = sverða við = karlmanni (þgf.); dýr = lystileg. Oss angrlaust = án reiði, án þess að rífast. Efnið er því þetta: Kona, við hvílum sitt í hvoru rúmi. Drottnandi geð- ílska veldur því. Við munum sjá það, Stein- gerður, lystileg karlmanni, hvenær sem við samrekkjum án þess að rífast. Kormákur segir henni, giptri konunni, að til fyrirstöðu því, að hún komi upp í rúmið til sín, sé ekki annað en það, að hún sé í illu skapi. I þessari tóntegund eru ástavísur Kormáks til Steingerðar yfir- leitt; stríðni og skens o. s. frv. Hver fyrst- ur hefir komið þeirri flugu á loft, að Kor- mákr væri ástaskáld (Troubadour) veit ég ekki, en hann og þeir sem éta það eftir honum, tala áreiðanlega um Kormák eins og sá, er talar mest um Ólaf kong, en hvorki hefir heyrt hann né séð. Ég hefi að minnsta kosti ekki rekið mig á vísur eftir Kormák, er geti veitt honum það nafn, og flestar þeirra hafa inni að halda ónot, há- vaðaskammir eða skens. En að eitthvað muni hæft í þessu virð- ist mér framkoma Steingerðar sanna, er hún heyrir þessar ástavísur hans. Hún reiðist í hvert skipti, nema þegar hann biður hennar og þegar hann er að slá henni gullhamrana, í fyrsta sinn er þau hittust, er tæplega geta talist ,,lyrik“. En hann er ekki verra skáld fyrir það. Öllum, nema þeim Steingerði og Tinteini, hefir verið skemmt, við vísur hans. Þegar ég gaf út Sonartorrek hafði ég ekki veitt eftirtekt því, sem að framan greinir og olli það því að villur hafa slæðst þar inn, sem komist hefði orðið hjá. Mun ég leiðrétta þær annars staðar. Menn virðast eiga bágt með að losa sig við þá barnatrú sína að ekkert hafi verið fært í letur hér á landi fyrir árið 1117—18, vegna þess að rúnar sé ekki hægt að rista á annað en steina, málma tré o. s. frv., en þessi efni eru ekki fallin til bókagerðar. Að rísta megi rúnar á leðri virðast menn ekki geta trúað. Ég set því mynd af þeim hér og vona, að það ásamt þessum forn- leifum, sem ég hér hefi bent á að finnist í handritunum megi verða til þess að menn fari að athuga það hvort þessi barnatrú sé heilbrigð fyrir hin íslenzku fræði.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.