Vikan


Vikan - 06.03.1940, Side 14

Vikan - 06.03.1940, Side 14
14 hraunhólar á takmörkum Efri og Neðri vallanna. Þar uppi í hallinum eru tvær hraunbungur. Önnur er efst á gjábakkan- um, en hin fáum skrefum fyrir neðan hana. Neðri bungan verður neðan til að mjóum og sundursprungnum grjóthrygg, er nær ofan að rótum hallsins. Að norðanverðu við hana er lægð í hallinn. Eftir henni virð- ist sjást fyrir steinlögðum gangstíg, sem hggur neðan frá Efri völlunum í sneiðing alla leið upp á bunguna og hverfa þar. Ofan til er víð sprunga í bungunni og virð- ist sem grjóti hafi verið'rutt ofan í hana, þar sem stígurinn endar og fyllt þar alveg upp. Ætla má að það hafi verið gert í því skyni, að rýmra yrði að'standa þarna uppi fyrir marga menn. Framhald af stígnum gat legið í sneiðing upp á efri bunguna á gjábakkanum, þó að ekki sjáist þess merki nú. Efst á henni er lítill en sléttur bergflötur, einhver hinn ákjósanlegasti staður fyrir Lögsögumann að standa eða sitja. Var hann þarna spölkorn fyrir ofan neðri bunguna, en þó báðar taldar með Lögbergi, sem ég ætla að hafi verið á grjót- hrygg þeim, sem áður er nefndur, eru tvö skörð, sem auðsjáanlega eru gerð af manna- völdum. Tilgangurinn með þeim mun eink- um hafa verið sá að gera fólki greiðara fyrir að komast upp á breiðan og rúmgóð- an stáll, sem er í hallinum sunnanverðu við bunguna. Þar gátu mörg hundruð manns komið saman og heyrt og séð allt, sem fór fram á Lögbergi. Annars heyr- ist mál manna mæta vel þarna frá Lög- bergi, og ofan á velhna, þó að ekki sé brýnd raust, hvað þá heldur ofan á stall- inn, rétt hjá. Aðstaða áheyrenda var þarna ágæt, eða miklu betri en hjá Lögbergi ná- lægt Snorrabúð. Annar mikilsverður kost- ur við Lögberg á þessum stað var sá, að þama er eystri gjábakkinn hæstur á Þing- völlum og víðsýni þaðan bæði mikið og fagurt. Enginn staður á Þingvöllum tekur honum fram að þessu leyti. Þaðan má sjá yfir alla vellina, út og suður með hahin- um og til mannaferða á öllum vegum, sem liggja til Þingvalla. Á fyrstu áratugum Alþingis á Þingvöllum var hallinn með fram völlunum, og yfir höfuð allt landið umhverfis þá, vaxið þéttum og háum skógi, var því nauðsyn að velja Lögberg á stað, sem gnæfði hátt, svo að þeir, sem þar væm staddir, gætu haft sem bezt út- sýn yfir landið umhverfis og allt, sem gerð- ist á völlunum og í grennd við þá. Skammt þarna frá Lögbergi, norður við furuskógargirðinguna, er skarð í hallinum, sem nær frá gjánni og ofan að völlunum. Neðst í skarðinu er skálmynduð hvilft inn í hallinn, er opnast fram að Efri völlunum, mihi tveggja hamra. í botni hennar er lá- rétfur og kringlóttur grasflötur um 10 m. að þvermáli. Vottar fyrir að flöturinn sé gerður af mannahöndum. En líklegt er, að vátnsrennsli frá Öxará, sem kemur gegn- um hallinn sunnar og ofar, hafi borið þang- að mold og leir og jafnað hann að ofan. Váríávvár fundinn hentugri staður á Þing- voilum þar, sem goðar gátu sett niður dóm- endur sína en í hamraskarði þessu. Eru líkur til, að það hafi ætíð verið notað til þeirra hluta, meðan Lögberg var á gjá- bakkanum upp frá Köstulunum, og þá sennilegt, að Lögrétta hafi verið þarna skammt frá á Efri völlunum. Hamraskarð- ið er svo vítt, að 40—50 menn geta setið þar í hring hlið við hlið án þess að þrengja að sér. Sé gert ráð fyrir, að Öxará hafi um þetta leyti runnið eftir hinu forna árfari, eftir endilöngum völlunum, sem enn sést glöggt móta fyrir, hafa bæði Lögrétta og Lögberg verið sama megin árinnar. Þurftu menn því ekki að fara yfir hana, er þeir gengu frá búðum sínum til þessara staða. Var því ekki nauðsynlegt að brúa hana fyrst um sinn. Öxará er áþekk flestum þverám, sem koma af f jöllum ofan, í því, að hún verður vatnslítil í langvarandi þurrkum á sumrin, og hverfur líka með öllu, þegar mikil frost eru á vetrum. En hins vegar vex hún af- skaplega í miklum rigningum á hvaða tíma árs sem er. Á einu dægri getur hún þá orðið ófær með öllu og flæðir þá yfir bakk- ana og út yfir vellina á báða bóga. Hún veltur þá áfram með feikna straumkasti og ryður öllu á brott, sem fyrir verður. Að sjálfsögðu hefir alloft komið fyrir, að mikill vöxtur hefir hlaupið í ána meðan á þingi stóð. Gat hún þá gert þingheimi meira en lítinn óleik og tafið þingstörfin í einn eða fleiri daga, vegna vatnsflóðs á völlunum. Til