Vikan


Vikan - 06.03.1940, Síða 13

Vikan - 06.03.1940, Síða 13
VIKAN, nr. 10, 1940 13 r Ymsir mætir menn, lærðir og leikir, hafa spreytt sig á að komast fyrir með vissu, hvar Lögberg hið forna hafi verið á Þingvöllum. I seinni tíð hefir lítið verið um þetta skráð, vegna þess að nú eru flestir sammála um, hvar því hafi verið vahnn staður. Það, sem ég legg hér til mála, er ekki gert í því skyni að hrekja Lögberg frá þeim stað, sem menn nú vilja hafa það, heldur leitast við að sýna fram á, hvers vegna það var flutt þangað, því að ég geng að því vísu, að fornmenn hafi upphaflega valið annan stað fyrir Lögberg, og þó ekki af handahófi, þegar þeir stofn- uðu Alþingi á Þingvöllum. Ég byggi ekki tilgátur mínar á því, sem aðrir hafa ritað um Lögberg, enda þekki fæst af því, held- ur á því, sem landslag og ýmsir staðhættir á Þingvöllum gefa tilefni til. Ef menn vilja ákveða, með nokkurn veginn vissu, hvar þessi merkisstaður hefir verið, þurfa þeir helzt að eiga heima á Þingvöllum mánuð- um eða. árum saman til að kynnast sem bezt öllum staðháttum. Þeir, sem skrifað hafa um Lögberg, hafa ekki átt kost á því. Enginn þekkir Þingvelli til nokkurr- ar hlýtar, þó að hann komi þangað stöku sinnum og líti yfir staðinn. Landslag og náttúrueinkenni staðarins eru svo marg- breytileg, að þau verða ekki grannskoðuð nema á löngum tíma, sérstaklega ef það er gert með það fyrir augum að nota sem vafalaust sönnunargagn fyrir því, hvar einhver sögulegur staður hefir verið þar. Ég býst við, að allir, sem ritað hafa um Lögberg, hafi gengið fram hjá því,-hvaða þátt Öxará gat átt í vali þessa merkisstað- ar. Mun ég því taka það atriði út af fyrir sig og lýsa starfi árinnar á Þingvöllum, og hverju hún hefir komið þar til leiðar. Eftir að Öxará kemur ofan úr hæðun- um fyrir norðan Brúsastaði, rennur hún, eins og kunnugt er, ofan á Almannagjár- bakkann og hellir sér ofan í gjána. Hún fylgir síðan gjánni röska 300 m. og þver- beygir svo hjá Drekkingarhyl gegnum eystri gjábarminn og vindur sér í þröngu gljúfri ofan á vellina. Þá beygir hún enn við og rennur í lygnum straum suður í Þingvallavatn. Gamalt árfar er fyrir ofan Almannagjá um 100 m. fyrir norðan Öx- aráfoss. Þar rann áin um eitt skeið. Féll hún þá ofan í djúpa hliðargjá út úr Stekkj- argjánni, — en svo nefnist gjáin frá Öx- arárfossi og norður að Langastíg, — og rann eftir henni spölkorn, beygði síðan til austurs þvert yfir gjána og um skarð í eystri gjábakkanum ofan hallinn rétt norð- an við furutrjágirðinguna og norðast ofan á Efri vellina. Árfarið sýnir, að hún hefir beygt við enn og runnið eftir miðjum völl- unum og suður með hraunjaðrinum aust- Eftir Quðmund Davíðsson, gæzlumann. an við Neðri vellina og þá suður með Þingvallatúni og út í Þingvallavatn. Árfar þetta er mjög greinilegt, jafnvel þar, sem vellirnir hafa þó verið sléttaðir á seinni árum, þar hefir áin verið 15—20 m. breið. Áin hefir runnið þessa leið í einu lagi, minnsta kosti þangað til að hún kom suður á móts við Brennugjá. Er þá sennilegast, að hún hafi myndað hólma þann, sem nú er fyrir norðan Þingvallatún og kallaður Jakobshólmi. Sennilega er hann hinn forni Öxarárhólmi, eða Einvígishólmi, eins og hann er stundum kallaður, en ekki sá, sem nú er nefndur því nafni. I árfarinu á Neðri völlunum hafa verið djúpir hyljir í ánni. Voru þeir óhaggaðir 1920, en litu þá út eins og pyttir. En þá voru þeir fylltir upp með því, að ekið var ofan í þá mörgum tugum hestvagna af rusli frá gistihúsinu ,,Valhöll“, sem þá stóð þar skammt frá, og sléttað yfir. Þessa leið rann áin í þúsundir ára. Á því tíma- billi bar hún með sér, á hverju ári, sand og möl, hlóð því undir sig og dreifði á báða bóga. Hún fyllti upp djúpar gjár, á Efri völlunum, og