þess að koma í veg fyrir þau vandræði, sem af ánni stöfuðu, tóku fornmenn það ráð að breyta farvegi henn- ar og veita ofan í Almannagjá og fá hana til að faha sunnan til ofan á Neðri vellina, þar sem hún nú rennur. Með þessu móti gátu þeir losazt við hana alveg af Efri völlunum og nokkrum hluta hinna. Þetta mun hafa verið ástæðan fyrir því, að Öx- ará var veitt ofan í gjána, en ekki sú, eins og sumir halda, að fornmenn hafi gert það í því skyni að auka fegurð staðarins. Þeir hefðu gjaman viljað gefa mikið til að losna alveg við ána af Þingvöllum, ef þess hefði verið nokkur kostur, því að hún hlaut að vera þeim ætíð til mikilla óþæg- inda um þingtímann. Fornmenn hafa víst orðið hróðugir yfir því að bera þannig sigur úr býtum við ána. En þetta stóð ekki lengi og fór allt á annan veg, en til var ætlazt. Engan gat rennt grun í, jafnvel þó að lærðir verkfræðingar ættu í hlut, að þrátt fyrir þetta héldi áin áfram að skap- rauna þingheimi. Þegar áin fór að renna eftir gjánni, kom það í ljós, að meira og minna af vatnsforða hennar kom alls stað- ar undan hallmum, bæði við Efri og Neðri vellina og flæddi yfir þá sigri hrósandi og gerði nú þingheimi enn þá meiri óleik en áður. Þessu hefir Öxará haldið síðan áfram fram á þennan dag. Þegar hún vex til muna bullar nú vatnið upp á 8 og 9 stöð- um undan hallinum og flæðir ofan á báða velhna eins og í gamla daga. 1 hinum nýja farvegi Öxarár í Almannagjá voru, eins og gefur að skilja, allvíða glufur og VIKAN, nr. 10, 1940 sprungur, er lágu víðs vegar undir gjá- bakkanum og gegnum hallinn og tóku við vatninu. Fyrst um sinn för aðal vatns- megn árinnar þessa leið, þangað til hún var búin að safna miklu af sandi og möl í farveginn og loka með því helztu gluf- unum. En það tók langan tíma. Eflaust hafa menn, sem koma á Þing- velli, tekið eftir því, að tungumyndaðir grasgeirar, stuttir og breiðir, teygja sig hér og hvar upp í hallann frá völlunum. Þeir hafa orðið til af mold og leir, sem árvatnið bar með sér gegnum hallinn í meira en 9 hundruð ár. Þegar svona var komið, og engu tauti varð komið við Öxará, urðu góð ráð dýr. Vatnsflóðið á völlunum varð nú enn tíð- ar, og elgurinn þar engu minni en áður, því að nú þurfti áin ekki að vaxa að neinu ráði til að gera Alþingi þennan grikk, og engin leið, úr því sem komið var, að ráða á þessu bót. Fornmenn munu nú hafa tek- ið þá ákvörðun að flytja störf þingsins á annan stað á Þingvöllum. Þeir fluttu Lög- berg á gjábakkann fyrir norðan Snorra- búð, en Lögréttu settu þeir niður fyrir austan gamla árfarið sunnarlega á Neðri völlunum. Síðan gerðu þeir brú á Öxará undan Biskupshólnum. Eftir þetta þurftu þeir ekkert að eiga undir ánni, eða kenjum hennar. Niðursetu dómenda hygg ég, að fornmenn hafi valið stað upp í Almanna- gjá, í hamraskarði á bak við Lögberg. Þar er hentugur staður og vel lagaður til þeirra hluta. I Hænsna-Þóris sögu er tekið svo til orða á einum stað: „Enn þingið var þá undir Ármannsfelli." Það var um árið 965, er fjórðungsdómar voru stofnaðir, eða 'um það leyti, sem ég ætla, að Lögberg hafi enn verið á gjábakkanum upp frá Köstulunum. Ólíklegt var, að menn hafi flúið með þingið undan Öxará norður að Ármannsfelli, því þar gat það ekki starfað vegna vatns- skorts. En ummælin benda þó til þess, að þingið hafi að minnsta kosti verið þá á öðrum stað en því var valinn síðar. Og svo er hitt að athuga, að ummælin eru orð- in um 200 ára gömul, þegar þau eru skráð og því ekki ólíklegt, að þau hafi eitthvað raskazt í meðförunum á því tímabili, frá því, sem þau voru upphaflega. I Hrafnkels sögu er frá því sagt, að dómur var settur á Lögbergi, þegar Hrafn- kell Freysgoði var gerður sekur. Ekki var venja áður, svo kunnugt sé, að Lögberg hafi verið notað til þeirra hluta. Af hvaða ástæðu lögsögumaður hefir leyft þetta er ekki ljóst. Trúlegra er, að hann hafi leyft að setja niður dóminn h j á Lögbergi. Og ef sá staður hefði verið valinn á stallinum, sem áður er nefndur upp frá Köstulunum, mátti koma þar fyrir miklum mannfjölda til að vama því, að dómendur yrðu hraktir burtu, eins og líka átti að reyna í þetta skipti. Lögsögumaður réði og ákvað, hvar hver fjórðungsdómur skyldi sitja. En þeir voru víst sjaldan á sama stað ár eftir ár. Öxará Framh. á bls. 16.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.