myndaði lárétt flatlendi, er síðar varð grasi gróið. Hún var búin að þessu, er mennirnir komu til sögunnar og gerðu vellina að stað fyrir þjóðarsam- komu. Enn er gamalt árfar góðan spöl fyrir ofan Almannagjá, á flatlendinu fyrir neð- an Brúsastaði og Kárastaði. Þá leið rann Öxará um mjög langt skeið. Skessukatlar í berginu, sem víða má sjá í árfarinu, bera þess ljóst vitni. Rann hún þá í Þingvalla- vatn milli Skálabrekku og Kárastaða. Þegar Ketilbjörn hinn gamli fór aust- ur yfir Mosfellsheiði að leita sér að bústað, gerði hann sér skála við Þingvallavatn, þar sem nú er bærinn Skálabrekka. Þegar hann og þeir félagar fóru þaðan, komu þeir að á, sem þeir kölluðu Öxará. Nafnið kom til af því, að þeir misstu öxi ofan í ána og náðu henni ekki upp aftur. Þeir hjuggu vök á ána og veiddu þar nokkrar áreyður.1 Þetta var snemma um vorið, áður en ísa leysti af vötnum. Það má undarlegt heita, ef áin hefir runnið í Þingvallavatn milli áður greindra bæja, að hún skyldi vera þar svo djúp, að þeir náðu ekki upp öxinni. Árfarið sýnir, að áin hefir runnið þarna víðasthvar eftir flúðum og nokkuð dreift, hlýtur hún því að hafa verið mjög grunn og lítið vatnsmegn í henni um þennan tíma 1 Orðið áreyður mun sennilega hafa breytzt í framburði og sé nú sama og urriði. árs, þar sem hún‘ rann undir ís. Þá er hitt ólíklegt, að urriði hafi verið þarna í ánni svona snemma á vori. Bendir þetta á, að þeir Ketilbjörn og f élagar hans hafi komið að ánni á Neðri völlunum, skammt fyrir ofan ósinn, þar sem hún fellur út í Þing- vallavatn. Og að þá hafi áin runnið eftir farveginum um vellina, sem áður eru nefndir, og verið þar bæði lygn og djúp, einkum neðan til. Var eðlilegra að þar hafi verið töluvert af urriða í ánni, enda var hún þar á jafnri hæð og Þingvallavatn. Sturlunga tekur svo til orða: „Sú á (þ. e. Öxará) var síðan veitt í Almannagjá ok fellur nú eftir Þingvelli.“ En ekki er getið um, hvar hún rann áður. Fornmenn gátu vel tekið ána úr farveginum fyrir norðan Öxarárfoss, þar sem hún féll fram af berg- inu ofan í hliðargjána og þaðan ofan á Efri vellina og sagt, að þeir hafi leitt hana ofan í Almannagjá, því að áin rann fyrir utan þann hluta af gjánni, sem bar nafnið Almannagjá. Þetta heiti á gjánni mun að- eins hafa náð yfir svæðið á bak við þing- ið og vellina, eða frá Kárastaðastíg norður á móts við Efri vellina. Þó að áin rynni norðar ofan í gjána var því ekki hægt að segja, að þar væri Almannagjá. Það er hvergi getið um það, af hvaða ástæðu Öx- ará var veitt ofan í Almannagjá. Hafi áin runnið, um þetta leyti, eftir farveginum, sem liggur fyrir neðan Brúsastaði og suð- ur að Þingvallavatni, eins og margir halda, verður orsökin að breytingu árinnar alveg óskiljanleg, því að hún hlaut ætíð að vera þingheimi til mikilla óþæginda. En hins vegar er það vel skiljanlegt, að menn hafi neyðst til að veita henni úr hinum farveg- inum til þess að losast alveg við hana af Efri völlunum og nokkurn hluta Neðri vallanna. I fljótu bragði virðist það ekki koma Öxará mikið við, hvar Lögbergi og Lög- réttu voru valdir staðir á Þingvöllum, en samt varð nú ekki komizt hjá því að taka allmikið tilht til hennar, og víst er um það, að hún hefir ráðið því að mestu eða öllu leyti. Verður hér reynt að sýna fram á það. Þegar Alþing var stofnað á Þingvöllum 930, var engin ástæða til 'að ætla að gjá- bakkinn fyrir norðan búð Snorra goða hafi þá verið valinn fyrir Lögberg, þó að síðar hafi það verið flutt þangað, af ástæðum, er ég síðar mun taka fram. Það mun hafa verið sett niður á allt öðrum stað á gjá- bakkanum. Ég hygg, að því hafi verið valinn staður á gjábakkanum upp undan svo nefndum Köstulum, sem eru tveir

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.